Morgunblaðið - 01.10.2006, Page 23
Það mættu sem flestir Íslendingar
lesa þetta kvæði.“
– Ertu ljóðamaður líka?
„Ég hef afskaplega gaman af ljóð-
um. Og þá ekki síður sögunum í
kringum þau. Mér finnast landið og
sagan gefa ljóði Jóhannesar um föður
sinn aukna dýpt.
Eins er það með vísur. Ég skal
segja þér eina:
Magnús Ásgeirsson þýddi ljóð eftir
Carl Sandburg; Gras, sem vitnar
meðal annars til orrustunnar við Ver-
dun og hvernig grasið grær yfir allt.
Þýðingin birtist ekki opinberlega fyrr
en seinna, en margir þekktu til henn-
ar áður, þar á meðal Steinn Steinarr.
Steinn orti svo ljóðið Verdun, um leit
sálar um land hins liðna. Það þótti
bera keim af ljóði Sandburg. Þá kvað
Leifur Haraldsson:
Um hirðusemi er hneyksli eitt að
fjasa
sú höfuðdyggð af náð er mönnum
veitt.
Hjá Karli Sandburg kennir margra
grasa,
menn komast varla hjá að taka eitt.
Sagan segir, að Steinn hafi aldrei
fyrirgefið Leifi þessa vísu.“
Myndlistin beið lægri
hlut fyrir sjódælunni
Þegar Þórir var sumrungur í Ljár-
skógum er hann kominn í barnaskóla
suður í Reykjavík.
„Við bjuggum þá á Vesturgötu 30
og ég fór í Miðbæjarbarnaskólann.
Skyldunni lauk við 13 ára aldur, en
við vorum fjögur, sem tókum fulln-
aðarpróf tólf ára. Einkunnin 8,5 átti
að fleyta mér beint inn í mennta-
skólann, en þegar til kom varð ég nú
samt að fara í undirbúningsdeild
M.R. Við lásum saman þrjú undir
skólann; ég, Hjördís Sigurðardóttir,
dóttir Sigurðar í Holti, og Bjarni
Steingrímsson, sem varð verkfræð-
ingur og kennari við Tækniskólann.“
En Þórir fór aldrei í Mennta-
skólann í Reykjavík. Hann entist ekki
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 23
ÞÓRIR Jónsson gekk til
samstarfs við bræðurna
Hauk og Jón Hjaltasyni 1966
með kaupum á hálfu húsinu
Hafnarstræti 19. „Við Hauk-
ur kynntumst á skíðunum og
það var hans hugmynd að
fara út í rekstur á skyndi-
bitastað.“
Í Hafnarstrætinu var Sæl-
kerinn til húsa. Síðan stofn-
uðu þeir Óðal í Austurstræti,
„frambærilegan veit-
ingastað, sem síðar var
breytt í fyrsta diskótekið á
Íslandi.“
Þegar Haukur hætti og
stofnaði sitt eigið fyrirtæki,
kom Hafsteinn Gilsson inn í
reksturinn með þeim Þóri og
Jóni.
„Við komum svo með
framköllun á stundinni, en
ég hafði séð svona tæki í
Bandaríkjunum.
Sonur minn keypti svo
framköllunina og hefur rek-
ið hana fram á síðasta ár.“
- - - -
„Ég kynntist Jóni Guð-
mundssyni, sem rak keilu-
spilið á flugvellinum. Það
átti að skipta út og Jón
hvatti okkur til þess að
reyna að eignast tækin. Það
varð og við settum á stofn
keiluhöll í Öskjuhlíðinni. Við
settum líka upp fyrsta golf-
hermi landsins.
Ég gekk svo út úr þessu
fyrirtæki, en ég held að Jón
Hjaltason sé þar eigandi
ennþá.“
Skyndibiti
og keiluspil
Orka óháð tíma og rúmi
Vorsprung durch Technik www.audi.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
6
7
HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000, www.hekla.is, hekla@hekla.is
Audi A4 2,0 lítra, sjálfskiptur, multitronic ,7 gíra.
Verð frá 3.490.000 kr.