Víðförli - 01.12.1952, Page 48
110
VÍÐFÖRLl
er meiningarlaust í gangi veraldar. Rétt aðeins á mjög svipulum
stundum hef ég verið fullkomlega glaður yfir því að vera til. Ég
gat ekki að því gert að finna stöðugt til með öllum þeim sársauka,
sem ég sá í kringum mig, ekki aðeins hjá mönnum, heldur einnig
hjá dýrunum. Ég hef aldrei reynt að komast hjá þessum sampísl-
um. Mér virtist auðsætt, að vér ættum allir að bera saman þá
byrði þjáningar, sem á heiminum hvílir. Þegar á menntaskóla-
árum mínum var mér ljóst, að engin skýring á því jlla í heim-
inum myndi nokkru sinni geta fullnægt mér, heldur að þær lentu
allar í orðaflækjum og miðuðu í rauninni ekki að neinu öðru
en að veita mönnum úrræði til þess að losa sig við samhlutdeild í
neyðinni umhverfis sig. Það hefur alla tíð verið mér órkiljanlegt,
hvernig annar eins hugsuður og Leibniz gat komið með jafn ris-
lága skýringu og þá, að heimurinn væri að sönnu ekki góður, en
eigi að síður-beztur allra mögulegra heima. — Hversu mjög sem
vandaspurningarnar vegna hörmunganna í heiminum leituðu á
mig, lét ég aldrei kaffærast í heilabrotum yfir því, heldur hélt ég
huganum föstum við það, að hverjum og einum af oss hljóti að
verá ætlað að binda endi á einhverja kvöl. Þannig varð mér
smátt og smátt sú hugsun að áttavita, að hið eina, tem vér get-
um skilið af þessu vandamáli sé það, að oss beri að ganga lífs-
brautina sem menn, er vilja greiða úr og græða.“
í samræmi við þessi ummæli eru þau orð Schweitzers, þar sem
hann gerir grein fyrir Kriststrú sinni. Þar segir hann: „Sá, sem
horfist í augu við Jesúm veruleikans og hlustar á, hvað hin mátt-
ugu orð hans hafa að flytja honum, hættir fljótlega að spyrja,
hvaða erindi þessi framandlegi Jesús kunni að éiga við sig. Hann
kynnist honum sem þeim, sem vill ná völdum yfir honum. Að
skilja Jesúm er að skilja, hvað hann vill og vilja það. Hin rétta
afstaða til Jesú er að vera höndlaður af honum. 011 kristin
guðrækni hefur gildi að sama skapi sem hún felur í sér hollustu
viljans við hans vilja. Jesús krefst ekki af mönnunum, að þeir
geti í orðum og hugtökum gert sér grein fyrir því, hver hann er.
Hann áleit ekki nauðsynlegt að opinbera þeim, sem hlýddu á hann,
leyndardóm persónu sinnar ... Hann krafðist þess eins af mönn-