Morgunblaðið - 03.04.1986, Side 56
M()R(xl;NBLAt)IF), FlMMTtíDAGUftS. APRTL1986
Minning:
Asta Eggerts-
dóttir Fjeldsted
Fædd 16. desember 1900
Dáin 21. mars 1986
Ásta Eggertsdóttir Fjeldsted
fæddist 16. desember aldamótaárið
1900. Hún ólst að miklu leyti upp
hjá ömmu sinni, Helgu Bjamadótt-
ur, í Tröð í Bolungarvík. Alla ævi
taldi hún sig Bolvíking þó svo að
hún ætti heima á ísafirði í meira
en hálfa öld. Fólkið í Steinhúsinu;
Kamburinn; Drimla; stelpumar sem
hún lék sér með, Beta, Sína Sól,
Emilía; strákamir sem drógu stelp-
umar á hárinu eftir skólaganginum,
stóð henni ljóslifandi fyrir hugskot-
sjónum alla ævi. Aðeins einu sinni
mundi hún til að amma hennar
hafi skammað hana. Ásta, klædd
sínum bestu fötum, hafði farið út
í Rauðamýrina og sett mýrarrauða
á svuntu sína.
Ásta fór fljótt að vinna. Árið
1914, þegar hún var við fiskbreiðslu
út í Bug, minntist hún þess að til
fólksins kom maður og sagði frá
því að stríð væri skollið á. Á æsku-
áranum fór Ásta í kaupavinnu
norður í land. í nokkur sumur vann
hún á Brandsstöðum í Blöndudal.
Alla ævi síðan minntist hún þeirra
Norðlendinga og Norðurlands með
miklum hlýhug.
Nú lá leiðin til Reykjavíkur. Ásta
fór að vinna á verkstæðinu hjá
Andrési á Laugaveginum. Þar var
hún í saumanámi og varð útlærð
saumakona, og lærði jafnframt að
sníða og sauma karlmannaföt. Árið
1923 vann hún jafnframt á fiskreit-
um í Reykjavík og keypti sér
saumavéi fyrir vinnuiaunin með
því að greiða tvær krónur og fimm-
tíu af verði hennar á viku. Síðar
átti þessi saumavél eftir að koma
í góðar þarfir þar sem hún eignaðist
11 böm með manni sínum, Am-
grími Fr. Bjamasyni, ritstjóra og
kaupmanni, sem hún giftist á annan
íjólum 1923.
Ásta kunni allar tegundir sauma-
skapar, balderingu, skatteringu,
flos, hekl, fyrir utan einfaldari
hannyrðir, og notaði sér þessa
þekkingu óspart enda veitti ekki
af þar sem Amgrímur átti þá 7
böm fyrir af fýrra hjónabandi, og
efnin leyfðu ekki að föt væra keypt
í búðum.
Þau Amgrímur og Ásta settust
að í Bolungarvík, en er kreppan
skall á fluttust þau búferlum að
höfuðbólinu Mýram í Dýrafirði. Þar
var auðveldara að afla fæðu fyrir
bamahópinn en í Bolungarvík. Þó
efnin væra ekki mikil búnaðist þeim
vel á Mýram. Þar sem Amgrímur
var ritstjóri á ísafirði, lenti búskap-
urinn að miklu leyti á Ástu. Hún
reyndist góð búkona og hörkudug-
leg tii allra verka. Á Mýram var
mikið æðarvarpa og tók Ásta ást-
fóstri við það og sinnti dúnhreinsun-
inni ásamt öðram störfum. Þau
Amgrímur og Ásta gátu ekki keypt
Mýramar og 1935 fluttust þau til
ísafjarðar, þar sem þau keyptu
húsið Hafnarstræti 11 og bjuggu
þar síðan. Ástu féll þungt að þurfa
að skiljast við Mýrar. Búferlaflutn-
ingurinn yfir Breiðadalsheiði reynd-
ist erfiður enda var þar þá enginn
bílvegur. Um haustið eftir komuna
til ísafjarðar veiktist hún hastar-
lega í nýranum og var um tíma
ekki hugað líf.
Fljótlega eftir komuna til ísa-
fjarðar settu þau Amgrímur og
Ásta á stofn verslun á neðri hæð í
húsi sínu. Rak Amgrímur verslun-
ina til dauðadags með hjálp konu
sinnar, en eftir lát hans rak Ásta
verslunina ein, en nú síðustu árin
bamabam hennar, Sigurður Sig-
urðsson. Þó öldrað væri vann hún
alltaf öðra hvora í versluninni og
síðasta daginn sem hún lifði opnaði
hún verslunina og vann þar síðasta
morguninn.
Ásta var vön að bera sjálf á borð
fyrir alla og þjóna til borðs. Þetta
gerði hún alla daga því að húsmóðir
á svo stóra heimili sem hennar á
aldrei frídag. Sjálf mataðist hún
síðust allra og þá oft standandi við
eldhúsborðið áður en uppþvottur
matarílátanna hófst. Hún hafði þá
reglu að láta þarfir annarra ganga
á undan sínum eigin, sem þýddi í
reynd að oft liðu mörg ár án þess
að hún keypti nokkuð fyrir sjálfa
sig. Fjárráðin vora takmörkuð en
munnamir margir að metta. En
Ásta var auðsæl og í meðferð fjár
átti hún sér engan jafningja, enda
þurfti hún mjög á þessum eðliskost-
um að halda.
Þegar leið á ævina fór Ásta að
finna fyrir slitgigt í hægri mjöðm.
Með áranum ágerðust þessi veik-
indi. Hún var lögð inn á Landspítal-
ann. Aðgerðin heppnaðist vel, en
eftir hana fékk Ásta heiftarlegt
hjartaáfall svo að um tíma var henni
ekki hugað líf. Þó að hún væri hátt
á áttræðisaldri var lífskraftur henn-
ar slíkur að hún hjamaði við og
komst um síðir aftur til heilsu. Að
sjálfsögðu var henni bragðið, en
innra þrek hennar var með öllu
óbugað. Eftir þetta þurfti hún
nokkram sinnum að fara á Sjúkra-
húsið á Isafirði. Hún var alltaf fljót
að ná sér og innilega þakklát því
fólki sem annaðist hana af alúð og
kærleika. Þar sem þessi hjartaáföll
bar alltaf brátt að, mæddi mest á
dóttursyni hennar, Sigurði Sigurðs-
syni, sem þá eins og jafnan, sá um
að hún kæmist á sjúkrahúsið og
annaðist hana þegar heim var
komið. Það var Ástu mikil gæfa
að geta dvalist á eigin heimili síð-
ustu árin og dóttursonur hennar,
Sigurður, reyndist henni stoð og
stytta í hvívetna.
„Ég er ung, inni í mér“, var hún
vön að segja. Og víst er um það
að þó hún væri á áttugasta og
sjötta aldursári þegar hún lést var
sjón hennar, heym og minni í full-
komnu lagi og hún naut þess að
hlusta á útvarpið, horfa á sjónvarpið
og lesa blöð og bækur. Þá veittu
barnabarnabömin, sem vora heima-
gangar, henni ómælda ánægju. Hún
hafði búið sig vandlega undir dauð-
ann. Eins og fyrir öðram stórat-
burðum hafði hana dreymt fyrir
honum. En hversu vel sem maður
er undirbúinn er stundin alltaf óviss.
Ásta dó snögglega, þegar hennar
stund kom, og þannig hafði hún
einmitt óskað sér að deyja.
Hugur Ástu stóð alla ævi til lista.
Hún lærði að spila á orgel hjá Jón-
asi Tómassyni, tónskáldi. Hún var
sérstaklega vel að sér í íslenskum
skáldskap. Hún kunni fjölda kvæða
og vísna utan bókar og kvæði
Davíðs Stefánssonar kunni hún svo
að segja öll. Eitt sinn var hún á
skemmtiferð ásamt fleira fólki og
kom við í Herdísarvík. Hlín hleypti
engum ferðamönnum inn í hús
skáldsins. Ásta bað bflstjórann að
beija að dyram. Um leið og þær
Hlín heilsuðust hvíslaði Ásta nokkr-
um ljóðlínum að Hlín. í þetta eina
skipti fengu allir að ganga um húsið
og virða fyrir sér uppbúið rúm
skáldsins. Á skemmtunum var hún
oft fengin til að lesa upp kvæði og
er mörgum lestur hennar eftir-
minnilegur, enda kom skarpur
skilningur hennar á efni kvæðanna
fram í lestrinum, t.d. í Sálinni hans
Jóns míns. Hún starfaði í kven-
félaginu og lék oft fyrir það. Einnig
vann hún mikið fyrir Slysavarnafé-
lagið og var fulltrúi á slysavama-
þingum. Það kom í hennar hlut að
flytja aðal hátíðarræðuna á Hótel
Borg þegar björgunarskútan María
Júlía kom til landsins. Þá eins og
jafnan talaði hún blaðalaust, enda
áleit hún að það sem kæmi frá
hjartanu ætti greiðasta leið ti!
hjartnanna.
En þó að félagsstörf veittu henni
mikla ánægju var það þó leiklistin
sem átti hug hennar og hjarta. Það
var hlutskipti hennar að eignast
mörg böm og ala enn fleiri upp.
En hefði hún sjálf mátt ráða hefði
hún orðið leikkona. Á ísafirði lék
hún í mörgum leikritum, oftast stór
hlutverk. Venjulega kunni hún
hlutverk sitt nokkum veginn þegar
á fyrsta samlestri. Þar sem börnin
vora mörg og þau Amgrímur höfðu
ekki efni á að hafa vinnukonu, má
vera Ijóst að tómstundir Ástu vora
ekki margar. Húsinu Hafnarstræti
11 fylgir þvottahús og þar lærði
Ásta hlutverkin, yfir þvottabalan-
um.
Allt greri í höndunum á Ástu.
Hún stundaði garðrækt á ísafirði,
og eftir síðari heimsstyijöldina
keypti hún Gvendareyjar á Breiða-
firði. Þar dvaldi hún á sumrin með
yngstu bömum sínum og síðar
bamabömum. í Gvendareyjum
hjálpuðu henni Brokeyjarbræður,
miklir öðlingar og höfðingsmenn,
em alla aðdrætti. í Gvendareyjum
eins og alls staðar annars staðar
eignaðist hún góða granna. í
Gvendareyjum vann hún við hey-
skap, hreinsaði dúninn og ræktaði
garða og tré, sem var hennar yndi.
Hún hafði ánægju af því að vinna
í moldinni, finna fijómagn jarðar-
innar milli fingra sér.
En hún ræktaði ekki aðeins jarð-
argróða. I verslunina komu til
hennar bæði karlar og konur til að
ræða vandamál sín. Uppburðarlitl-
um stúlkum, sem áttu í erfiðleikum
með að feðra böm sín, gat Ásta
hjálpað af því að hún var óhrædd
við að tala við yfirvöldin. Þar sem
heimili hennar sjálfrar var mann-
margt, þekkti hún af eigin raun
flest það sem hendir í lífinu. Af
þessum sökum og líka vegna
skarprar greindar átti hún mjög
gott með að ieiðbeina fólki á erfið-
um stundum í lífi þess. Hún þekkti
fólkið og aðstæður þess og réði
því heilt. Þó að hún ætti lífsafkomu
sína undir verslunarrekstri var það
ailtaf fólkið sjálft sem hún hafði
áhuga á, en ekki hvort það keypti
nokkuð eða ekkert. Hún hafði
gaman af að spjalla við fólk, enda
sýndi það henni vináttu sína á móti.
Ásta átti marga ketti og hrafna sem
áratugum saman hafa sett svip sinn
á bæinn. Oft gaf fólk henni fiskmeti
fyrir kettina og dæmi vora þess að
ungir sjómenn gæfu henni Maríu-
fiskinn sinn.
Ásta var berdreymin. Til dæmis
dreymdi hana þegar hún var á
Mýram fyrir allri ævi sinni á
ísafirði. Árið 1900 dreymdi móður
hennar, Ríkeyju Jónsdóttur, þá er
hún gekk með Ástu, að hún sá
óvanalega ljósadýrð. Það voru 12
hjörtu allavega lit og eins og þráður
á milli þeirra, mislangur. 45 áram
síðar segir hún við dóttur sína, sem
þá er gestkomandi hjá henni: „Eg
ræð þennan draum fyrir bömunum
þínum, en þú átt eftir að eiga það
tólfta." „Kemur ekki til mála,“ segir
Ásta. En þegar hún er 55 ára eign-
ast hún dótturson, Sigurð Sigurðs-
son, sem ólst upp við hlið afa síns
og ömmu til 7 ára aldurs, en síðan
hjá ömmu sinni einni.
Líf Ástu einkenndist alltaf af
harðri lífsbaráttu. Megin ævistarf
hennar var að ala upp böm, standa
fyrir heimili og reka verslun. Hugur
hennar sjálfrar stóð þó ávallt fyrst
og fremst til skáldskapar og leiklist-
ar. En lífsbaráttan hélt alltaf óvæg-
in áfram. Árið 1983 úthlutaði bæj-
arstjóm ísafjarðar eignarlóðinni
undir húsi hennar að henni for-
spurðri. Eitt af hennar síðustu
verkum var að áfrýja því máli til
Hæstaréttar.
Ásta dó eins og hún hafði lifað,
í baráttu.
Amgrímur Amgrímsson
í dag verður kvödd frá ísaflarð-
arkirkju heiðurskonan Ásta Egg-
ertsdóttir Fjeldsted. Hún lést þar í
bæ 21. mars sl. en var fædd í Hnífs-
dal 26. febrúar árið 1900.
Við fráfall þessarar gáfuðu konu
hrannast upp góðar minningar frá
ísaQarðaráram mínum, en hana hef
ég þekkt í hálfa öld eða lengur og
aðeins að góðu einu.
Við voram nágrannar í um þijá-
tíu ár og fór ætíð vel á með okkur.
Ásta giftist Amgrími Friðriki
Bjamasyni ritstjóra og kaupmanni
26. des. 1923 og átti með honum
ellefu böm, sem öll lifa móður sína
nema elsti sonurinn, Guðmundur,
sem lést fyrir nokkram áram. Öll
þessi böm ól hún upp og kom vel
til manns, þar að auki gekk hún í
móður stað sjö bömum Amgríms
af fyrra hjónabandi. Ekki gerði hún
mun á þeim og sínum eigin bömum,
öll vora þau henni jafn kær. Ekki
lét hún sig heldur muna um að ala
upp dótturson sinn, Sigurð, sem er
eina bamið búsett á ísafirði. Hefur
hann tekið við verslun hennar og
rekið af miklum myndarskap. Hann
hefur launað henni uppeldið, með
að vera hennar stoð og stytta er
aldurínn færðist yfir.
Ásta var kvenskörungur, dugn-
aðarforkur, auk þess að ala upp öll
þessi böm og sjá um sitt stóra
heimili vann hún alla daga í verslun
þeirra hjóna, og að mestu leyti ein
eftir að hún missti mann sinn, en
Amgrímur lést haustið 1962.
Þá tók hún einnig þátt í ýmsum
félögum á ísafirði og starfaði í þeim
af heilum huga, það var ekkert kák
ef hún tók eitthvað að sér.
Var henni margt til lista lagt,
hún lék í leikritum, las upp á
skemmtunum og ógleymanlegt er
þegar hún flutti allt kvæðið um
Helgu Jarlsdóttur utanað.
Asta var hafsjór af fróðleik. Enda
hljóp ég oft yfír til hennar, það var
hressandi og fróðlegt, stundum var
líka drakkinn kaffisopi í herbergi
inn af búðinni.
Eftir að ég flutti suður og átti
leið vestur, leit ég alltaf við hjá
henni, og alltaf var hún eins, enda
tryggur vinur vina sinna.
Ekki gerði hún víðreist, enda nóg
að gera heima fyrir. Fór samt
nokkram sinnum suður á Breiða-
Qörð og dvaldist þá í Gvendareyjum
sem þau áttu. Kom hún þá ætíð
endumærð og hressari heim, þrátt
fyrir mikla vinnu þar.
Ásta verður minnisstæð öllum
sem þekktu hana og söknum við
hennar mjög. Hún stóð sig sem
hetja, hugsaði um sig og sitt heim-
ili sjálf, alla tíð fram að því síðasta,
að hún hné niður og var öll.
Nú þegar komið er að leiðarlok-
um, er aðeins eftir að kveðja og
þakka fyrir öll góðu gömlu árin
heima á ísafirði og kynni mín af
henni.
Öllum hennar bömum votta ég
einlæga samúð og bið henni guðs-
blessunar. jbj
Látin er á Ísafirði Ásta Eggerts-
dóttir Fjeldsted eftir langa og
stranga ævi. Ásta var einn fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem mátti þola
ýmislegt sem okkur nútímafólki
þykir næstum ótrúlegt. En margt
af þessu fólki býr yfir ýmsum kost-
um sem okkur skortir í dag.
Ásta var einstök manneskja. Ég
kynntist henni fyrir tæpum tíu
áram, þegar ég fluttist til ísafjarðar
með dóttursyni hennar, Sigurði
Sigurðssyni. Það tók mig mörg ár
að kynnast henni. En eftir því sem
kynni okkar urðu meiri og nánari,
lærði ég að meta hana og virða. A
seinni árum voram við Ásta góðir
félagar.
Ásta var skapmikil kona og gat
verið stóryrt og hvöss. Ég held að
mörgum hafi staðið stuggur af
henni. Hún var mjög hreinskiptin
og var ófeimin að segja meinmgu
sína, við hvem sem var. En Ásta
var 'sk^rtiárititéjaf' ‘dg !itrík! kona og
var hægt að fyrirgefa henni margt
þess vegna.
Ásta var ekki allra og gat verið
erfitt að gera henni til hæfis. En
einmitt vegna þess hve sérvitur hún
var, gerði hana ólíka öllum öðram.
Það var mjög gaman að tala við
Ástu, enda var hún vel greind og
óvenju minnug. Minnið var ekki
neitt farið að gefa sig, þrátt fyrir
háan aldur. Ásta hafði frá mörgu
að segja af viðburðaríkri ævi, enda
sagði hún mjög skemmtilega frá.
Ásta var sístarfandi og sat hún
aldrei aðgerðarlaus, enda var hún
því ekki vön. Hún hafði fengið að
vinna meira en nóg í gegnum ævina.
Ásta eignaðist 11 böm, auk þess
að taka að sér 7 böm eiginmanns
síns, Amgríms Fr. Bjamasonar.
Amgrímur var ekkjumaður þegar
þau giftust, en þá var Ásta aðeins
tvítug. Á sextugsaldri tók hún síðan
að sér dótturson sinn, Sigurð Sig-
urðsson, og ól hann upp. Mörgum
þætti þetta víst ærið lífsstarf, en
jafnhliða bamauppeldinu rak hún
verslun ásamt manni sínum. Einnig
tók hún mikinn þátt í margs konar
félagsstarfsemi hér á áram áður.
Ásta var gerð að heiðursfélaga
í Slysavamafélagi íslands, Kven-
félaginu Ósk og í Fuglavemdunar-
félagi íslands, fyrir að koma þremur
amarangum upp í Gvendareyjum.
En í Gvendareyjum á Breiðafírði
hafði Ásta oft dvalið sumarlangt
og átti hún góðar minningar þaðan.
Ásta hafði gaman að leiklist og
lék hún talsvert með leikfélaginu
hér á ísafírði. Sérstaklega var hún
rómuð fyrir flutning sinn á ljóðum,
sem hún flutti alltaf blaðalaust.
Ásta var mjög bamgóð og er ég
henni innilega þakklát fyrir hve góð
hún reyndist bömunum mínum.
Hún vildi allt fyrir þau gera.
Þegar mér fínnst ég hafa mikið
að gera með mín þijú böm, er mér
oft hugsað til Ástu.með sinn stóra
bamahóp. Hvemig komst hún yfir
að gera allt þetta? Ég held það
hafí ekki verið hægt, nema með
ótrúlegum dugnaði Ástu og ósér-
hlífiii.
Ásta hafði lengi búið ein, en hún
varð ekkja fyrir 24 áram. Sá hún
um sig sjálf, meira af vilja en
mætti. Hún vildi ekki heyra minnst
á að fara á elliheimili, enda held ég
að það hafi ekki átt við hana. Á
heimili sínu var hún í sínu rétta
umhverfi, með allt sitt í kringum
sig. Þar var hún sinn eigin herra,
en það átti líka best við hana. Hún
eyddi tíma sínum helst í lestur og
hannyrðir. Einnig hlustaði hún
mikið á útvarp.
Ég og fjölskylda mín söknum
hennar sárt. Við höfum misst mikið,
sem ekkert getur komið í staðinn
fyrir. í mínum huga verður ísaljörð-
ur aldrei sami góði staðurinn, þegar
Ásta verður ekki hér. En minningin_
um stórbrotna, mikla og góða konu
mun lifa. Blessuð sé minning henn-
ar.
Áslaug Jóhannsdóttir
Mikið verður tómlegt að koma
til Ísaíjarðar án þess að heyra í
ömmu. Heyra öll blæbrigði raddar-
innar og dillandi hláturinn. Heyra
sérstæðan orðaforða og málnotkun
hennar. Já, það verður tómlegt að
geta ekki tekið upp símann, hringt
í hana og spjallað um heima og
geyma.
Amma Ásta lést á heimili sínu,
Hafnarstræti 11, þann 21. mars. Ég
veit að margir syrgja ömmu, en
þeim til nokkurrar huggunar vil ég
segja, að hún kvaddi þennan heim
eins og hún vildi. Amma var við
sæmilega heilsu fram á síðasta dag.
Þær era sjálfsagt ekki margar
búðadömumar sem afgreiða í versl-
un 85 ára gamlar, en það gerði
amma.
Hver og einn hefur auðvitað sínar
minningar tengdar þessari miklu
konu. Það er erfitt að gera sér í
hugarlund líf hennar. Tímamir hafa
breyst það mikið. Þó er mér ýmis-
legt minnisstætt sem hún sagði
mér. Amma var á 20. ári þegar hún
tók við heimili afa heitins.
Hann var þá ekkill með 7 böm
á aldrinum 2—13 ára. Þau áttu 11
böm saman. Hún sagði mér að einu