Úrval - 01.03.1982, Qupperneq 54

Úrval - 01.03.1982, Qupperneq 54
52 ÚRVAL kúlusveppum að gylturnar verða að leita langt yfir skammt,” sagði Marcelle frænka. ,,Þær þreytast og missa áhugann.” Hún bætti því við að hundar væru líka gætnari og skemmdu ræturnar síður. Félag franskra kúlusvepparæktenda ætlar að bæta sér upp skaðann með því að planta allt að fjögur þúsund ekrum af eik og hesliviði árlega næstu 50 til 70 árin svo að ársframleiðsla Frakka geti orðið 500 tonn. Þessi tré er tíu til fimmtán ár að vaxa og það er margt annað sem gefa verður gaum: vætusöm tíð, veiði- þjófar, afætur og breytilegur vöxtur kúlusveppanna sjálfra. Flokkur manna undir stjórn Jean Grente, forstjóra landbúnaðar-- rannsóknarstofnunar franska ríkisins í Clermont-Ferrand, hefur fljótlegri lausn því að þar telja menn eftir tólf ára rannsóknir að þeim hafi tekist að rækta kúlusveppi. Þeir sprauta upplausn sveppagróa í rætur ungra eika og heslitrjáa og hafa trén síðan í gerilsneyddum jarðvegi í nokkra mánuði áður en þau eru sett á sinn stað. Þrem og hálfu ári eftir að Grente og félagar höfðu sprautað í rætur ungra trjáa uppskáru þeir 20 stóra kúlusveppi árið 1977. ,,Það var enginn bragðmunur á okkar sveppum og þeim náttúmlegu,” segir Grente. Matvælaiðnaðurinn gerir sér góðar vonir um að innan fimm til tlu ára verði afrakstur þessarar sveppa- ræktunar meiri en hinnar eðlilegu. Á meðan slást menn um kúlusveppina og stóru matvælafram- leiðendurnir, eins og 144 ára gamla Delpeyrat-fyrirtækið í Sarlat, nota allt að 25 tonn á ári en af því þarf að flytja mikið inn frá Ítalíu og Spáni. Einn daginn fórum við Raymond í ferð um Delpeyrat-verksmiðjuna með verkstjóra þar. Hún er í gömlu klaustri. I einu herberginu sáum við hvernig kúlusveppirnir eru þvegnir 1 uppsprettuvatni, burstaðir í höndunum, suðan látin koma upp á þeim í risastómm pottum og þeir síðan settir í lofttæmdar umbúðir til að sendast úr landi, jafnvel til Argentínu. Skammt frá var maður með hvíta kokkahúfu að skera sveppina í næfurþunnar sneiðar. Konur í eldhúsunum við hliðina notuðu sneiðarnar til að skreyta sælkeramat, svo sem fasana, akur- hænur, lúðu úr Norðursjónum eða gæsa- eða andalifrarkæfu. Menn kynnast best leyndardómi kúlusveppsins á mörkuðunum. Ilminn lagði fyrir vit mér þegar. ég kom á markaðinn í Lalbenque' nálægt Cahors, en hvergi sá ég kúlu- sveppi á grænmetispöllunum. Jean Corot, einn þeirra sem selur kúlusveppi, hafði sagt mér að þeir væm svo dýrir að enginn Frakki hefði þá liggjandi á glámbekk á markaðinum. ,,Hann hefur þá í strigapoka eða felur þá undir eggjum íkörfunni,” sagðijean. ,,Hann virðir kaupandann vel fyrir sér áður en hann sýnir vömna. ’ ’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.