Kjarnar - 01.02.1948, Blaðsíða 79

Kjarnar - 01.02.1948, Blaðsíða 79
þá staðreynd, sem kvenlegur næm- leiki hennar hrópaði þó hástöfum um. Jessi og Zena frænka voru auð- sjáanlega tekin að hafa óþarflega mikinn áhuga hvort fyrir öðru. Hann blátt áfram stökk upp af stólnum, þegar hún kom inn í stof- una. Hann kallaði hana „kæru Zenu“ í öðru hverju orði, en það cr þó ávarp, sem fáir eiginmenn nru vanir að nota við mágkonur sínar. Það var líka auðséð, að Zena snerist um hann eins og býfluga um blóm. Hun lagaði hálsbindið hans af mikilli altið, eða lagfærði svæfil- inn undir höfði hans og burstaði ryk af jakkanum hans. Slíkt hefði árciðanlega ergt hann, ef einhver annar hefði gert það. Frú Rogers handlék saumana vcnju fremur harðneskjulega. Hún var að reyna að sækja í sig veðrið. Hún vonaði, að sér gæfist tækifæri til þess að segja Jessa ærlega til syndanna og reka Zenu síðan burt. Hún vissi þó með vissu, að hún mundi hvorugt gera, hvað sem í skærist — nema eitthvað enn verra kæmi þá fyrir. f’að var óvenjulega heitt 1 veðri, °g hitinn jók óróa hennar. Maður hennar hefði þó orðið harla undrandi, ef hann hefði vitað um hugsanir hennar þessa stund- ina. Honum féll vel við Zenu, það gerði hann sér ljóst. Hún var svo lík Gústu i eldmóði sínum, skap- hita og hverflyndi. Á hinu langa Nr. 1 skeiði hjónabandsins var það ekki andlitsfegurð eða vaxtarprýði kon- unnar, né heldur greind eða glað- værð, sem hélt hylli eiginmannsins fastri, heldur geðbrigði hennar, svo að því væri líkast sem hann væri giftur mörgum ólíkum persónum, sem ættu bústað í sama líkama, en réðu þar húsurn til skiptis. Þessa stundina var hann að lag- færa ýmislegt við ávaxtatrén í garð- inum. Hann byrjaði oft á því snemma á vorin, en tókst sjaldan að Ijúka því alveg í tæka tíð. Zena stóð þar skammt frá í skugga trjánna og rétti honum þau áhöld, sem hann þurfti að nota hverju sinni. „En sá hiti. Hann ætlar alveg að gera út af við mann. Ég hef aldrei lifað eins heitan júnímánuð," sagði herra Rogers. Hann þerraði enni sitt með vasaklút, nuddaði af hönd- um sér í buxnaskálmina og sagði síðan: „Réttu mér naglbítinn, Zcna.“ - Hún greip hann og rétti upp til hans, en stöðvaði þó aldrei orða- strauminn. „Ó, þannig var það á þeim gömlu og góðu dögum, Jessi Ég var ung ekkja þá, og margir menn voru mér góðir. Þeir dagar koma aldrei aftur. Til allrar ham- ingju átti ég nóga peninga, svo að ég þurfti ekki að vera neinum háð. O-jæja, ég býst við, að við eldumst öll.“ Hún andvarpaði þungt og tók aftur við naglbítnum. 77 KJARNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Kjarnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.