Morgunblaðið - 03.04.1986, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986
■ vH'; iÍJHA i.,IbtJAU.UL^'<LH.GIGAJai I -
ÚTVARP/SJÓNVARP
... smyr höfuð þitt
Ástandið í sjónvarpsmálum
landsmanna hefír verið heldur dap-
urlegt um páskana. Þarf ekki að
fara mörgum orðum um þá einsemd
er mörgu öldruðu fólki og einstæð-
ingum er búin þá ekki nýtur við
sjónvarpsins. Þeir sem betur eru
settir geta trítlað inná myndbanda-
leigurnar eða setið við gervihnatta-
sjónvarpið. Starfsmenn útvarpsins
hafa líka staðið sig ágætlega í sjón-
varpsleysinu. Annars held ég nú að
lokun útvarps- og sjónvarps hljóti
senn að heyra til liðinni tíð. Vonandi
rísa hér fleiri sjónvarpsstöðvar er
geta greitt sínum starfsmönnum
mannsæmandi laun og neyða þar
með ríkissjónvarpið til að afnema
láglaunastefnuna. Er fyrirsjáanlegt
að hæfír menn á sviði fjölmiðlunar
verða mjög eftirsóttir hér sem
annarsstaðar og þar með mun lög-
mál framboðs og eftirspumar
hækka kaupið fremur en staða
manna í verkalýðsfélagi. Ég held
að flestir hljóti að fagna þeirri þróun
að hæfíleikar manna og sérmennt-
un ráði kaupinu fremur en staða í
verkalýðsfélagi. Færum valdið frá
verkalýðsleiðtogunum til þeirra er
njóta þjónustunnar og þá mun ekki
framar einmana fólk á landi voru
híma fýrir framan auðan skjáinn á
stórhátíðum.
Barnadagskráin
Þrátt fyrir brotthlaup tækni-
manna tókst þeim sjónvarpsmönn-
um að fleyta dagskránni nokkur
kvöld. En ég verð að segja eins og
er að einn hópur þjóðfélagsþegna
gleymdist næstum alveg í þeirri
dagskrá, auðvitað blessuð bömin.
Þó má ekki gieyma ágætri páska-
stund Jóhönnu Thorsteinsson á
páskadag en var ekki hægt að
skjóta inn nokkmm bamamyndum
yfir hátíðina? Undirritaður leigði til
dæmis á ónefndri myndbandaleigu
prýðilega bamamynd: Flóttann
langa eða Watership down fyrir
aðeins 30 krónur. Það þarf varla
rafeindavirkja til að skella slíkri
spólu á myndbandstæki og ýta á
„play“? Tveggja ára sonur minn
íærði þá list nú um páskana.
Jesús frá Nasaret
Ég vil ekki láta hjá líða að þakka
sjónvarpinu fyrir að sýna hina stór-
kostlegu sjónvarpsmynd: Jesús frá
Nasaret því eins og einn ágætur
maður sagði þá varð þessi mynd
stórfenglegri með hverjum nýjum
þætti. Tel ég persónulega seinasta
þáttinn, sjálfa krossfestinguna,
meistaraverk innblásið af heitri trú-
artilfínningu. Annars kom mér
mest á óvart í þessum þáttum að
Júdas skyldi sýknaður af framsali
Krists. Ábyrgð þess verknaðar var
færð á herðar öldungaráðsins er
hélt dauðahaldi í bókstafínn líkt og
Rómveijamir í sverðið. Kristur var
hins vegar sýndur í mynd Zeffirelli
sem ákaflega mennskur einstakl-
ingur, fullur af leik og skopi og
tiltölulega frjáls gagnvart siðum og
venjum samfélagsins en samt gaf
hann sér ætíð tíma til að hlusta
eftir rödd föðurins. Persónulega
kunni ég vel við þessa túlkun Zeffí-
relli en ýmsir þeir sem nú um stund-
ir keppast við að sýna trú sína á
meistarann, hafa í ýmsu horfíð til
hinna stífu siðvenja öldungaráðsins,
þar gildir að klæðnaðurinn sé óað-
fínnanlegur, tónlistin hnökralaus
svo skilja megi hina hólpnu frá
syndurunum. En hver er ég að
dæma þetta fólk, erum við ekki að
leita að ljósinu þótt leiðimar að
markinu séu ólíkar og myrkrið er
jú alls staðar svo nálægt. En segir
ekki Kristur: Sé auga þitt heilt,
mun allur líkami þinnbjartur.
Ólafur M.
Jóhannesson
Fjöl-
breytt
klassík
í dag
Sígilda tónlistin er á sínum
stað í dagskrá rásar 1. Kl.
11.10 eru morguntónleikar
þar sem Kim Sjögren og
Lars Hannibal leika á fíðlu
og gítar lög eftir Jacques
Ibert, Erik Satie, Emile
Pressard, Gabriel Fauré og
Emil Desportes. Þá mun
blásarasveit Tónlistarskól-
ans í Miinchen leika þætti
úr „Töfraflautunni" eftir
Wolfang Amadeus Mozart.
Kl. 20.30 verður útvarp
frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Há-
skólabíói 15. mars sl. þar
sem gríski píanósnillingur-
inn Dimitris Sgouros leikur
með hljómsveitinni hinn
magnaða Píanókonsert nr.
1 í b-moll eftir Fjotr Tsjaí-
kovskí. Stjómandi er Kar-
olos Trikolidis.
Kl. 23.25 í kvöld er svo
kammertónlist. Leikin
verða þijú verk. Fyrst er
Sónata í F-dúr op. 17 eftir
Ludwig van Beethoven
leikin af Heinz Holliger og
Jiirg Wyttenbach á enskt
hom og píanó. Þá leikur
Ib Lanzky-Otto á valdhom
Alarme op 11 eftir Aake
Hermanson. Að lokum er
Sónata eftir Paul Hindem-
ith sem þeir Ib og Wilhelm
Lanzky-Otto leika á vald-
hom og píanó.
Af þessari upptalningu
má sjá, að það kennir
Dimitrís Sgouros
margra grasa í flutningi
útvarpsins á æðri tónlist
svokallaðri og ásakanir um
„eilíft sinfóníugarg" eiga
við lítil rök að styðjast.
Edda Þórarinsdóttir
gestur Ragnheiðar
BHB Gestagangur
01 00 verður á rás 2 í
£ M-—~ kvöld. Gestgjafí
verður Ragnheiður Davíðs-
dóttir en gestur Edda Þór-
arinsdóttir leik- og söng-
kona.
„Þessir þættir eru á
dagskrá öll fímmtudags-
kvöld á þessum tíma,"
sagði Ragnheiður. „Þeir
eru byggðir upp sem rabb-
þættir, áhersla lögð á tal-
málið fremur en tónlistina.
Ég fæ yfírleitt einn gest
og rabba við hann og hann
sér um að velja tónlistina,
það má segja að með tím-
anum hafí farið fækkandi
þeim lögum sem skotið er
inn í samræðumar því það
er frekar tilhneiging til
þess að láta tónlistina sitja
á hakanum en þagga niður
í fólki sem hefur. frá ein-
hveiju skemmtilegu að
segja.
Edda hefur ábyggilega
frá ýmsu áhugaverðu að
segja. Hún hefur það fram
yfír marga leikara, að hún
syngur eins og engill og á
litríkan feril að baki. Hún
söng lengst af með tríóinu
Þremur á palli, sem varð
til þegar „Þið munið hann
Jörund" var fært upp. Svo
sló hún rækilega í gegn
norður á Akureyri í fyrra-
vetur í hlutverki Edit Piaf
eins og margir eflaust
muna. En fyrst held ég hún
hafí vakið verulega athygli
í leikritinu „Vér morðingj-
ar“ eftir Guðmund Kamb-
an. Eitthvað af þessu ber
örugglega á góma, en hins
vegar get ég ekki sagt
nákvæmlega hvemig rabb-
ið verður því það verður
sent beint út eins og venjan
er með þessa þætti og
ýmsar spumingar vakna á
Edda Þórarinsdóttir.
meðan á spjallinu stendur,"
sagði Ragnheiður Davíðs-
dóttir.
Með Sveini Einarssyni til ísafjarðar
■■■■i 1 kvöld býðst
OftOO hlustendum rás-
£mi\J~~m ar 1 að fara í
ferð með Sveini Einarssyni.
Þættir hans eru á dagskrá
hálfsmánaðarlega.
„í kvöld verð ég með
þátt um fsaflörð," sagði
Sveinn. „Ég mun skyggn-
ast þar um, segja dálítið
frá sögu staðarins. ísa-
fjörður hefur verið mikill
tónlistarbær, þar hafa
starfað mörg tónskáld og
látið í sér heyra. Ég mun
leika ísfirska tónlist með
rabbinu," sagði Sveinn.
Hann hefur komið víða
við í þáttum sínum; síðast
var hann í Venezúela. „Það
er ágætt að vera núna á
íslandi. Ég hef reynt að
hafa þetta eins og ungl-
ingaþætti, fjölbreytt.
Stundum hef ég verið að
labba héma í Reykjavík,
jafnvel í kirkjugarðinum,
þess á milli hef ég brugðið
mér til Nepal eða einhverra
annarra mjög fjarlægra
landa en líka komið við f
Evrópu, til dæmis í París
og Kaupmannahöfn," sagði
Sveinn Einarsson.
Frá fsafirði.
UTVARP
Fimmtudagur
3. apríl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.16 Veöurfregnir
9.00 Fréttir
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Katrín og Skvetta"
eftir Katarinu Taikon. Einar
Bragi les þýðingu sína (5).
9.20 Morgúntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.46 Þingfréttir.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir. Tónleikar
10.25 Lesið úrforustugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Égmanþátið"
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liönum
árum.
•11.10 Morguntónleikar
a. Kim Sjögren og Lars
Hannibal leika á fiðlu og
gítar lög eftir Jacques Ibert,
Erik Satie, Emile Pressard,
Gabriel Fauré og Emil De-
sportes.
b. Blásarasveit Tónlistar-
skólans í Munchen leikur
þætti úr „Töfraflautunni"
eftir Wolfgang Amadeus
Mozart.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.46 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Um-
hverfi. Umsjón Anna G.
Magnúsdóttir og Ragnar
Jón Gunnarsson.
14.00 Miödegissagan:
„Skáldalíf í Reykjavík" eftir
Jón Óskar. Höfundur les
fyrstu bók: „Fundnir snilling-
ar” (3).
14.30 Áfrívaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
16.16 Frá Suðurlandi. Um-
sjón: Hilmar Þór Hafsteins-
son.
16.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 „Fagurt galaði fuglinn
sá“. Sigurður Einarsson sér
um þáttinn.
17.00 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón: Sigrún Bjömsdóttir.
Tónleikar.Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.60 Daglegtmál
Sigurður G. Tómasson flytur
þáttinn.
20.00 Á ferð með Sveini Ein-
arssyni.
20.30 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar (slands i Há-
skólabíói 15. mars sl.
Stjórnandi: Karolos Trikoli-
dis. Einleikari: Dimitris
Sqouros. Píanókonsert nr. 1
í b-moll eftir Pjotr Tsjaíkov-
skí.
21.16 Ljóöaþáttur í umsjá
Berglindar Gunnarsdóttur.
„Ljóðið lýsir innsta eðli tím-
ans“. Berglind tekur saman
þátt um skáld á Spáni.
21.46 Tónleikar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.16 Veðurfregnir. Orð
kvöldsins.
22.26 Fimmtudagsumræðan
— Framleiðslutakmörkun í
landbúnaöi: Orsök og af-
leiöing. Stjórnandi: Atli
RúnarHalldórsson.
23.26 Kammertónlist.
a. Sónata í F-dúr op. 17
eftir Ludwig van Beethoven.
Heinz Holliger og Jurg Wytt-
enbach leika á enskt horn
og píanó.
b. „Alarme" op. 11 eftir
Aake Hermanson. Ib
Lanzky-Otto leikur á vald-
horn.
c. Sónata eftir Paul Hindem-
ith. Ib og Wilhelm Lanzky-
Otto leika á valdhorn og
píanó.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
3. apríl
10.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
.son og Kristján Sigurjóns-
son.
12.00 Hlé
14.00 Spjallogspil
SJÓNVARP
19.16 Á döfinni. Umsjónar-
maður Karl Sigtryggsson.
19.26 Endursýnt barnaefni.
19.60 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir, veöur og dag-
skrárkynning.
20.40 Rokkarnir geta ekki
þagnaö. Hljómsveitin Kikk.
Tónlistarþáttur fyrir táninga.
Umsjón: Jón Gústafsson.
Stjórn upptöku: Björn Emils-
son.
21.00 Þingsjá.
FÖSTUDAGUR
4. apríl
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
21.16 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður: Ólafur
Sigurðsson.
21.60 Sá gamli. (Der Alte).
2. Illur fengur illa forgengur.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur f fimmtán þáttum.
Aöalhlutverk: Siegfried
Lowitz. Þýðandi Kristrún
Þóröardóttir.
22.66 Brotinn spegill. (The
Mirror Cracked).
Bresk bíómynd frá árinu
1980, byggð á sögu eftir
Agöthu Christie. Leikstjóri
Guy Hamilton. Aðalhlutverk:
Angela Lansbury, Geraldine
Chaplin, Rock Hudson,
Elizabeth Taylor, Tony Curt-
is, Kim Novak og Edward
Fox. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
00.60 Dagskrárlok.
Stjórnandi: Ásta R. Jóhann-
esdóttir.
16.00 Djassogblús
Vernharður Linnet kynnir.
16.00 i gegnum tíðina
Þáttur um íslenska dægur
tónlist í umsjá Jóns Ólafs-
sonar.
17.00 Einu sinni áðurvar
Bertram Möller kynnir vin-
sæl lög frá rokktímabilinu
1955-1962.
18.00 Hlé
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásartvö
Páll Þorsteinsson kynnir tíu
vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiöi Davíðsdóttur.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: SvavarGests.
23.00 Þrautakóngur
Spurningaþáttur í umsjá
Jónatans Garðarssonar og
Gunnlaugs Sigfússonar.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.