Víðförli - 01.12.1952, Page 38

Víðförli - 01.12.1952, Page 38
SIGURBJÖRN EINARSSON: Albert Schweitzer Erindi flutt í útvarp 10. apríl 1952. I. Albert Schweitzer hefur lagt talsvert af mörkum til fjögurra fræðigreina, heimspeki, læknisfræði, tónlistarsögu og guðfræði. En mest liggur eftir hann á sviði guðfræðinnar og þar hefur hann unnið sér mestan orðstír sem fræðimaður. Hann er ofan á þetta fernt víðfrægasti kristniboði og einn fremsti orgelleikari nútímans. Hér verður nokkuð sagt frá prestinum og guðfræðingnum Al- bert Schweitzer. Hann er prestssonur og innritast 18 ára gamall í guðfræði- deild háskólans í Strassborg. Strassborg er fornfrægur háskóla- bær, þar snertist frönsk og þýzk hámenning, þvzka og franska eru talaðar jöfnum höndum og bæði málin tileinkaði Schweitzer sér í uppvextinum, þótt þýzkan yrði honum tamari og það mál, sem hann hefur aðallega ritað. Guðfræðin stóð um þessar mundir með miklum blóma við Strassborgarháskóla, kennararnir voru flestir ungir menn og vaxandi. Mest kvað að Heinrich Julius Holtzmann, en sérgrein hans var samstofna guðspjöllin, þ. e. 3 fyrstu guð- spjöllin í Nt. Auk guðfræöinnar stundaði Schweitzer heimspeki og naut þar handleiðslu mjög kunnra manna. Þegar fyrsta áfanga guð- fræðinámsins var náð, las hann heimspeki eingöngu um eins árs skeið í París og Berlín. Sérgrein hans var trúarheimspeki Kants og samdi hann ritgerð um það efni, sem hlaut mikið lof og aflaði honum fyrstu doktorsgráðunnar. Lærifaðir hans í þessari grem lagði fast að honum að gerast nú kennari í heimspeki við háskól- ann, en lét hann jafnframt á sér skilja, að það myndi ekki þykja vel viðeigandi, að maður í slíkri stöðu kæmi fram sem prédikari.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.