Úrval - 01.03.1982, Síða 62
60
ÚRVAL
Gleymum ekki miklum ungbarna-
dauða og barnaþrælkuninni. Þrátt
fyrir öll okkar vandamál skiljum við
börnin og þarfir þeirra betur en þá. ’ ’
Michael I. Cohen, yfírmaður
barnalækninga við Albert Einstein
College of Medicine í New York,
álítur að börn nútímans verði ef til
vill betri foreldrar en þeirra eigin
, ,því þau eru betur upplýst’ ’.
En um leið og tímarnir breytast og
börnin em ekki lengur vernduð
heldur tekin snemma upp 1 samfélag
þar sem aldursskipting er minni
fjölgar fréttum um misþyrmingar,
vanrækslu og misnotkun á börnum.
Bernskan er mörgum börnum erfíð
og hættuleg. 15 ára stúlka, sem hefur
gengið í gegnum skilnað foreldra,
marijúanareykingar frá því hún var í
sjötta bekk og slæma kynlífsreynslu í
áttunda bekk, hefur eftirfarandi að
segja: ,, Allir krakkarnir sem ég þekki
em að flýta sér að verða fullorðnir og
ég skil þá ósköp vel. Ekki vildi ég
verða barn aftur.”
Foreldrar dagsins í dag gleyma því
oft að börn em misjafnlega barnaleg.
Foreldrar reyna að forðast ofverndun
og öfgafulla leyndina sem hvíldi yfír
öllu hér áður fyrr en hafna oft þeirri
ábyrgð sem fylgir því að annast sér-
þarfir barna sinna.
Verða breytt viðhorf til
bernskunnar til góðs eða ills fyrir
börnin eða samfélagið í heild? Því
miður komumst við ekki að því fyrr
en kynslóð barna sem aldrei hefur
upplifað bernskuna fer að ala upp
eigin börn.
>£g>té>s&
Úr málgagni breskra húsmæðrasamtaka: „Eftir teið hélt frú N.N.
skemmtilegt erindi með litskyggnum um hið óvenjulega gæludýr
sitt, bavíanann Badoo. Hún sagði að margt fólk væri hrætt við að
koma nærri svo stóm dýri en sjálf fann hún aldrei til slíks eftir að hafa
eytt fímmtán ámm í Afríku með manninum sínum. ”
Veikur hermaður var lagður á hersjúkrahúsið. Hann langaði að skrifa
konunni sinni bréf en gat það ekki hjálparlaust, þess vegna tók
góðviljuð hjúkmnarkona að sér að skrifa bréfíð fyrir hann. Hann
lýsti sjúkrahúsinu og sagði að það færi vel um hann og hann væri á
batavegi. ,,En yfirleitt em hjúkmnarkonurnar hér hun'dleiðinlegar,”
vildi hann að hún skrifaði.
,,Ne-ei,” greip hjúkmnarkonan fram í, ,,er þetta nú ekki
ósanngjarnt?”
Hermaðurinn brosti. , Jú, það er það. En konan mín verður ánægð
meðþað.” -J.M.