Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 19

Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 19
nema sú frásögn Pöntunarfélags- blaðsins, sem að framan greinir. Hins vegar eru til lög þau, sem fé- laginu voru sett á stofnfundi þess hinn 11. nóv. 1934. Nefnast þau „Samþykktir fyrir Pöntunarfélag verkamanna, Reykjavík". Þessi lög Ijera þess glögg merki, að félagið átti upprunalega fyrst og fremst að vera innkaupasamband liinna mörgu smáfélaga eða deilda. í lögunum segir, að félagið sé stofnað af pönt- unardeildum verkamanna, og nú- verandi félagsmenn þeirra greiði 2.50 kr. í inntökugjald í félagið, en nýir meðlimir 5 kr. Deildir þessar eiga að haldast, og geta nýir með- limir valið um að ganga í einhverja deildina, eða sem einstaklingar beint í félagið. Enn fremur gátu minnst 12 meðlimir stofnað nýja deild. Starfsemi félagsins átti að haga þannig, að félagsstjórn og framkvæmdastjóri sæu um öll inn- kaup í heildsölu fyrir deildirnar, og fyrir þessa starfsemi fékk félagið að leggja á þessar vörur sem svaraði 3% af innnkaupsverðinu. í hverri deild voru kjörnir svonefndir pönt- unardeildarstjórar, er áttu að taka á móti pöntunum, hver í sinni deild, koma þeim áleiðis til fram- kvæmdastjóra, taka síðan við vör- unum og sjá um dreifingu þeirra. Áttu deildarstjórarnir að fá þókn- un l'yrir úthlutun varanna, hús- næði og annað ómak, eftir því sem deildirnar ákvæðu. Yfirleitt mun þetta starf hafa verið lítið eða ekk- ert launað. Um álagningu deild- anna er ekkert getið í lögunum, en í sambandi við viðskiptabannið kemur það í ljós, að álagning á pöntunarviðskipti sé 5%, og má af því ráða, að deildirnar hafi lagt á 2%, fyrir utan álagningu félagsins. Samkvæmt þessu var því ekki gert ráð fyrir álagningu á pöntunarvör- ur nema rétt fyrir kostnaði, og var því ekki um neina arðsúthlutun að ræða. í lögunum var ráð fyrir því gert, að félagið ræki eina sölubúð, en með samþykki fulltrúafundar mátti fjölga þeim. Á vörur þær, er seldar voru í búðunum skyldi ekki leggja meira en lægstu kaup- kaupmannaálagningu, en veita síð- an félagsmönnum 10% afslátt gegn því, að þeir sýndu skírteini. Enginn arður var heldur greiddur af búð- arviðskiptum, og fór allur tekjuaf- gangur til sjóða. Sjóðir skyldu vera tveir, varasjóður og félagssjóður. I sjóði þessa, hvorn um sig, rann helmingur af inntökugjaldi, er var 5 kr., og helmingur arðs, og þar að auki í varasjóð U/4% af viðskipta- veltu, annarri en pöntunarveltu. Fé- lagssjóð skyldi nota í rekstri, en varasjóð ávaxta í tryggri peninga- stofnun. Eins og sjá má af þessu var félaginu með þessu móti tryggt mjög lítið eigið starfsfé. Ur þessu var að nokkru reynt að bæta með því að gera hverjum félagsmanni að skyldu að kaupa eitt 10 króna vaxtabréf. Skyldu bréfin bera 4%% vexti og innleysast eftir tvö ár, nema fulltrúafundur tæki aðrar ákvarð- Félagsrit KRON 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Félagsrit KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.