Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 6

Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 6
ræddust við, tilheyrðu aðallega tveimur stjórnmálaflokkum, annars vegar Framsóknarflokknum, hins vegar Alþýðuflokknum. Báðum var illa við, að hinn aðilinn næði hrein- um meirihluta í stjórn hins væntan- lega félags. Þessi ágreiningur varð ekki til lykta leiddur, þótt ólíklegt verði að teljast, að hann einn muni hafa komið í veg fyrir félagsstofn- unina. Til úrslita um það kom aldrei, þar sem fundur verkamanna er samkomulagsuppkastið var lagt fyrir af þeim fulltrúum þeirra. er að því höfðu staðið, felldi uppkastið með öllum greiddum atkvæðum. Þar með var frekari sameiningar- tilraunum hætt og hafinn undir- búningur að stofnun tveggja félaga. Félag það, er stofnað var fyrir forgöngu Alþýðusambandsins og verkalýðssamtakanna, nefndist Kaupfélag alþýðu. Var það starfandi um nokkurra ára skeið, en lagðist síðan niður. Þann 18. október 1931 er haldinn framhaldsundirbúningsfundur fvrir stofnun Kaupfélags Reykjavíkur. Enn á ný er það samábyrgðin, sem deilt er um. Þeir, sem fastast fylgja henni fram, eru þeir menn, sem mest og lengst höfðu starfað í sam- vinnuhreyfingu bændanna. Vísa þeir fyrst og fremst til reynslu kaup- félaganna í þessu efni og ákvæða samvinnulaganna. Andstæðingar þeirra telja samábyrgðina liins vegar óþarfa í Reykjavík vegna stað- greiðslufyrirkomulagsins og til þess eins að vekja ótta og hindra þátt- töku í félaginu. Vísa þeir til er- lendra fyrirmynda máli sínu til stuðnings. Svo fóru leikar, að til- laga um, að hið fyrirhugaða félag skyldi heyra undir samvinnulögin og þar með hafa ótakmarkaða sam- ábyrgð, var samþykkt með 28 at- kvæðum <re<m 22. Á stofnfundinum o o liinn 23. október var þó endanlega samþykkt, að samábyrgðin skyldi vera takmörkuð við 300 kr., þar sem samvinnulögin hins vegar kröfðusr ótakmarkaðrar samábyrgðar. Var til- laga um þetta efni samþykkt með 41 atkvæði, en 28 fundarmenn vildu hafa samábyrgðina ótakmarkaða. Kaupfélag Reykjavíkur heyrði því aldrei undir samvinnulögin og gat ekki fengið inngöngu í SIS vegna þessa ákvæðis laga sinna. Samábyrgðinni hafa hér verið gerð sérstaklega ítarleg skil vegna þess, að hún er það skipulagsatriði, sem langmestur styr hefur um stað- ið, og takmörkun hennar og stað- greiðslan hafa verið þau fyrirkomu- lagsatriði neytendahreyfingarinnar í Reykjavík, sem frábrugðnust hafa verið skipulagi hinnar eldri sam- vinnuhreyfingar í landinu. Að öðru leyti voru lög Kaupfélags Reykjavíkur eins og þau voru sam- þykkt á stofnfundinum 23. október 1931 mjög sniðin eftir fyrirmynd samvinnulaganna. Sjóðir skyldu vera varasjóður og stofnsjóður. I varasjóð, sem var sameignarsjóður, skvldi leggja inngangsevri, er nam 10 kr., 1% af viðskiptaveltu hvers árs, arð af viðskiptum við utanfé- 30 Félagsrit KRON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Félagsrit KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.