Úrval - 01.03.1982, Side 91

Úrval - 01.03.1982, Side 91
GÖNGUFERÐ FRÁ RÚSSLANDI 89 lagður þvert um lækinn strax hinum megin við girðinguna. Hann lokaði leiðinni algerlega. Alexander virti girðinguna fyrir sér dágóða stund. Þarna var ekkert sem beinlínis ógnaði honum og það jók honum kjark. Hann faldi bakpokann bak við steininn, óð út í lækinn og eftir honum í áttina að veginum. Það yrði minnsta kosti til þess að hundur rambaði ekki á slóðina hans. Hann stiklaði á steinum til þess að gera ekki fótspor í lækjarbotninn. Rétt við brúna var stafli af grönnum grenigreinum í læknum. Greinarnar voru dauðar og öll sveigja úr þeim. Ein brotin grein væri þegar í stað vísbending til varðanna um að eitthvað hefði komið við þær. Hann steig varlega fram hjá hrúgunni upp á brúna til að skoða girðinguna betur. Hinum megin við brúna hafði svo miklum sandi verið mokað í lækinn að vatnið hvarf næstum alveg, rann í gegnum sandinn. Hann fór sömu leið út af brúnni aftur og þurrkaði fótaförin vandlega af rökum brúarbjálkunum. Hann renndi sér ofan í lækinn og óð um 200 metra upp eftir honum áður en hann fór upp úr. Svo laumaðist hann í skógarjaðrinum suður með girðingunni til að vita hvort annar lækur gæfi betra tækifæri. Við og við fór hann nær til að skoða veginn. Á einum stað sá hann óvenjulegan og umhugsunarverðan búnað. Tveir tréstaurar héldu uppi einhverjum búnaði sem minnti á hatt. Frá honum lágu tveir vírar ofan x jörðina og á þriðja staurnum skammt frá var hátalari sem stefndi meðfram girðingunni. Var þetta sívæla? Alexander var enn að leita að betri stað til að komast yfir þegar hann heyrði, um miðjan dag síðdegis, daufan nið sem minnti á hljóðið sem hann hafði heyrt kvöldið áður. Hann faldi sig bak við stóran stein. Hljóðið hækkaði lítið eitt. Hann hefði varla þekkt það hefðu ekki komið til brestirnir sem hann þekkti að voru í yflrbyggingu á bíl. Venjulega gefa sovéskir vörubílar frá sér ærinn hávaða. Það leyndi sér ekki að þessi var búinn óvenju merkilegum hljóð- deyfum. En brestirnir í yfir- byggingunni voru ekkert deyfðir og heyrðust langar leiðir. Svo kom klunnalegt trýnið á vörubílnum í ljós. Alexander hélt niðri í sér andanum þegar bíllinn fór fram hjá honum — ekki lengra en um fimmtíu metrar í hann — með á að giska tíu kílómetra hraða. Hann sá vökula landamæraverðina undir strigasegli aftan á bílnum. Þeir grannskoðuðu veginn beggja megin og sandrákina út að girðingunni um leið og þeir fóru hjá. Vömbíllinn silaðist áfram og hvarf fyrir beygju... og allt í einu þagnaði hljóðið. Bíllinn hlaut að hafa numið staðar við brúna! Þögnin var kæfandi. Flótta- maðurinn lagði sig allan fram, hræddur og örvæntingarfullur, að heyra eitthvað. Eftir tuttugu mínútna bið munaði minnstu að hann léti
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.