Víðförli - 01.12.1952, Blaðsíða 35
ÖRLÖG ÍSRAELS FRÁ KRISTNU SJÓNARMIÐI
97
Til skamms tíma gátu ekki rétttrúaðir Gyðingar minnst svo Jesú
Krists, að þeir ekki létu í ljósi hatur og fyrirlitningu. Kunnugir
segja að á því hafi orðið stórkostleg breyting. Nú sé Kristur yfir-
leitt talinn meðal fremstu mikilmenna sögunnar og jafnvel mestur
allra er lifað hafa, þó að enn sé hann ekki viðurkenndur sem Mess-
ías. Hefur margt orðið til að valda þeirri breytingu.
Kristnir menn hafa ekki gleymt með öllu skyldum sínum við
Gyðinga. Var Hilda Andersson góður fulltrúi þeirra og hins
kristna sjónarmiðs.
Kristniboð hefur verið rekið meðal Gyðinga í mörgum löndum
og á sér langa sögu.
Árið 1806 reið trúaður enskur jarðeigandi um fagran trjágarð
í Devonshire á Englandi. Vinur hans, sem var með honum,
sagði honum að eigandi garðsins hefði sett þau einkennilegu á-
kvæði í erfðaskrá sína, að ekki mætti höggva eikartrén í garðin-
um fyrr en Gyðingar hefðu horfið heim aftur til Landsins helga.
1*6113 atvik varð til þess að hann helgaði sig trúboði meðal Gyðinga
og varði til þess eignum sínum. Ári síðar var stofnað í Englandi
félag er vinna skyldi að „útbreiðslu kristindóms meðal Gyðinga.“
Kom félagið fljótlega á fót kristniboðsstöðvum í Gyðingahverfum
ýmissa stórborga á Englandi og meginlandinu, og er nú elzt og
öflugast þeirra félaga, er vinna að trúboði meðal Gyðinga.
Amerískur félagsskapur sendi fyrstu kristniboðana til Palestinu
árið 1819. Full hundrað ár eru liðin síðan stofnað var í Noregi
ísraels-trúboðsfélagið, sem enn starfar. í Svíþjóð eru tvö slík fé-
lög en eitt í Danmörku. Norðurlandafélögin hafa sent kristni-
boða til Palestinu og víðar þangað, sem Gyðingar eru búsettir. Jerú-
salemsfélagið svo nefnda í Berlín sendi fyrstu kristniboða sína
til Palestinu 1852, eða fyrir réttum 100 árum.
Kristniboðar í Palestinu hafa flest allir starfað jöfnum hönd-
Um meðal Gyðinga og Araba. Börn og unglingar Gyðinga og Ar-
aba hafa setið hlið við hlið í skólum þeirra, og fólk af báðum
þjóðflokkum notið góðs af sjúkrahúsum þeirra og öðrum stofn-
unum.
Of langt mál yrði að skýra nánar frá því hér, hvern árangur