Morgunblaðið - 03.04.1986, Blaðsíða 26
26
. MQRQUNBLADID, FIA1MTUJ3 AGUR g. APRÍL1.986
Lengsta flug
Airbus-þotu
Flugmenn bandariska flugfélagsins Delta Airlines eru sjaldnast kærðir fyrir brot á reglum banda-
risku flugmálastjórnarinnar. Alþekkt er að mjög góður starfsandi ríkir innan þessa flugfélags.
Bandaríkin:
Flugmenn Delta-
félagsins öruggastir
Flufl
Gunnar Þorsteinsson
Flugmenn bandariska flug-
félagsins Continental Airlines
voru oftar kærðir en koilegar
þeirra hjá öðrum flugfélögum
fyrir brot á reglum bandarisku
flugmálastjórnarinnar, FAA.
Flugmenn Delta Airlines fengu
fæstar kærur á sig ef marka
má nýlega athugun sem gerð
var vestra á þessum málum.
Frá árinu 1980 hafa banda-
rísku flugmálastjóminni borist
1.152 kærur vegna ýmissa brota
flugmanna „stóru“ flugfélaganna.
Reiknað var út meðaltal með þvf
að bera saman kæru^ölda á hend-
ur hveiju flugfélagi og Qölda
fluga þess. Hlutfallslega brutu
flugmenn Continental-félagsins
reglumar oftast, næstir komu
flugmenn Midway Airlines og svo
þeir hjá American Airlines.
Á þessu tímabili lenti Continen-
tal-félagið einmitt í miklum erflð-
leikum og var mjög í sviðsljósinu
vegna óróa innan félagsins. Nýir
eigendur sögðu öllu starfsfólki
upp og endurréðu síðan flesta á
allt að helmingi lægri launum.
Flugmennimir bmgðust hart við
þessum uppsögnum og fóru í langt
verkfall sem félagið svaraði með
því að ráða nýja og óreynda flug-
menn. Þetta er eflaust hluti skýr-
ingarinnar á því hvað
Continental-félagið kom illa út úr
athugun þessari.
Ails vom 17 flugfélög tekin til
athugunar. Flugmenn TWA,
USAir, Frontier Airlines og Pan
American vom kærðir oftar en
meðaltal athugunar gaf til kynna.
Flugmenn Delta-félagsins fengu
á sig fæstar kæmr. Næst fæstar
kæmmar fengu flugmenn Ozark
Airlines og fast á eftir fylgdu
flugmenn Republic Airlines.
Samkv. athuguninni barst
kæra á hendur einhverju hinna
17 flugfélaga að meðaltali á
31.956 fluga fresti. Flugmenn
Delta-félagsins fengu á sig kæm
á 57.490 fluga fresti að meðaltali
á meðan þeir hjá Continental vom
kærðir á 15.600 fluga fresti.
Ekki er gerð grein fyrir eftii
kæranna á hendur flugfélögun-
um. Þær geta að sjálfsögðu verið
mismunandi alvarlegar eða allt
frá storháskalegu flugi niður í
alger smáatriði.
Airbus-þotan sem setti langflugsmetið. Fyrsta flug þessarar flug-
vélagerðar var í júlí 1985 og tóku reynsluflugin 220 klst.
Boeing kaupir de Havilland
Vill snúa sér að
smærri og ódýr-
ari flugvélum
De Havilland DASH 8 skrúfuþotan í lendingu. Þessi flugvél gerði útslagið með að Boeing fyrirtæk-
ið keypti kanadísku de Havilland flugvélasmiðjumar.
Boeing flugvélasmiðjurnar,
sem eru stærsti framleiðandi
flugvéla í heimi, keyptu nýlega
kanadísku flugvélasmiðjurnar
de Havilland. Kanadíska ríkið
á de Havilland sem hefur löng-
um átt við verulega rekstrar-
örðugleika að striða. Þvi eru
Kanadamenn að vonum ánægð-
ir með að fá jafn traustan
kaupanda og Boeing.
Fyrir tæpu ári tók Boeing að
sýna áhuga á kanadíska fyrirtæk-
inu. Fyrirtækin smíða gjörólíkar
flugvélar og em engir keppinaut-
ar. Boeing hefur smíðað þotur af
stærri gerðinni, en de Havilland
hefur einbeitt sé að smíði skrúfu-
flugvéia sem þurfa stuttar flug-
brautir og em þekktar fyrir sterka
byggingu. í þessum mun liggur
einmitt hundurinn grafínn ef svo
má að orði komast.
Boeing er mikið í mun að geta
haft á boðstólum smærri og ódýr-
ari flugvélar, en þotur sínar vegna
þess að undanfarin ár hefur æ
meira borið á einskonar verka-
skiptingu í farþegaflutningum.
Mörg flugfélög em gjaman farin
að safna saman farþegum af
smærri flugvöllum með hentugum
smærri flugvélum og fljúga með
þá til stærri vallanna f veg fyrir
stærri þotur sem fljúga milli
stærri borga og bæja. Þessi verka-
skipting hefur þróast mjög hratt
í Bandaríkjunum og ryður sér til
rúms í vaxandi mæli víðsvegar
um heiminn. Því má draga þá
álytkun að kaup Boeing á de
Havilland endurspegli þessa þró-
un og gefí vísbendingu hvert
stefnir. Rúmlega 20 flugfélög sem
nú nota Boeing farþegaþotur nota
einnig vélar af de Havilland gerð.
De Havilland baggi á
kanadíska ríkinu
Kaupsamningur Boeing vai
undirritaður með fyrirvara uir
samþykki kanadíska þingsins
innan 90 daga. Það er nánast
talið formsatriði því þingið hefur
margoft þurft að ausa opinberu
fé til að tryggja rekstur de Havil-
land og því eru þingmenn sagðir
vera búnir að fá sig fullsadda af
de Havilland og ákaflega fegnir
að losna við þann bagga sem
fyrirtækið hefur óneitanlega ver-
ið. Sl. 10 ár nam tap de Havilland
rúmum 360 milljónum banda-
ríkjadala ($). Þennan skuldahala
yfírtekur Boeing ekki, heldur
verða kanadískir skattgreiðendur
að axla byrðamar.
{ samningnum er kveðið á um
að Boeing þurfi að fjárfesta í de
Havilland fyrir 196 milljónir doll-
ara. Þar af er sjálft kaupverðið
84 milljónir en afgangurinn, 112
AIRBUS 310—300 sem er nýj-
asta þotan frá Airbus-flugvéla-
smiðjunum flaug í desember sl.
lengstu leið sem Airbus-flugvél
hefur nokkru sinni flogið. Flug-
vélar af Airbus-gerð eru allar
tveggja hreyfla þotur.
Þotan flaug frá Róm til New
York á 10 klst. og 10 mín. en sú
leið er 8.190 km löng (4.420 sjó-
mílur). Á leiðinni hreppti vélin 72
hnúta mótvind. Ferðin var þáttur
í reynsluflugi sem varð að fara
svo þessi flugvélagerð fengi full-
gilt lofthæfniskírteini frönsku
flugmálastjómarinnar.
Morgunblaðið/Gunnar Þoreteinsson
milljónir, rennur til að greiða
niður hönnunarkostnað við DASH
8 skrúfuþotuna sem er sú nýjasta
frá de Havilland. Nú er verið að
hanna lengri gerð vélarinnar,
DASH 8 - 300, og til þess verkefn-
is renna beint 54 milljónir dollara
af Boeing peningunum. Áætlað
er að 300 gerðin verði tilbúin eftir
eittáreðasvo.
Af sjálfu kaupverðinu greiðir
Boeing aðeins 65 milljónir dollara
í reiðufé, en eftirstöðvamar á
fímmtán ámm. Fyrir hveijar 3,6
milljónir dollara sem Boeing
ákveður að nota til að fjárfesta í
Kanada, dragast 725 þúsund frá
eftirstöðvunum. Þetta þýðir að ef
Boeing eyðir 235 milljónum doll-
Á bakaleiðinni til Evrópu var
haldið frá New York en nú lent
í Aþenu í Grikklandi. Sú leið er
7.170 km (3.870 sjómflur) eða
heldur styttri en fyrri leiðin. Þotan
fór þessa leið á 9 klst. og 40 mín.
300- gerðin af Airbus 310-
vélinni var sniðin að sérstökum
óskum Svissair-flugfélagsins sem
hafði notað 200-gerðina með góð-
um árangri á leiðum innan Ev-
rópu. Einn aðalmunurinn á þess-
um tveimur gerðum er sá að
300-gerðin hefur töluvert meira
flugþol. í febrúarlok nk. verður
Swissair með fjórar Airbus 310-
300 í sinni þjónustu.
ara í Kanada á næstu fímmtán
árum þurrkast eftirstöðvamar út.
Sennilega velur Boeing þessa leið.
Eignir de Havilland voru metnar
fyrir kaupin á um 94 milljónir
dollara eða rúmlega 18 milljónum
dollara undir því verði sem Boeing
kaupir á. Kanadiska ríkið ábyrgist
framleiðslu de Havilland áfram
sem hingað til og Boeing lofar á
móti að fullri atvinnu verði haldið
uppi í verksmiðjunum í Toronto í
Kanada.
Yfirburða markaðs-
staða Boeing-
lykilatriði
Boeing og de Havilland hafa
áður átt samstarf. Seint á áttunda
áratugnum aðstoðaði Boeing við
að skipuleggja söluátak um allan
heim fyrir DASH 7 flugvélina sem
gekk ákaflega illa að selja um þær
mundir.
A.m.k. þrír aðrir aðilar voru á
biðilsbuxunum eftir de Havilland:
Þýskur auðmaður að nafni Justus
Domier, McDonnell Douglas og
kanadískt §árfestingarfélag með
hollensku Fokker flugvélasmiðj-
umar innan sinna raða.
Kanadískir embættismerin hafa
haft á orði við fjölmiðla að þeir
hafí valið Boeing vegna þess að
með því sé tryggður aðgangur að
markaðskerfí sem á sér enga hlið-
stæðu í flugheiminum. Einnig
hafa Kanadamennimir sagt að
þessi málalok tryggi að fullnægj-
andi flármagn fáist til að greiða
frekari kostnað er kann að verða
vegna þróunar DASH 8 sknífu-
þotunnar.
Þegar öllu er á botnin hvolft
em áhrif Boeing á flugvélamark-
aði heimsins einn stærsti ávinn-
ingurinn fyrir de Havilland og
fyrir Boeing er það DASH 8
skrúfuþota.