Úrval - 01.03.1982, Síða 33
ÞAR SEM VESTRIÐ GETUR SIGRAD
31
mánuði fylgdu fleiri símtöl yfír
Atlantshafið og svo að lokum stefnu-
mót við Chitunda í Washington.
Vandamálið var að finna sem heppi-
legastan tíma og flugvél sem smyglað
gæti mér fram hjá rússnesku MIG
flugvélunum inn á yfirráðasvæði
Savimbi í Angola.
Loksins, 10. september 1980, var
mér sagt að fljúga til höfuðborgar
Afríkuríkis í grennd við Angola. Þar
fór ég síðan um borð í ómerkta DC-4
vél sem gefið hafði rangar upp-
lýsingar um flug til afrískrar borgar
nálægt landamærum Angola.
Sjö tímum seinna lentum við á
moldarvelli þar sem Angólabúar
stóðu 1 röðum, brosandi og veifandi
Kalasjiníkofrifflum sínum. Ég var
kominn inn í konungsríki Jonasar
Savimbi.
Savimbi og menn hans lifa
einföldu og fábrotnu lífí undir berum
himni. Fæði þeirra samanstendur af
korni eða cassava-hveiti sem einstaka
sinnum er bætt með hvítkáli eða villi-
hunangi. Strákofar eru bústaðir
hermannanna og fjölskyldna þeirra.
Þegar þeir eru fjarri heimilum sínum
sofa þeir undir skýlum eða striga-
ræmum og róta upp jörðinni svo hún
verði mýkri að sofa á.
Takmarkið er frelsi, bæði hvað
Kúbani og MPLA varðar. Sumarið
1980 höfðu UNITA-menn náð
stórum hluta Cuando Cubango-
svæðisins á sitt vald, valdið Kúbu-
mönnum ómældu tjóni og hrakið þá
aftur inn í borgirnar. Næstu áætlanir
Savimbi á þessu svæði voru þær að ná
Mavinga á sitt vald en 1100 stjórnar-
hermenn voru í bænum.
í tíu daga samfleytt læddust þrjár
UNITA-herdeildir — 1400 manns —
í gegnum skóginn með 81 mm fall-
byssu, kínverskar bazookur, 75 mm
fallbyssur og tvær herteknar 122 mm
eldflaugaskutlur. Síðan umkringdu
þær bæinn. Tíu njósnarar héldu inn í
Mavinga, klæddir stolnum
einkennisbúningum stjórnarher-
manna, og sneru aftur með upp-
lýsingar um hverja einustu fallbyssu í
bænum. Skæruliðarnir biðu síðan
átekta þar til birgðir af matvælum,
lyfjum og vopnum voru komnar til
bæjarins en það var þann 18.
september. — Savimbi vildi tryggja
sér að öll búr í þorpinu væru full
þegar hann gerði innrás sína.
Loksins, klukkan 05 19-
september, hófu stórskotaliðsmenn
UNITA árás sína. Stjórnarhermenn
reyndu að svara henni en vopn þeirra
þögnuðu fljótlega. Þá ráku UNITA-
hermennirnir upp hið hræðilega
stríðsöskur sitt, kvasja! (áfram!) og
réðust inn í Mavinga.
Eftir eina klukkustund var allt um
garð gengið. Fengurinn var góður á
mælikvarða skæruliða: fjórtán 14,7
mm byssur, fimm 81 mm stórar fall-
byssur, fímm SAM 7 flugskeyti, rúm-
lega 300 rifflar, 12 vörubílar,
þúsundir skotfærarúlla, nokkur tonn
af mætvælum, lyfjum, fatnaði og
öðrum vörum. Vörubílar UNITA
komu á staðinn og sóttu birgðirnar.