Morgunblaðið - 03.04.1986, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986
Um markaðsmál
landbúnaðaríns
eftir Gunnar Pál
Ingólfsson
Um markaðsmál
landbúnaðarins
Á 600 hundruð manna bænda-
fundi á Suðurlandi 17. febrúar sl.,
og síðan daginn eftir í utanda-
gskrárumræðu á Alþingi, kom fram
vegna villandi upplýsinga mjög
mikil vanþekking á markaðsmögu-
leikum dilkakjöts á erlendum mörk-
uðum.
Á þessum fundum var fullyrt af
hálfu landbúnaðarráðuneytis og
forystumönnum landbúnaðarmála
að útflutningur á lambakjöti skilaði
ekki neinu til bænda og væru þau
skil fyrir neðan núllið. Hér er fýrst
og fremst byggt á upplýsingum frá
einum aðila, þ.e. búvörudeild SÍS,
en lítið gert til að afla upplýsinga
frá öðrum aðilum sem unnið hafa
að markaðsmálum undanfarin ár.
Ég tel nauðsynlegt að upplýsing-
ar komi fram um ýmsa þætti þessa
máls til að menn átti sig á þeim
möguleikum sem fýrir hendi eru.
Og mun ég setja hér fram nokkur
dæmi sem ættu að skýra að nokkru
Félagsmálaskólí alþýðu
11\ i\i) kannt þu l'yrir
þcr í rundarstört'uni o$»
íranisogn? I Ivaö vcist þu
um vcr'kalýöslírcN linji-
una. starl hcnnar og
sögu? Áttu auövclt nicö
aö koma íram ;i l'uiulum
og samkoníum?
'I ckuröu þíitt í l'clagslil'i?
Viltu Ixcta þckkingu
þína i hacíra'öi. I'clags-
lr;cöi ou vinnurclti?
Vcitt cr tilsögn i
þcssum ou oörum
hagnvtum grcinum a I.
önn l'clacsmálaskóla
alþyöu. scm
I.önn 13.—26. apríl 1986
skólí
fviir
Þíg?
MFA
verður í Olfusborgum
13,—26. apríl nk. Þá
eru u duusknínni
menniuunr- uu
skcmmlikv iilcl utik
hciinsoknu i sloliianiroi;
iyriilii’ki. I clausnic’nn
Al|i\ðusanibancls
Islands ciua rctt ;i
skölavist. I lamarksl jöltli
a önncr25
þátttakcndur. I 'msöknir
um skolav isi þurla aö
hcrast skril'stol'u Ml A
fyrir 10. apríl. Nánari
U|)|)l\sin^ar cru vcittar a
skrilstolu Ml A.
(ircnsásvegi 16. simi
84233.
Menningar-
og
fræðslusamband
alþýðu
ÞEKKING, STARFOG STERKARI VERKALÝÐSHREYFING
getr®ína-
VINNINGAR!
31. leikvika - leikir 29. mars 1986
Vinningsröð: 2 X 1-X X X-X X 1-2 1 2
1. vinningur 12 réttir
53205(4/11)
c,649.975
2. vinningur: 11 réttir, kr. 39.794,-
50905+ 74263+
70319+
*=2/11
Kærufrestur er til mánudagsins 21. aprí) 1986 kl. 12.00 á hádegi.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni (
Reykjavfk. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stotninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.
þá möguleika sem eru á erlendum
mörkuðum. Og jafnframt að skýra
þau mistök sem gerð hafa verið á
undanfömum árum í markaðssetn-
ingu, innanlands og utan.
1) Það er staðreynd að á erlendum
mörkuðum er kjöt sem hefur
verið í frystigeymslum lengur
en 6 mánuði metin sem 3ja
flokks vara og skiftir þá ekki
máli hver upphafleg flokkun er.
Það þýðir að ekki fæst nema
30—35% mögulegs verðs. Sama
gildir um kjöt sem er óhreint,
hárugt eða illa snyrt. Munur á
frosnu og fersku kjöti í verði
getur orðið allt að 20% frosnu
kjöti í óhag.
Dæmi. Árið 1983 fékk skoskur
sláturhúsaeigandi fyrir ferskt kjöt
í gámum 11—12 DM á Þýskalands-
markaði, þ.e. kr. ísl. 206.- (DM
11.50). Þetta gildir til byijun júní.
Um miðjan júní lækkaði verðið
niður í 8—9 DM eða ísl. kr. 152.-.
Á sama tíma erum við að flytja út
kjöt á sömu markaði fyrir 4—6 DM
þ.e. ísl. kr. 89.50 (DM 5.0). Á sama
tíma bauðst undirrituðum 14 DM
þ.e. ísl. kr. 250.70 fyrir kótilettur
og heil læri. Það tilboð kom frá
grískum veitingastöðum í Þýska-
landi.
2) Á Bandaríkjamarkaði er neyslu-
tímabil lambakjöts septmber til
apríl. Með réttum vinnubrögð-
um má fá allt að 50—60% skila-
verð fyrir kjötið á þessu tíma-
bili. Á öðrum tímum er vonlítið
að selja lambakjöt á þennan
markað nema fyrir mun lægra
verð. Þá er fyrst og fremst átt
við neytendamarkað (Super-
markets). En eins og kemur
fram í lið eitt þá er það nokkuð
að veitingastaðir greiða nokkuð
hærra verð fyrir lambakjöt en
stórir heildsalar og stórmarkað-
ir.
Dæmi: í verðlista frá Hótel,
Restraurant institution í Bandaríkj-
unum, gefnum út 23. maí 1985,
má sjá verð allt að $10.50 á sér-
skomum kótilettum. Þegar tekið
er tillit til þess að laun kjötskurðar-
manna í Bandaríkjunum eru um
Gunnar Páll Ingólfsson
„Það er nokkuð ljóst að
val á mörkuðum undan-
farin ár hefur verið
rangt.“
$11.00 eða ísl. kr. 455.- á tímann
en hér heima $3.50—4.00 á tímann
ísl.kr. 155.25 ($3.75) gefur auga-
leið að hagkvæmt er að vinna kjötið
hér heima. Á viðurkenndum veit-
ingastað í New York í júlí 1985
kostuðu 3 valdar lambakótilettur
jafnmikið og dýrasta nautaskeikin
á matseðlinum eða $24.95 fyrir
utan kartöflur, grænmeti og saltat.
Val á mörkuðum
Það er nokkuð ljóst að val á
mörkuðum undanfarin ár hefur
verið rangt. Megin áherslan hefur
verið lögð á að fara auðveldustu
leiðina, þ.e. hlassasala til stórra
heilsöluaðila sem leggja áherslu á
að fá vöruna á lágu verði, en leggja
minna uppúr gæðum. Enda varla
um aðra viðskiptaaðila að ræða ef
miðað er við verkun kjötsins hér
heima.
Verkun kjötsins
Það er staðreynd að hvort sem
skrokkurinn er með ullarlagð í bóg-
krika eða lambaspörð í endaþarms-
opi fær sláturleyfishafinn tryggt
full verð fyrir vöruna. Þeir skrokkar
eru aðeins merktir til endurskoðun-
ar sem hafa mjög hárugt yfirborð
eða sem gor hefur lent á ytra byrði
eða í bijóstholi. Á meðan að slátur-
leyfíshafanum er tryggt fullt verð
hvemig svo sem verkunin er teljast
umbætur á því sviði til kostnaðar-
auka. Er því lítil von til að lögð
verði veruleg áhersla á vöruvöndun
meðan að þetta fyrirkomulag ríkir.
Sölumennska —
Markaðsleit
Sá almenni misskilningur hefur
komið fram í máli manna, að leita
þurfí til viðskiptamenntaðra manna
til að markaðssetja lambakjötið.
Sannleikurinn er sá að viðskipta-
fræðimenntun kemur að ákaflega
takmörkuðu gagni í markaðsleit
fyrir matvæli. Sú þekking sem þarf
fyrst og fremt að vera fyrir hendi
er: vöruþekking, þekking á hráefni
og vinnslu + nýtingu og síðast en
ekki síst reynslu í eldhússtjómun
(kitchen management). Þetta em
þeir kostir sem sölumaður í kjötvör-
um þarf að vera gæddur til að
skynja þann markað sem er fyrir
hendi. Þegar hann hefur skilað sínu
verki kemur til kasta viðskiptafræð-
ingsins að meta þá kosti sem uppá
borð koma. En hann (viðskipta-
fræðingurinn) þarf einnig að vera
mjög vel heima í vinnslu og kostn-
aðarþáttum sem og hvað er að ske
almennt á matvælamörkuðum. Við
eigum slíka menn, en þeirra þekk-
ing hefur mætt litlum skilningi hvað
þá heldur að til þeirra hafí verið
leitað af þeim aðilum sem hafa
vandan á hendi.
Vöruþróun
Vömþróun er einn mikilvægasti
þátturinn í framsetningu vöm á
markað. Það verður því að teljast
nokkuð merkilegt hversu lítið hefur
borið á góma sá sofandaháttur sem
ríkt hefur í þeim efnum varðandi
kjötið. Það verður einnig að teljast
merkilegt hversu litlu fé hefur verið
varið í þann þátt meðan að milljörð-
um hefur verið varið til að viðhalda
vandanum. Það er því spuming um
hvort þær aðgerðir sen mú er beint
gegn bændum hefðu verið eins sár-
ar ef þessum þætti hefði verið sinnt
sem skyldi. Um það verður fjallað
í næstu grein.
Höfundur er framkvæmdastjóri
í Reykjavík.
Fréttabréf úr Bjarnarfirði:
Grásleppuvertíð að hefjast
og voryrkja í fullum gangi
Bjarnarfirði
VIKU af marz var veðurblíðan
hér svo mikil, að vegir voru
farnir að þiðna og spillast. Var
þetta einkum á köflum vegarins
hér í Bjamarfirði og fyrir botni
Steingrímsfjarðar.
Það kom fljótt í ljós hversu miklu
fyrr gamlir og óuppbyggðir vegir,
sérstaklega á votlendi, spilltust og
urðu erfíðir yfírferðar fyrir smærri
bíla. Kvíðvænlegt þótti að eftir var
að aka út áburði bæði hingað í
Bjamarfjörð og einnig á Selströnd-
ina. En svo fór að frysta á ný og
brátt var allt „slabbið" frosið aftur.
Um miðjan marz var hér ágætis
veður. Hlustuðum við á lýsingar á
hálku og ófærð á suð-vesturhom-
inu, en hér var sólskin og aðeins
smá él öðm hvora.
Grásleppuvertíðin er nú að hefj-
ast. Hafa ýmsir bændur hér um
slóðir, verið all dijúgir við þessar
veiðar og selt hrogn fyrir hundrað
þúsunda á vori hveiju. Þetta er þó
mjög misjafnt og t.d. á síðasta vori
urðu menn fyrir þungum búsiijum.
Þá má segja að veðrið hafí séð fyrir
lokum grásleppuvertíðarinnar, fyrr
en efni stóðu til. Gerði þá langan
óviðrakafla og voru netin orðin ónýt
er þau vom tekin úr sjó. Hefír því
hver og einn orðið að koma sér upp
nýjum netum fyrir þessa vertíð. Var
þetta þó nokkuð mikið tjón.
Þá hafa menn verið óhressir yfír
sölumálinum. Hrognin eru lögð inn
í Kaupfélagið í umboðssöiu, en
fullnaðar uppgjör fyrir þau fæst þá
ekki fyrr en ári seinna. Hýggja
því nokkrir þeirra er veiðamar
stunda, að heppilegra verði að
stofna til eigin aftirðasölu. Fæst þá
strax greitt upp í hveija saltaða
tunnu, auk þess sem greiðsla eftir-
'stöðva fer fram 2—4 vikum eftir
útskipun vörannar. Gefur það auga
leið, hversu mikið hagkvæmara
slíkt er, á þeim tímum sem vextir
af peningum em jafn miklir og verið
hefir að undanfömu, og er raunar
enn. Á hér við málshátturinn;
„Mörg er búmanns raunin".
Það má því með sanni segja, að
voiyrkja sé að verða í fullum gangi
hér um slóðir. Rúningu er að verða
lokið. Verið að dreyfa áburði til
bænda. Grásleppuvertíðin hafín og
fjölgunin í refabúunum að fara af
stað. Hefðu feður okkar talið það
ótrausta spádóma, hefði þeim verið
sagt, að búskaparhættir mundu
breytast í þetta horf á næstu fímm-
tíu árum, jafnvel þeir sem framsýnir
vom.
Fiskeldi er hér á einu býli, að
Ásmundamesi. Að vísu er það ekki
í stóram stíl. Þá hafa eigendur
jarðarinnar Goðdals, sleppt laxa-
seiðum í Goðdalsá. Þar sem Bjam-
aifyarðará og Guðdalsá mætast
tekur svo við Ármótahylur. Vafa-
laust hefír þessi slepping seiða haft
sín áhrif á aukpa laxagengd í Bjam-
arfjarðará, en um hana verður
laxinn að fara á leið til uppeldis-
stöðvanna.
Þegar þess er gætt hversu mikið
er af heitu vatni hér um Bjamar-
fjörð og nágrenni, vekur það
kannske undmn að ekki skuli vera
farið að nýta aðstæðumar til að
koma hér upp fískirækt, Á Sel-
ströndinni er t.d. að fínna um 90
gráðu heitt vatn við sjávarmál.
Gefur það auga leið hve hagkvæmt
það væri til fiskiræktar. Þar sem
bæði er sjór og ferskt vatn á sama
stað.
Fréttaritari