Víðförli - 01.12.1952, Side 60

Víðförli - 01.12.1952, Side 60
ÁRNI SIGURÐSSON, stud.theol.: Köllun Skálholts Skálholt er köllun, eins og prófessor Sigurbjörn Einarsson, orðaði það á aðalfundi Prestafélags Islands í fyrra vor. Köllun^ sem ekki nær eingöngu til nokkurra áhugamanna um endurreisn hins fornhelga staðar, heldur til allra landsmanna. Allt frá því, að staðurinn hrundi til grunna laust fyrir alda- mótin 1800, hafa heyrzt raddir öðru hvoru um að hefja beri Skálholt til vegs og virðingar að nýju. En menn hafa eigi bund- izt samtökum fyrr en Skálholtsfélagið var stofnað fyrir þrem ár- um. Ollum er kunnugt um erindi Skálholtsfélagsins til þjóðarinnar. Skálholt, einn helgasti staður hennar, vegna sögu sinnar, hlaut þau örlög, sem við nútímamenn getum eigi lengur unað við, án þess að hefjast handa. Nær níu alda gamall biskupsstóll, sem var höfuð vígi kristninnar í landinu um aldaraðir og mið'-töð menn- ingarinnar sunnanlands, hefur legið í rústum hátt á aðra öld. Síðan stóll og skóli voru lögö niÖur, hefur hula hvílt yfir staðn- um, en fornhelgi hans hefur lifað í hugskoti þjóðarinnar. Nátt- úruöflin og eymd þjóðarinnar, er léku hana svo grátt á 9. tugi 18. aldar, urðu megin orsök þess, að þjóðin var svipt þessum hyrningarsteini kristinnar kirkju. Fátækt landsmanna og skiln- ingsleysi konungsvaldsins á högum íslands áttu hér einnig hlut að máli. Síðan hafa örlög þessa helga staðar orkaö djúpt á huga hvers hugsandi íslendings, sem litið hefur staöinn eigin augum * og ann kristni og sögu þjóðarinnar. Við höfum farið í felur með Skálholt, er erlénda gesti bar að garði, en allir vita hve saga stað-

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.