Morgunblaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 31
am jmA auoAauiam .aio/. jaiíunsoM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL1986
Tveir FBI-
menn drepnir
í blóðugum
skotbardaga
TVEIR starfsmenn banda-
rísku alríkislögreglunnar,
FBI, voru nýlega skotnir til
bana og fimm félagar þeirra
særðir, þegar til skotbardaga
kom milli þeirra og tveggja
glæpamanna. Hinir síðast-
nefndu létu einnig iífið. Eru
þetta blóðugustu átök, sem
um getur í sögu FBI. Hófust
þau, er FBI-mennirnir stöðv-
uðu bil í útjaðri Miami á
Florida vegna gruns um að
ökumaður hans og farþegi
hefðu ítrekað rænt peninga-
flutningafyrirtæki i Florida.
Myndin er tekin, er verið er
að flytja særðan lögreglu-
mann af vettvangi.
Fyrrum lífvörður
Trotskys og ævi-
söguritari myrtur
Thorsmans sjökrækjan er afar
hentug þegar ijós og rörlagnir skulu
fest í loft upp.
Mexíkóborg. AP.
JEAN van Heijenoort, bandarískur stærðfræðingur, sem lengi
var lífvörður sovéska byltingarleiðtogans Leon Trotskys, var
skotinn til bana 29. mars sl. Vegandinn var þriðja eiginkona
Heijenoorts og framdi hún sjálfsmorð eftir að hafa ráðið eigin-
manni sínum bana, að sögn saksóknarans í Mexíkóborg. Heijeno-
ort var 76 ára að aldri.
í tilkynningu, sem saksóknara- fræði, og hlaut hann þá bandarísk-
embættið gaf út á sunnudag, var an ríkisborgararétt.
hvorki greint frá einstökum atriðum Seinna ritaði Heijenoort ævisögu
málsins né gefin skýring á því, Trotskys og var talinn einn helsti
hvers vegna ekki hefði verið sagt sérfræðingur um líf og starf bylt-
opinberlega frá því fyrr. ingarmannsins.
Hin opinbera fréttastofa Mexíkó, Ana Maria Zamora giftist Heij-
Notimex, sagði frá því á sunnudag, enoort árið 1969. Hún var dóttir
að eiginkona Heijenoorts, Ana Adolfo Zamora, mexíkansks
Maria Zamora, hefði skotið hann menntamanns, sem einnig tók þátt
til bana með skammbyssu, meðan í baráttu Trotskys og samhetja
hann svaf, og sjálfa sig á eftir. Enn hans gegn Stalín.
fremur sagði, að lík þeirra hefðu
fundist daginn eftir. Haft var eftir
ótilgreindum yfirvöldum, að um
„ástríðuglæp“ hefði verið að ræða.
Hjónin bjuggu í lúxushverfi í
vesturhluta Mexíkóborgar, en Heij-
enoort var oft langdvölum í Banda-
ríkjunum vegna starfa í fræðigrein
sinni.
Heijenoort fæddist í Creil í
Frakklandi. Milli 1932-39 bjó hann
hjá Trotsky í Evrópu og seinna í
Mexíkóborg og gegndi störfum líf-
varðar og ritara útlagans.
Níu mánuðum áður en Trotsky
var myrtur að undirlagi Jósefs
Stalíns, hélt Heienoort til Banda-
ríkjanna til framhaldsnáms í stærð-
Marcos í viðtali við
The New York Times:
Get allténd
sett upp
verslun með
„notað og nýtt“
New York. AP.
FERDINAND Marcos, fyrrver-
andi Filippseyjaforseti, segir í
viðtali, sem birtist í bandaríska
blaðinu The New York Times í
gær, að hann sé ekki lengur eins
bitur og hann hafi verið, fyrst
eftir að honum var ýtt úr valda-
sessi. Segist hann ekki hafa
áhuga á að blanda sér í stjórn-
mál á nýjan leik, en hann vilji
gjarnan snúa aftur heim til
Filippseyja og „hverfa í fjöld-
ann“.
Marcos segir í viðtalinu, að hann
sé kominn yfír tímabil þunglyndis,
biturleika og martraða, sem hafi
íþyngt honum, eftir að hann flúði
frá Filippseyjum fyrir sex vikum.
Forsetinn fyrrverandi bregður
jafnvel fyrir sig spaugi á heimili
sínu í Honolulu og segist allténd
geta, „ef allt um þrýtur“, sett á
fót verslun með „notað og nýtt“
og selt skópörin 3000, sem fundust
í forsetahöllinni í Manila.
„Mér fannst vera komið illa fram
við mig fyrstu tvær fyrstu vikurnar
í Bandaríkjunum, en nú er ég
kominn yfir það,“ segir Marcos í
viðtalinu.
Hann segir, að biturleiki sinn
hafi beinst gegn „öllum, en þó
mest gegn sjálfum mér fyrir að
hafa látið plata mig til að yfirgefa
forsetahöllina".
Naglatappinn frá Thorsmans með
skrúfuhausnum er notaður við
ísetningu á hurðum og þegar festa
skal hillum og milliveggjagrindum.
Thorsmans múrboltinn er ákjósan-
leg festing fyrir hringstiga úr málmi
og til ísetningar á gluggum og bíl-
skúrshurðum.
Þau eru á föstu... og strax farin að spá í framtíðina. En það er ekki sama hvernig maður
„festir ráð sitt“. Thorsmans festing hinsvegar, sé hún valin rétt, svíkur engan.
Thorsmans vörurtil festingar fást í sérverslunum ásamt leiðbeiningarbæklingi.