Morgunblaðið - 03.04.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986
31
Landsvirkjun um frétt Þjóðviljans:
Fráleitt að Landsvirkjun hafi
tapað 5 milljónum dollara
Halldór Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar, telur frá-
leitt að halda þvi fram, eins og
gert var á forsíðu Þjóðviljans í
gær, að „Landsvirkjun hafi með
fjármálastjórn sinni tapað 5
milljónum Bandaríkjadollara í
kjölfar skuldbreytinga á árun-
um 1983—1985“. í athugasemd
forstjórans, sem Morgunblaðinu
barst í gær, segir, að fullyrðing-
ar í þessa átt „byggðar á gengi
sem enginn veit hvort í gildi
verður þegar að gjalddögum
kemur, geta aldrei orðið annað
en staðlausir stafir“.
Þjóðviljinn hefur það eftir Sig-
uijóni Péturssyni, borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins og efsta
manni á lista þess í borgarstjóm-
arkosningunum í vor, að hagnaður
Landsvirkjunar á síðasta ári hverfí
allur og meira til vegna óhag-
stæðra skuldbreytinga á árinu
1984. Stjóm Landsvirkjunar, sem
er í eign ríkissjóðs, Reykjavíkur-
borgar og Akureyrarbæjar, ákvað
fyrir skömmu að greiða eigendum
arð, samtals 44 millj. króna, með
hliðsjón af góðri rekstrarafkomu
1985. Miðast arðgreiðslumar við
6% af eigin fjárframlög eigenda
framreiknuð til ársloka 1985.
Hér birtist í heild athugasemd
Halldórs Jónatanssonar, forstjóra
Landsvirkjunar.
Athugasemd við frétt Þjóð-
viljans, miðvikudaginn 2.
apríl, um skuldbreytingar
Landsvirkjunar.
A forsíðu Þjóðviljans í dag, 2.
apríl, er fullyrt að Landsvirkjun
hafí tapað 5 milljónum Banda-
ríkjadollara við að breyta lánum í
Bandaríkjadollumm í lán í jap-
önskum yenum og svissneskum
frönkum á vitlausum tíma eins og
það er orðað, en við það hafí
höfuðstóll þessara lána hækkað
um 10,1 milljón Bandaríkjadollara.
Að frádregnum vaxtaspamaði að
fjárhæð 4,8 milljónir Bandarílqa-
dollara sé tapið um 5 milljónir
Bandaríkjadollara, sem gleypi
hagnað Landsvirkjunar á sl. ári,
en hann var um 253 milljónir
króna. Þar sem hér er um að ræða
rangar og villandi staðhæfíngar
gerir Landsvirkjun eftirfarandi
athugasemdir við þennan frétta-
flutning Þjóðviljans.
1. Það er mjög mikilvægur liður
í Qármálastjóm að leitast við
MENNING
VBHOBF
ÍÞRÓTTIR
Lundsvirkjwi
Tapaði 5 miljonum dollara
Skuldbreytingar mjög ólieppilcfiar. Fícrt úr dollnrwn i jcn oy jrunka á vitlauswn linni.
Höfudslóll iveyyja lána hœkkadi um II). I milljón dollara.
Vaxtasparnaöur 4,8 milljómir dolluru. Tupid: 5 milljónir dollara -yleypir haynaöinn á sl. ári
2.
3.
að haga samsetningu erlendra
skulda þannig með tilliti til
gjaldmiðla að gengisáhætta sé
í lágmarki á hveijum tíma. í
því skyni er, eftir því sem láns-
samningar leyfa, framkvæmd
skuldbreyting af og til með það
fyrir augum að breyta skuldum
úr sterkum gjaldmiðlum í veik-
ari og þá jafnframt í lán með
lægri vöxtum, eftir því sem
unnt er, þannig að draga megi
sem mest úr lánsfjárkostnaði.
Landsvirkjun hefur náð góðum
árangri með skuldbreytingum
af þessu tagi og þannig sparað
vaxtakostnað á sl. þremur
árum í verulegum mæli eða
alls um 4,8 milljónir Banda-
ríkjadollara.
Skýringin á framangreindum
ávinningi er sú að á árunum
1983 og 1984 var skuldum í
Bandaríkjadollurum breytt í
skuldir í japönskum yenum og
svissneskum frönkum þegar
Bandaríkjadollari var mjög
sterkur gagnvart öðrum gjald-
miðlum og vextir af lánum í
Bandaríkjadollurum jafnframt
mjög háir. Framangreindur
spamaður sýnir og sannar að
hér hefur tekist vel til og stenst
því ekki sú fullyrðing Þjóðvilj-
ans að hlutaðeigandi færslur úr
dollurum í yen og franka hafí
farið fram á röngum tíma.
Ástæðan fyrir því að Lands-
virkjun breytti lánum í Banda-
ríkjadollurum á árunum 1983
og 1984 í lán í japönskum
yenum og svissneskum frönk-
um, en ekki í öðrum gjald-
miðlum var sú, að með því móti
var hægt að ná hvað hagstæð-
ustum kjörum, auk þess sem
aðrir lánamarkaðir voru þá
ekki jafn aðgengilegir og sá
japanski og svissneski.
4. Á árinu 1985 fór Bandaríkja-
dollar að veikjast og var þá sú
stefna því tekin hjá Landsvirkj-
un að taka öll ný lán í Banda-
ríkjadollurum. Hlutur Banda-
ríkjadollars í heildarskuld
Landsvirlq'unar er nú tæp 40%,
sem telja verður hæfílegt hlut-
fa.ll með tilliti til tekna Lands-
virkjunar í Bandaríkjadoll-
urum.
5. Rétt er að miðað við gengi í
dag hefur höfuðstóll þeirra
tveggja lána, sem tekin voru
1984 til að greiða upp lán í
Bandaríkjadollurum hækkað
um jafnvirði 10,1 milljónar
Bandaríkjadollara. Hér ber hins
vegar að hafa eftirfarandi í
huga:
a. Uppfærsla einstakra skulda
miðað við gengi í það og það
skiptið segir ekki allan sann-
leikann. Utkoma sem þannig
fæst um hve skuldin sé há í
einni mynt eða annarri er því
aðeins einhlít að skuldin eigi
að greiðast upp þá þegar.
Langt er frá að hér sé slíku til
að dreifa, þar sem um er að
ræða lán, sem ekki á að endur-
greiða fyrr en á árunum
1989—1994. Það er því ekki á
nokkurs manns færi að segja
til um það hvaða gengi kemur
til með að gilda þegar að
skuldadögum umræddra lána
kemur og sama gildir um öll
önnur erlend Ián, Landsvirkjun-
ar sem annarra.
b. Skuldbrejrtingar Lands-
virkjunar hafa óvéfengjanlega
fært fyrirtækinu fé í aðra hönd
með spamaði í vaxtagjöldum í
beinhörðum peningum, en end-
anlegt gengismat verður ekki
lagt á höfuðstól lána fyrr en
eftir á, annað hvort þegar þau
hafa verið endurgreidd sam-
kvæmt upphaflegum lánsskil-
málum eða greidd upp með
skuldbreytingum.
c. Það er ekki hægt að ætlast
til þess að skuldbreytingar geti
átt sér stað í eitt skipti fyrir
öll þannig að náð verði þeirri
samsetningu skulda eftir gjald-
miðlum að hún standist tímans
tönn hvað hagkvæmni snertir
og sé skuldaranum ævinlega
jafn hagstæð á hveiju sem
gengur í ölduróti gengisþróun-
ar á hinum ýmsu fjármagns-
mörkuðum heimsins. Skuld-
breytingar verða því að. vera
virkar á öllum tímum í þeirri
viðleitni að skilja eftir sig meiri
eða minni áþreifanlegan ávinn-
ing.
Leyfí ég mér að vona að fram-
angreint verði til að upplýsa
hversu fráleitt það er að halda
því fram að Landsvirkjun hafí með
fjármálastjóm sinni tapað 5 millj-
ónum Bandaríkjadollara í kjölfar
skuldbreytinga á árunum
1983—1985 eins og Þjóðviljinn
staðhæfír. Fullyrðingar í þá átt,
byggðar á gengi sem enginn veit
hvort í gildi verður þegar að gjald-
dögum kemur, geta aldrei orðið
annað en staðlausir stafír.
Virðingarfyllst,
Halldór Jónatansson,
forstjóri.
Þessi 5—8 ára börn eiga greinilega framtiðina fyrir sér ef þau
halda einbeitingunni sem geislar af þeim hér.
Dansinn dunar
Þ AÐ var glatt á hjalla í Laugar-
dalshöll á skírdag. Þar var
haldin heljarmikil nemendasýn-
ing Dansskóla Hermanns Ragn-
ars og lætur nærri að komið
hafi fram um 500 dansarar frá
þriggja ára aldri og upp undir
nírætt. Með aðstandendum
nemendanna voru í höllinni um
1.700 manns að sögn Hennýjar
Hermanns danskennara.
„Við leyfum öllum nemendum
skólans að taka þátt í sýning-
unni,“ sagði Henný. „Hópurinn
er svo Ijölmennur, að hann rúmast
hvergi nema í Laugardalshöll. Við
sprengdum Broadway utan af
okkur í fyrra. Það er sérstaklega
skemmtilegt hvað nemendur eru
á ýmsum aldri. Þeir yngstu eru
þriggja ára en þeir elstu komnir
undir nírætt."
Yngstu bömin eru í svoköliuð-
um jazz-leikskóla en einnig var
sýndur jazz-dans, stepp, bama-
dansar, gömlu dansamir og sam-
kvæmisdansar. Eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum, var tjúttað
og trallað af hjartans lyst við
dynjandi tónlist.
Eskifjörður:
Hraðfrystihúsið tekur nýja
skrifstofubyggingu í notkun
ElldfirðL
í síðustu viku tók Hrað-
frystihús Eskifjarðar nýja
skrifstofubyggingu í notk-
un. Stendur hún við Strand-
götuna gegnt frystihúsinu.
Byrjað var á byggingu húss-
ins í júli á síðasta ári og
hefur hún tekið um átta og
hálfan mánuð.
Húsið er á tveimur hæðum og
velbúið í alla staði og mikill munur
á aðstöðu starfsfólksins frá því,
sem áður var. Undanfarin ár hafa
skrifstofur fyrirtækisins verið í
þröngu leiguhúsnæði. Auk Hrað-
frystihúss Eskifjarðar verður Jón
Kjartansson hf. með skrifstofu í
húsinu. Byggingarmeistari hússins
Hin nýja bygging frystihússins á Eskifirði. Morgunblaðifl/Ævar
var Bjarki Gísason. saltfískverkun og togarana Hólma-
Hraðfrystihús Eskiflarðar rekur tind og Hólmanes.
auk frystihússins loðnubræðslu, Ævar
Það er aldrei of snemmt að læra sporin. Hér eru þær Henný
Hermanns danskennari og Ingunn Magnúsdóttir aðstoðarmaður
hennar með yngstu börnin úr jazz-leikskólanum.
Það er fleira til en jazz-dans. Fólk á besta aldri stigur suður-
ameríska dansa.