Úrval - 01.03.1982, Page 104
102
ÚRVAL
ætlaði hann að synda til Cvíþjóðar.
Hann gat enn verið heppinn — vera
kynni að straumurinn bæri hann að
réttum bakka þrátt fyrir hve veik-
burða hann var.
Meðan hann var að búa sig undir
stökkið reyndi hann að gera sér grein
fyrir manninum í svarta bílnum. Og
þá sá hann að þetta var enginn
lögreglumaður heldur venjulegur bíl-
stjóri miður sín af því að hafa misst af
ferjunni. Ferjan lagðist að og tók
mann og bíl um borð. Að þessu sinni
hélt Alexander niðri í sér andanum
þegar lagt var frá aftur og hrósaði
happi.
Það var rétt af honum að halda
niðri í sér andanum. Meðal farþega
sem gengið höfðu af bátnum í
Karesuando var finnskur hermaður
sem þekkti að þessi skeggprúði
göngumaður var sá sem lögreglan var
að leita að. Hann flýtti sér að segja frá
uppgötvun sinni. En enn einu sinni
hafði Alexander heppnina með sér.
Ferjan var fljótari yflr um en fínnska
lögreglan í Karesuando að bregðast
við.
Þar þótti honum allt ótrúlega
frjálslegt og afslappað — og þess
vegna ótrúlegt! Enda leið ekki á
löngu þar til Rússinn ungi skrifaði
nýfengnum vini að „frelsistil-
finningin veldur mér stöðugri
ölvunartilfínningu í þessu nýja lífi
mínu.”. Eftir 23 daga ,,á röltinu” frá
Moskvu var Alexander frjáls. Hann
var ekki lengur háður duttlungum
fyrrverandi stjórnvalda sinna. Nú átti
hann sig sjálfur.
Þremur dögum eftir að Alexander
kom til Svíþjóðar komst hann til
Stokkhólms þar sem hann fékk
pólitískt hæli. Meðan hann beið þess
að fá innflytjendaleyfi til Banda-
ríkjanna hélt hann áfram námi sínu,
meðal annars með sjálfstæðri rann-
sókn við eðlisfræðistofnun í
Stokkhólmi.
I apríl síðastliðnum komst hann til
Bandaríkjanna og hefur nú sest að
heilu og höldnu við Massachusetts
lnstitute ofTechnology í Cambridge í
Massachusetts, þar sem hann leggur
stundáþróaða eðlisfræði.
,, Allir kaupa póstkort á ferðalögum — en af hverju rembumst við við
að finna tólf mismunandi myndir úr því að móttakendurnir eru tólf
mismunandi persónur? ’ ’
— Sacha Guitry (frönsk leikkona og rithöfundur)
Vísindamenn hafa uppgötvað að það örvar heilann að gapa eða
geispa og hefur japönsk transistoraverksmiðja fært sér það í nyt með
þvl að innleiða reglubundið hálfrar mínútu geispahlé fyrir starfs-
menn sína. í hvert skipti sem merkið til þess er gefíð lyfta aliar starfs-
stúlkurnar við færiböndin höndunum upp fyrir höfuð og geispa sam-
tímis. Verksmiðjustjórinn fullyrðir að þetta hafi aukið framleiðsluna.
— LG.