Víðförli - 01.12.1952, Page 10

Víðförli - 01.12.1952, Page 10
72 VÍÐFÖRLI lega sá að tryggja það, að aðeins væri notaður einn réttur texti, en fyrir bragðið varð lítið vitað um eldri texta. Gamla testamentið hafði verið þýtt á önnur mál mörgum öld- um áður og eru Peshitta hin sýrlenzka og Septuaginta hin gríska þýðing hinar þekktustu. Hin síðari er gjörð um 200 f. Kr. og var einkum hún oft lögð til grundvallar, er menn vildu leiðrétta Massóretatextann. Hin síðari árin hafa rannsóknir, er gerðar hafa verið á þýðingum þessum, samt bent til þess, að þær væru ekki með öllu einhlítar sem textavitni gegn Massóretatextanum. Handritafundurinn varpaði því Ijósi á þar, sem reið á miklu um áreiðanleik. Það þóttu ekki ómerk tíðindi, er það fréttist, að handritin væru um 1000 árum eldri en Massóretatextinn. Einnig vakti það athygli manna, að handritafundurinn í Palestínu varð með allóvenjuleg- um hætti. Venjulega finna menn slík spor horfinna kynslóða við eljumikla leit og þrautseig rannsóknarstörf. En hér fundust af einberri tilviljun hinar merkustu fornminjar, er þessi kynslóð hef- ur augum litið. Hirðar nokkrir voru á ferð um óbyggðir í Júdeu, við norðvest- urenda Dauðahafsins, í leit að ánum sínum. Þetta hérað er mönn- um kunnugt frá sögunni um miskunnsama Samverjann, hér eru hinar sömu slóðir, sem vegurinn liggur um frá Jeríkó til Jerúsalem. Hirðarnir sáu þá, hvar lítill munni var í grýttri hlíðinni,. og er þeir gengu nær, sáu þeir, að þetta var hellismunni. Þeir hentu steini inn og heyrðu brothljóð. Vafalítið hefur hin fyrsta hugsun þeirra verið sú, að nú hefðu þeir fundið hulinn fjársjóð, en orðið fyrir vonbrigðum, er þeir hleyptu í sig kjarki og skriðu inn og uppgötvuðu, að í kerjum þeim, er stóðu út við veggina á þessum örlitla helli, voru einhverjir furðulega útlítandi strangar með einhverju pári á. Þeir héldu nú til næsta markaðsbæjar, sem er Betlehem, og hugsuðu sér að koma þessu gamla rusli í einhverja peninga. Þeir reyndu fyrst við arabískan kaupmann og buðu honum strangana fyrir eitthvert smáræði, en hann hafnaði boðinu og benti þeim á sýrlenzkan kaupmann, þar sem hann hélt að

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.