Morgunblaðið - 03.04.1986, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1986
53
Þeir íþróttaflokkar ÍBK, sem unnið hafa til Islandsmeistaratítils á
árinu fengu viðurkenningu frá félaginu. Hér er það meistaraflokkur
karla i handknattleik, en þeir sigruðu 3. deildina með glæsibrag.
5 falleg snið:
1. Reiðbuxnasnið
2. Vestisgalli
3. Rúllukragagalli
4. Hettugalli
5. V-hálsmól
PÓSTSENDUM
Utsölustaðir:
Bikarinn, Reykjavík, s. 24520
Sporthúsið, Akureyri, s. 24350
Sporthlaðan, ísafirði, s. 4123
Sportbúð Óskars, Keflavík, s. 4922
Sportval, Reykjavík, s. 26690
Torgið, Reykjavík, s. 27211
Útilíf, Reykjavík, s. 82922
Verslunin Nína, Akranesi, s. 2244
sem ég nefni vesti er flotjöfnunar-
tæki og björgunarvesti og einnig
er það neyðaröndunartæki.
Vesti hafa bjargað mörgum
mannslífum erlendis og hefðu
eflaust fækkað köfunarslysum hér
á landi ef þau hefðu verið notuð.
Það er ætlun mín með þessum
skrifum að vekja menn til um-
hugsunar um þessi mál þvf þau
þarfnast úrlausnar og ég vona að
þeir aðilar sem ég hef fjallað um í
grein þessari taki sér penna í hönd
og geri grein fyrir máli sínu.
Greinarhöfundur er viðurkennd-
ur leiðbeinandi frá PADI (Proffess-
ional Association of Diving Instruc-
tors) og einnig BSAC (British Sub
Aqua Club), félagi í CMAS (World
Underwater Federation) og DAN
(Divers Alert Network), sem sér-
hæflr sig í öiyggismálum kafara.
Greinarhöfundur er einnig lærður
björgunarkafari og hefur starfað
sem aðstoðarkennari við Fort Bovi-
sand Underwater Centre, Englandi.
Var einnig við nám í DDRC
(Diving Disease Reserach centre)
Plymouth þar sem kennd er með-
ferð sjúkra í afþiýstiklefa og með-
ferð annarra köfunarsjúkdóma.
DDRC meðhöndlar flesta kafara
á Englandi ásamt köfurum frá
breska hemum. Þar starfa 4 lækn-
ar, sérfræðingar í köfunarsjúk-
dómum, lærði ég undir þeirra
umsjá.
Höfundur er kafari í Hjálparsveit
akita á ísafirði.
Frístundakafarar á íslandi
Morgunblaðið/Einar Falur
Gestum var boðið uppá þessar glæsilegu tertur sem báru merki ÍBK.
ætti að beita sér fyrir því að sett
yrðu lög og reglur fyrir frístunda-
kafara til að starfa eftir, því það
ríkir algjör lögleysa í þessum mál-
um hér á landi. Til dæmis ætti fé-
lagið að beita sér fyrir því að sett
yrðu lög varðandi sölu á köfunar-
búnaði, sem einungis heimiluðu
þeim sem gætu framvísað köfunar-
skírteini að kaupa köfunarbúnað
og einnig ætti félagið að beita sér
fyrir því að fræðslumálum frí-
stundakafara yrði komið í viðunandi
horf og reyndar er margt fleira sem
gera þarf til að koma þessum mál-
um í svipað horf og erlendis, t.d. á
Norðurlöndum. Jafnvel í Færeyjum
er fræðslumálum kafara betur hátt-
að en hér á landi.
Það er því miður mjög algengt
að íslenskir frístundakafarar séu
mjög illa búnir tækjum við köfun
og má kenna um þekkingarleysi og
verðlagi á köfunarbúnaði. Það eru
t.d. sárafáir sem nota vesti því það
hefur verið ríkjandi skoðun manna
að það værí aukabúnaður sem
óþarft væri að nota. En vesti er
reyndar algjör grunnbúnaður hvort
sem um snorkköfun er að ræða eða
köfun með þiýstiloftskúta og ekki
er það síður nauðsynlegt þegar
notaður er þurrbúningur.
- Það er rétt að geta þess að það
eftir Kjartan J.
Hauksson
Lengi hefur mig langað til að fjalla
um málefni íslenskra frístundakaf-
ara, þar eð öll mál er að þeim lúta
eru í algerum ólestri og eru frí-
stundaköfurum til mikillar skamm-
ar og áhugamálinu síður en svo til
framdráttar. Það er með þetta mál
sem önnur að við hefjumst ekki
handa fyrr en eitthvert slys hefur
orðið og er það meðal annars af
þeirri ástæðu sem þetta er skrifað.
Með frístundaköfurum á ég við
alla þá sem í frístundum sínum
stunda köfun, þar með talda kafara
í björgunar- og hjálparsveitum.
Siglingamálastofnun ríkisins,
birti nýlega í Morgunblaðinu
„Greinargerð um rannsókn á slysi
við köfun" og brýnir það meðal
annars fyrir fólki að leita sér leið-
sagnar „í köfun hjá þar til hæfum
mönnum" í stað þess að læra það
upp á eigin spýtur sem er stór-
hættulegt athæfí. En hveijir eru svo
þessir hæfu menn sem fólk getur
leitað til ef það hyggst fara að
stunda frístundaköfun hér á landi?
Hveijir eru það sem haldið hafa þau
námskeið fyrir frístundakafara sem
verið hafa hér á landi og hvar og
hvenær hafa þeir lært að leiðbeina
frístundaköfurum eða hafa þeir
bara yflrleitt nokkuð lært það?
Reyndar er það óstaðfestur grunur
minn að svo sé. Það væri fróðlegt
og ekki síður gagnlegt fyrir áhuga-
menn um köfun að fá allar nánari
upplýsingar varðandi það mál.
I greinargerð Siglingamálastofn-
unar segir að lítil áhersla hafí verið
lögð á hættu ofondunar, í námi
kafara og telur ástæðu til að vekja
sérstaka athygli á þeim áhættu-
þætti. Ég þori að fullyrða að lítil
áhersla hafl verið lögð á fleiri
áhættuþætti en oföndun í námi
kafara, ef grunur minn reynist rétt-
ur varðandi þá Ieiðbeinendur sem
um er rætt.
Lærður leiðbeinandi leggur
áherslu á alla áhættuþætti köfunar
og er oföndun þar með talin, reynd-
ar er oföndun af þeim orsökum, sem
grein Siglingamálastofnunar íjallar
um, mjög sjaldgæf hjá frístunda-
köfúrum en aftur á móti er oföndun
í snorkköfun mun algengari, en ég
„Það er ætlun mín með
þessum skrifum að
vekja menn til um-
hugfsunar um þessi mál
því þau þarfnast úr-
lausnar.... “
ætla ekki að fjalla um ástæður þess
í grein þessari.
Sportkafarafélag Reykjavíkur
var stofnað fyrir nokkrum ánim en
síðan var nafninu breytt í Sportkaf-
arafélag íslands, var hugmyndin
með breytingu nafnsins sú að stofn-
aðar yrðu deildir víðsvegar um
landið og gera þetta áhaugamál þar
með útbreiddara og skemmtilegra
og félagið þannig öflugra. En hvað
hefur þetta félag gert annað en að
skipa nýja stjóm ár frá ári og gefa
út „símaskrár" fyrir meðlimi sína
ásamt því að hafa kannski staðið
fyrir einhveijum vafasömum nám-
skeiðum í köfun, eða em kannski
einhver „námskeið" á döfínni?
Gaman væri að vita hvort stofnaðar
hafa verið einhveijar deildir út_ á
landi innan Sportkafarafélags ís-
lands.
Það er einmitt þetta félag sem
Keflavík.
18. MARS siðastliðinn varð ÍBK,
íþróttabandalag Keflavfkur, 30
ára. Ætlar félagið að standa
fyrir margskonar keppnum og
hátíðahöldum á árinu i tilefni
afmælisins. Á skírdag var haldin
fjölmenn afmælisveisla i íþrótta-
húsinu i Keflavik þar sem allir
voru velkomnir og sýndar voru
myndir, bikarar og aðrir minja-
gripir úr sögu félagsins.
Fjölmenni var í afínælishófínu.
margt að skoða, flölmargir og fal-
legir verðlaunagripir, ljósmyndir
frá fjöldamörgum aðilum og úr-
klippur úr dagblöðum. Boðið var
uppá tertur og drykki til að skola
þeim niður. í máli Kjartans Marin-
óssonar, formanns ÍBK, kom fram
að í tilefni afmælisársins verða
haldin mörg íþróttamót á árinu í
hinum ýmsu íþróttagreinum. Mörg
ávörp voru haldin, bæði af forráða-
mönnum Keflavíkur og forráða-
mönnum íþróttasambands íslands,
þeir íþróttaflokkar sem hafa unnið
til íslandsmeistaratitils á árinu
fengu sérstaka viðurkenningu en
það voru meistaraflokkur karla í
handknattleik sem sigraði 3. deild-
ina, 3. flokkur karla í körfuknattleik
sem varð íslandsmeistari fimmta
árið í röð og 6. flokkur stúlkna,
fslandsmeistarar í innanhússknatt-
spymu.
-Efi
bourbon
by HENSON
*
Iþróttabandalag’
Keflavíkur 30 ára