Víðförli - 01.12.1952, Page 64
126
VÍÐFÖRLl
víxl á, en samt samvaxnar svo, að aldrei má boða lögmálið án
gleðiboðskaparins og aldrei gleðiboðskapinn án lögmálsins.
Hvað er þá lögmál og hvað gleðiboðskapur?
Lögmálið er Guðs orð sem kvaðir og dómur.
Gleðiboðskapurinn Guðs orð sem gjöf og sýknun.
Oss er umsvifalaust Ijóst, að hér er tvennt ólíkt. Kröfur og
gjafir er sitt hvort, dómur og sýknun næsta ólíkt. Sé Guðs orð
hvort tveggja, hlýtur það að vera allflókið. Öðru máli myndi
gegna, ef Guðs orð væri annað tveggja aðeins. Ef Guð gæfi oss
t.d. aðeins skipanir, þá gætum vér hlýtt þeim og hlotið fyrir
viðurkenningu hans, eða óhlýðnast. þeim og sætt dómi fyrir. Þá
væri Guðs orð einsætt og afstaða vor til þess. Þannig túlka sumir
kristindóminn, svo sem vér brátt munum sjá. Þeir telja, að krist-
indómur sé fyrst og fremst fyrirmáli, sem vér eigum að fara
eftir. Einnig væri hugsanlegt að telja Guðs orð aðeins gjöf.
Ef Guð gefur oss allt, sem vér þörfnumst, er ekki um annað
að ræða en að þiggja. Allt, sem vér aðhöfumst sjálfir er þá synd
aðeins, sem þarfnast fyrirgefningar Guðs. Og Guðs orð er þá ein-
göngu fyrirgefning. Á þennan hátt verður kristindómurinn einnig
einsær og hnökralaus. Vér syndgum í öllu, sem vér gjörum, Guð
fyrirgefur í öllu, sem hann gjörir. Þeir eru ekki fáir, sízt nú á
dögum, sem túlka kristindóminn á þennan hátt.
En menn þurfa ekki að vera kunnugir Nýja testamentinu til
þess að sjá að slíkur einfaldaður kristindómur er ekki í samræmi
við þá mynd af Guði og manni, sem þar blasir við.
Guð Biblíunnar skipar fyrir og dæmir sérhvern, sem ekki heldur
boðorð hans. Þetta er í augum uppi. Og sé ekki tekið tillit til þessa
verður allt talið um að Guð geri ekki annað en fyrirgefa að lýs-
ingu á geðlausum hvítskegg, er lætur sem ekkert sé, til þess að
losna við frekara amstur með oss, og vér getum þá líka lifað og
látið eftir geðþótta.
Það er einnig í augum uppi, að Guð Biblíunnar gefur og fyrir-
gefur. Hvað er boðun Biblíunnar um Jesúm, komu hans, Iíf og
dauða, upprisu og himnaför, annað en ein mikil saga um gjöf
Guðs og uppgjöf saka? Það, sem þessi saga hermir, hefur gerzt