Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 66

Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 66
fyrir og samþykkt tillaga frá Arnóri Sigurjónssyni í þá átt, að stjórnin tæki þetta mál strax til vandlegrar athugunar. Þegar saumastofan var flutt frá Aiþýðuhúsinu að Grettisgötu 3 ár- ið 1942, notaði stjórnin tækifærið til þess að koma óskum félagsmanna í þessu efni í framkvæmd og setti á stofn myndarlega bókabúð í Al- þýðuhúsinu. Bókaverzlunin hefur frá upphafi verið félaginu til sóma og gefið góðan arð, enda bókaút- gáfa og bókasala verið gífurlega mikil undanfarin ár. Skipaverzlunin Herðubreið Eftir að hið erlenda setulið kom til landsins höfðu skip, sem hingað komu á vegum setuliðsins allmikil viðskipti við félagið. Það rak fljótt að því, að þessari skipa- verzlun varð illa við konrið í búðum félagsins. Hún var með öðrum hætti en venjuleg verzlun við einstakl- inga, einkum vegna þess, að um var að ræða sérstakar vörutegundir, sem venjulega var keypt allmikið af. Þar sem félagið átti kost á hentugu hús- næði við Hafnarstræti 4 fyrir þessa starfsemi, var ákveðið að setja þar á stofn skipaverzlun árið 1941, og var hún kölluð Herðubreið. Sú hugmynd lá einnig á bak við, að verzlunin annaðist, er tímar liðu fram, viðskipti við íslenzk skip. Þessi tilraun bar þó ekki þann árangur, að rétt þætti að halda henni áfram, og var verzlunin lögð niður 1943. Það reyndist erfitt að reka þessa verzlun samkvæmt stað- greiðslureglu félagsins og fleiri ann- markar voru á. Stjórnin taldi þó, að verzlun á þessu sviði hlyti að verða framtíðarhlutverk félagsins, þótt sennilega þyrfti til þess einhverjar breytingar á starfsháttum. Haustmarkaður Haustið 1940 var tekin upp sú nýjung í starfsemi kaupfélagsins, að komið var upp liaustmarkaði með ýmsar innlendar vörur svo sem síld, harðfisk, saltfisk, garðamat allskon- ar og kjöt af ungum hrossum. Þessi nýjung stefndi að því að lækka dreif- ingarkostnaðinn eins rnikið og frek- ast var unnt. Þessi haustmarkaður hefur síðan verið haldinn á hverju ári og gefizt vel. Afgreiðslan er þannig, að kaup- endurnir verða sjálfir að sækja vör- urnar, og eru þær ekki seldar nema í allstórum stíl miðað við venjulega búðarafgreiðslu. Sjálfsölubúðin Árið 1942 beitti þáverandi fram- kvænrdarstjóri félagsins, Jens Fig- ved, sér fyrir því, að tilraun var gerð með nýtt afgreiðslufyrirkomulag að amerískri fyrirmynd í einni af búð- um félagsins. Fyrirkomulagið var þannig, að allar matvörur og ný- lenduvörur í búðinni voru vegnar sundur fyrirfram og raðað aðgengi- lega í búðina. Viðskiptamennirnir afgreiddu sig síðan að mestu sjálfir og greiddu við útgöngu. Var búizt við því, samkvæmt hinni amerísku 96 Félagsrit KRON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Félagsrit KRON

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.