Morgunblaðið - 01.10.2006, Síða 60
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Þegar fyrsta plata Go! Team kom út,sem var í hittiðfyrra, vissi fólk varlahvernig það ætti að lýsa henni. Allirvoru hins vegar á því að hér væri
meistarastykki á ferðinni. Thunder, Lig-
htning, Strike veltir sér upp úr fjölmörgum,
ólíkum stílum en er fyrst og síðast stór-
skemmtileg og einkar stuðvæn plata. Skítt
með stefnur og greiningar, svona einu sinni!
Ekki var nóg með að tónlistaráhugafólk
gripi plötuna á lofti heldur hófu ýmis fyrirtæki
að falast eftir lögum af henni fljótlega í aug-
lýsingar, meira að segja McDonalds. Ian Par-
ton, heilinn á bak við sveitina, var klumsa yfir
þessu öllu saman en hélt þó ótrauður sínu list-
ræna striki. Go! Team hefur þannig þótt ein
allra besta tónleikasveit síðustu tveggja ára
og nú er ennfremur farið að glitta í næstu
plötu og það þótt fyrr hefði verið.
Blaðamaður ræddi við Ian Parton vegna
hingaðkomu sveitarinnar. Hann segir að
bandið, eða „teymið“, ætli að koma hingað
nokkrum dögum fyrir tónleika, og anda að sér
hinni einstöku Íslandsstemningu. Bassaleik-
arinn ætlar meira að segja að leigja bíl og
keyra um landið.
Næsta plata öðruvísi
– En segðu mér aðeins af næstu plötu sem
margir eru farnir að bíða spenntir eftir …
„Þetta gengur ágætlega, já. Við erum svona
rétt að byrja. Hún verður ólík þeirri fyrstu
sem var aðallega búin til af mér og þá var ég
aðallega að gera þetta fyrir mig. Ég var að
prófa ýmislegt sem ég hafði óskað mér að aðr-
ar sveitir myndu leggja sig eftir í meiri mæli.
Það er meiri pressa núna myndi ég segja.
Núna er ég með hljóðver, fullt af græjum –
allt einhvern veginn umfangsmeira. Hljóm-
urinn verður ekki eins hrár og síðast en verð-
ur engu að síður „í skralli“. Það er mikilvægt.“
Varð hljómsveitin til fyrir hálfgerða slysni?
„Tja … ég hafði nú alltaf hugsað mér þetta
sem hljómsveit. Þetta átti aldrei að vera ég og
kjöltutölva; ég sá þetta fyrir mér sem gengi.
Þetta er mikil hljómsveit í dag, en við notum
einnig hljóðbúta og slíkt í lögunum. Ég vildi
aldrei að þetta yrði ég og einhverjir leiguspil-
arar, ég vildi fá fram þessa virkni, þetta fjör,
sem verður til þegar fólk vinnur saman í hóp.“
– Hvaða kostir felast í því að vinna með fólki
sem kemur úr jafn ólíkum áttum og raunin er
með Go! Team?
„Humm … út frá tónlistarlegu sjónarmiði
er þetta áhugaverðara. Stílar krossa og klessa
hver á annan og úr því verður oft til eitthvað
áhugavert. Ninja [forsöngvari sveitarinnar]
hefur t.d. ekkert vit á því sem ég er að hlusta
á. En það skiptir engu máli, það eru samlegð-
aráhrifin sem skipta öllu. Mér finnst það per-
sónulega áhugaverðara en öll þessi með-
almennskulegu indíbönd þar sem meðlimir
eru skólafélagar og virðast allir hlusta á sömu
tónlistina. Það er eitthvað við það að bræða
saman ólíka stíla sem heillar mig.“
Það er gott að vera í Brighton
– Nú ert þú, og tveir aðrir í bandinu, frá
Brighton, sem er mikill tónlistarbær. Hafði sá
frjói jarðvegur áhrif á þig upprunalega?
„Nei, við erum a.m.k. ekki hluti af neinni
senu þar. En það er sannarlega gott að vera
þar, það er mikið af hljómsveitum og margt að
gerast. En það er enginn Brighton-hljómur,
ólíkt við Bristol-hljóminn t.d.“
– Hvernig var að hafa Mike Watt uppi á
sviði hjá sér?
„(Hlær) Það var svolítið sérstakt [Mike
Watt er fyrrverandi meðlimur í hinni mjög svo
áhrifaríku síðpönksveit Minutemen. Hann
spilar í dag á bassa með The Stooges, m.a.].
Alveg hreint frábært reyndar (það lifnar mik-
ið yfir Parton við þessa spurningu). Við erum í
reglulegu sambandi við hann, og fáum tölvu-
póst frá honum vikulega. Við spiluðum með
Sonic Youth og Flaming Lips um daginn, al-
gjör draumur. Mike Watt kom að tékka á okk-
ur, ferskur eftir að hafa æft með The Stooges
og í miklu stuði. Hann lék svo með okkur í
Ástralíu. Hann er einn af þeim gaurum sem
eru alltaf að tékka á nýjum hljómsveitum. Svo
spilaði hann með okkur á Coachella-hátíðinni
aftur. Hann er svo sjálfsgagnrýninn, var alveg
í rusli eftir að hafa leikið með okkur, fannst
hann hafa klúðrað öllu!“
– Og að lokum, hvernig líst þér að vera að
koma hingað?
„Vel. Þetta er einn af þeim stöðum sem við
höfum ekki heimsótt og ég hef bara heyrt góð-
ar sögur af honum. Ég hef heyrt að allt sé
mjög „svalt“ á Íslandi (hlær).“
Tónlist | Go! Team, ein allra besta tónleikasveit síðustu tveggja ára, spilar á Iceland Airwaves
„Samlegðaráhrifin skipta öllu“
The Go! Team Sveitin leikur á Airwaives síðar í mánuðinum en liðsmenn ætla að eigin sögn að
koma hingað til lands nokkrum dögum fyrr og „anda að sér hinni einstöku Íslandsstemningu“.
www.icelandairwaves.com
Miðasala á hátíðina er hafin. Miða má nálgast
í verslunum Skífunnar á Laugavegi, í Kringl-
unni og Smáralind og verslunum BT á Ak-
ureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Miðaverð er
6.900 krónur auk 460 króna miðagjalds og
fæst fyrir það aðgangur að öllum viðburðum
hátíðarinnar. Alls koma um 180 hljómsveitir,
tónlistarmenn og plötusnúðar fram í ár á sjö
tónleikastöðum. Iceland Airwaves stendur
yfir dagana 18. til 22. október.
|sunnudagur|1. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Bragi Ásgeirsson fjallar um
Listamannaskálann við Kirkju-
stræti 12 og sýningarstarfsem-
ina sem þar fór fram. » 61
sjónspegill
Gagnrýnendur taka fyrir fjórar
af þeim myndum sem sýndar
eru á Alþjóðlegri kvikmyndahá-
tíð í Reykjavík. » 62
bíó
Hinn 13. nóv. nk. kemur út ný
sólóplata Jarvis Cockers, fyrr-
verandi söngvara Pulp, sem ber
skírnarnafn söngvarans. » 64
fólk
Í sunnudagspistli sínum fjallar
Árni Matthíasson um feril hinn-
ar landflótta dönsku hljóm-
sveitar Mew. » 63
tónlist
Ríkarður Ö. Pálsson skellti sér á
sinfóníutónleika þar sem leikin
voru verk eftir Penderecki undir
stjórn tónskáldsins sjálfs. » 65
dómur
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
SÖNGSVEITIN Fílharmónía flytur
verkið Carmina Burana eftir Carl
Orff í Langholtskirkju í dag kl. 17:00
og næstkomandi miðvikudag kl.
20:00. Verkið var frumflutt af Söng-
sveitinni hér á landi árið 1960 en hún
endurnýjaði kynni sín við það á 45 ára
afmæli kórsins vorið 2005 og mun nú
flytja það aftur á tvennum tónleikum.
Aðspurður af hverju kórinn ákvað að
taka þetta verk upp aftur svarar
Magnús Ragnarsson, stjórnandi
Söngsveitarinnar, því að það sé löng
saga. „Kórnum var boðið að fara til
Búlgaríu til að vinna með þarlendri
hljómsveit nú í haust, við ákváðum að
finna verk sem kórinn kynni og þar
sem við vorum nýbúin að flytja
Carmina Burana ákváðum við að fara
með það út. En í millitíðinni var hætt
við þessa Búlgaríuferð og þar sem við
vorum búin að æfa verkið ákváðum
við að skella á tvennum tónleikum hér
heima nú í haust. Seinast þegar við
fluttum verkið komust færri að en
vildu og fannst okkur því tilvalið að
bjóða upp á fleiri tónleika.“
Magnús segir að hann hafi ekki
breytt miklu í flutningnum síðan í
fyrravor en hann hafi samt ekki stað-
ist mátið að gera hann aðeins leik-
rænni. „Carmina Burana er skrifað
fyrir leikhús og við vildum hafa smá-
hreyfanleika í þessu. Verkið er samið
árið 1936 við gömul ljóð farandsöngv-
ara sem fjalla um fallvaltleika gæf-
unnar, ástir og örlög, drykkju, daður
og gleðskap. Á tónleikunum verður
verkið flutt í útsetningu sem Carl
Orff gerði sjálfur fyrir tvö píanó og
slagverk, kóra og einsöngvara.“
Flytjendur Carmina Burana að þessu
sinni auk Söngsveitarinnar Fílharm-
óníu eru þau Hallveig Rúnarsdóttir
sópran, Bergþór Pálsson baríton og
Einar Clausen tenór. Píanóleik-
ararnir Guðríður St. Sigurðardóttir
og Kristinn Örn Kristinsson, sex
slagverksleikarar og Drengjakór
Kársnesskóla.
Íslenskt tónverk á
listahátíð í Litháen
„Söngsveitin hefur gaman af þessu
verki og það munu áheyrendur á tón-
leikunum finna,“ segir Magnús sem
tók við stjórn kórsins í byrjun þessa
árs. „Stjórnandastarfið hefur verið
gott það sem af er árinu, ég er
ánægður með kórmeðlimi og þeir
með mig.“ Framundan hjá Söngsveit-
inni Fílharmóníu eru aðventu-
tónleikar með öðruvísi sniði að sögn
Magnúsar. „Á aðventutónleikunum
munum við flakka um heiminn og
syngja jólalög héðan og þaðan sem
tengjast öll Maríu. Síðan eru páska-
tónleikar og næsta sumar stefnum
við að því að fara á listahátíð í Litháen
með íslenskt tónverk.“
Tónlist | Söngsveitin Fílharmónía flytur Carmina Burana í Langholtskirkju
Fílharmónía syngur um fallvaltleika gæfunnar
Morgunblaðið/Golli
Endurnýjuð kynni Verkið Carmina Burana eftir Carl Orff var frumflutt af Söngsveitinni Fílharmóníu hér árið 1960.