Úrval - 01.03.1982, Page 65

Úrval - 01.03.1982, Page 65
TILFINNINGALÍF OG HEILSA 63 eitt íjölmargra slíkra sem sýna fram á tengsl milli hugarástands og sjúkdóma. Margir hafa haft hugboð um þessi tengsl en vestræn lækna- vísindi hafa um árabil leitast við að skýra orsakir líkamlegra sjúkdóma út frá lífefnafræðilegum þáttum. En það tilheyrir liðinni tíð. Sífellt fleiri læknar á öllum sérsviðum ræða nú um „nýjan skilning” sem gæti leitt af sér grundvallarbreytingar á afstöðu manna til heilbrigði og hvernig lækningu skuli háttað. Sem dæmi má taka Carol M, 34 ára gamlan ritara, sem þjáðist af myasthenia gravis, bráðri vöðva- rýrnum. Þegar Carol leitaði til dr. John Petrich við læknadeild Washingtonháskólans komst hann að því að hún var ofsótt af fyrrverandi eiginmanni sínum. Carol var mjög miður sín og að því komin að flytja úr borginni. Petrich sagði henni að til- finningaleg togstreita hefði mjög slæm áhrif á sjúkdóminn og hvatti hana til þess að fara hvergi og leiða ofsóknirnar hjá sér. Fljótlega gafst fyrri eiginmaðurinn upp og hvarf burtu úr lífí Carol. Þegar áhyggjunum létti batnaði heilsan. þessu tilfelli, eins og svo mörgum öðrum, urðum við aðeins að gefa sjúklingnum ráðrúm til að átta sig,” segir Petrich. En hvernig gat hugarástand Carol ýtt undir líkamlegan hrörnunar- sjúkdóm? Og á hvaða hátt leiddi sorg Mary Corcoran af sér asmakast? Þeir sem lagt hafa stund á læknis- fræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á að andlegt uppnám kemur af stað keðjuverkun heilans og innkirtla- kerfisins. Viðbrögð tauga og innkirtla hafa áhrif á öll lífsnauðsynleg ferli í líkamanum og eru eðlileg og nauð- synleg. Of mikil áreitni getur haft slæm áhrif á líkamann og leitt af sér sjúkdóma. Dr. James P. Henry, prófessor í líf- eðlisfræði við Suður-Kaliforníu- háskóla, segir að samkvæmt einni kenningu megi greina tvenns konar ferli eftir þvx hvers konar tilfinningar er um að ræða. Sorg og örvænting, tilfinning missis og saknaðar, eiga upptök í þeim hluta heilans sem orkar á kirtlakerfi heiladinguls og nýrnahettna. Hormón eins og cortisol, sem er nauðsynlegt til að tempra bruna næringarefnanna, er skilið út í miklu magni frá ytri hluta nýrnahettnanna (cortex). Ef þetta gerist of oft eða í of langan tíma, raskast ónæmisviðbrögð líkamans. Varnir gegn sýkingu og ígerð minnka. Ofnæmissjúkdómar, til að mynda liðagikt og vöðvarýrnun þar sem líkaminn ræðst gegn sjálfum sér, eru líklegri til að herja á. Æstari tilfinningar, reiði og óþolinmæði, ótti við að fjölskyldu manns, afkomu og stöðu sé ógnað, hafa áhrif á annan hluta heilans, þann sem örvar innri hluta nýrna- hettnanna. Innri hluti nýrna- hettnanna gefur frá sér efni sem kölluð eru katekólamín (adrenalín er eitt þeirra). Þau auka hjartsláttinn,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.