Æskan - 01.12.1972, Blaðsíða 75
Ljósm.: Arngrímur SigurSsson.
I. nóvember 1967 eignaðist flugvéiina Flugfélagið Þór hf.,
Keflavík (skr. 11. 11. 68).
26. febr. 1970 keyptu hana Haukur og Örn Helgasynir, Laugar-
vatni.
5. sept. 1970 hvolfdl fiugvélinni í lendingu við Laugarvatn.
Menn sluppu án verulegra meiðsla, en vélin skemmdist mikið.
16. júlí 1971 flýgur flugvélin á ný og þá eign Guðjóns Sigur-
geirssonar og Muhammeds Alis Shawkys.
II. nóv. 1971 brotlenti vélin á þjóðveginum nálægt Svignaskarði.
Flugmaður og farþegi sluppu ómeiddir, en vélin skemmdist mikið.
CESSNA 140: Hreyflar: Einn 85 ha. Continental C-85-12! Vænghaf:
10.07 m. Lengd: 6.29 m. Hæð: 1.89 m. Vængflötur: 14.8 mL Far-
Þegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 457 kg. Hámarksflugtaks-
þyngd: 658 kg. Arðfarmur: 55 kg. Farflughraði: 170 km/t. Há-
markshraði: 225 km/t. Flugdrægi: 780 km, Hámarksflughæð:
4.720 m. 1. flug: 1947.
Ljósm.: Haraldur Stefánsson.
NR. 117 TF-FID
DOUGLAS SKYMASTER
Skráð hér 11. febrúar 1963 sem TF-FID, eign Flugfélags Is-
lands hf. Flugvél þessi var hér fyrst sem leiguflugvél (N 49529).
Hún hafði áður verið eign North West Airlines og síðan Air New
Mexico. Hér hlaut hún nafnið Straumfaxi.
Hún var smíðuð 17. júní 1944 hjá Douglas Alrcraft Co., Santa
M°nica, Kalif. Raðnúmer: 10325.
Þessi flugvél var notuð á leiðum Flugfélags íslands utanlands
og innan — og einnig í Grænlandsflugi — unz hún var seld flug-
félaginu Africair í Suður-Afríku. Hún var tekin af skrá hér 23.
ágúst 1967.
DOUGLAS C-54E SKYWIASTER: Hreyflar: Fjórir 1450 ha. Pratt &
Whitney R-2000-13. Vænghaf: 35.85 m. Lengd: 28.65 m. Hæð:
8.39 m. Vængflötur: 135.4 nrR. Farþegafjöldi: 63. Áhöfn: 4. Tóma-
þyngd: 20.620 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 33.113 kg. Arðfarmur:
1.773 kg. Farflughraði: 360 km/t. Hámarkshraði: 480 km/t. Flug-
drægi: 2.700 km. Flughæð: 6.800 m. 1. flug: 1939 (C-54, 1942).
Ljósm.: Björn Pálsson.
NR. 118 TF-LOA
TWIN PIONEER
Skrásett hér 30. marz 1963 sem TF-LOA, eign Björns Pálssonar.
Flugvél þessi var keypt í Iran (Persíu) fyrir miiligöngu Keegan
Aviation Ltd., en hún hafði áður verið i eigu Civil Aviation Club
í Teheran (skrásett þar ÉP-AGA, 1. júní 1958).
Hún var smíðuð hjá Scottish Aviation, Prestwick Airport, Skot-
landi. Raðnúmerið var 516.
Flugvél þessi var þannig úr garði gerð, að hún gat flogið afar
bratt upp og niður og lent og hafið sig á loft á litlu svæði. Þrátt
fyrir þessa góðu eiginleika varð nýting hennar ekki sem skyldi.
9. desember 1965 var flugvélin afskráð hér, þar sem hún
hafðl verið seld North Coast Air Service, Prince Rupert, Kanada.
TWIN PIONEER SERIES 1: Hreyflar: Tveir 540 ha. Alvis Leonides
(504-8 og 514-8A). Vænghaf: 23.31 m. Lengd: 13.74 m. Hæð: 4.17
m. Vængflötur: 61.03 mL. Farþegafjöldi: 14—16. Áhöfn: 2. Tóma-
þyngd: 4.007 kg. Grunnþyngd: 4.160 kg. Hámarksflugtaksþyngd:
5.663 kg. Arðfarmur: 1.215 kg. Farflughraði: 274 km/t. Hámarks-
hraði: 297 km/t. Flugdrægi: 960 km. Flughæð: 6.100 m. 1. flug:
25. júní 1955.
NR. 119 TF-BAB
CESSNA 140A
Skráð hér 2. júli 1963 sem TF-BAB, eign flugskólans Þyts hf.
Flugvélin var keypt frá Bandaríkjunum af Aero Activities, Inc.,
Detroit (N1157D); ætluð hér tll kennsluflugs.
73