Morgunblaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 61
'MORGtJNBLAÐn3, ÞRl|)JUDA(?UR/15. APRÍL1986
Unnarsdóttir, fagna sigri. Rósa Ólafsdóttir stendur fyrir aftan hana
ásamt Júlíusi Guðinundssyni. Bæði urðu meistarar i sínum þyngdar-
flokkum og Julíus jafnframt íslandsmeistari unglinga.
„Alltaf
ágreiningiir
umúrslit“
— segir Valbjörn Jónsson
VALBJÖRN Jónsson vaxtar-
ræktarmaður úr Reykjavík fór
verst útúr því að Jón Páll mætti
óvænt til keppni með stuttum
fyrirvara. Hann lenti f sama
flokki, sem hann hefði annars
verið öruggur um að sigra og
hefði því getað keppt um íslands-
meistara yfir heildina. Morgun-
blaðið spjallaði við hann um
heildar úrslitin í karlaflokki.
„Bæði Sigurður Gestsson og Jón
Páll eru nokkuð frá sínu besta, en
ég tel að Jón hefði hiklaust átt að
vinna. Hann hafði meiri vöðva-
massa en Sigurður sem var mun
flatari að vexti. Það verður að
muna það að dómaramir dæma
náttúrulega eftir sínum smekk. Ég
er ekki að álasa Sigurði, hann er
góður keppnismaður. Þar sem að-
eins eitt mót er ár hvert er alltaf
ágreiningur um úrslit, þegar svona
jafnt er á með keppendum. Mér
fannst ótækt að Akureyringar ættu
meginhluta í dómnefnd." sagði
Valbjöm.
„Það er stutt síðan Jón Páll ákvað
að keppa og kannski hafa einhveijir
dómaranna haft það að leiðarljósi
að hann mætti ekki vinna, íþróttar-
innar vegna. Finndist blóðugt að
einhver gæti náð sér upp á hálfum
mánuði, komið og unnið. Ég vissi
að Jón myndi vinna mig, en var
engu að síður jákvæður fyrir því
að hann myndi keppa, en það vom
ekki allir dómaramir. Annars er ég
ánægður með mótið. Kári Elísson
var t.d. sérstaklega skemmtilegur
og náði sér vel á strik á stuttum
tíma eins og Jón Páll.“ sagði Val-
bjöm.
„Var hrædd-
ur en sig-
urviss“
— sagði íslandsmeistari
unglinga Júlíus Guðmundsson
„MÉR líður rosalega vel eftir
sigurinn. Þetta var hrikalega
spennandi og það hefur aldrei
verið jafnmikil keppni," sagði
íslandsmeistari unglinga og sig-
urvegari í flokki unglinga yfir
75 kg.
Einar Guðmann frá Akureyri
kom þeim Júlíusi og ívari Hauks-
syni frá Reykjavík í opna skjöldu.
TVeir hinir síðamefndu höfðu búist
við að eigast við um toppsætið.
„Hann er rosalegur, ég hef aldrei
séð svona fætur." sagði ívar. Einar
hafði þjálfast gífurlega frá fyrra
ári, sem nægði til að leggja ívar
að velli, en Júlíus var hinsvegar
bestur þeirra, þrátt fyrir allt. „Ég
var hræddur en sigurviss á meðan
keppnin stóð,“ sagði Júlíus. Ég
ætla að taka mér hvíld frá vaxtar-
rækt á næsta ári, en koma síðan
aftur öllu meiri á skrokkinn síðar.
Það er gaman að finna fyrir
skrokknum og hafa stjóm á vöðvun-
um. Þess vegna er ég að þessu,
síðan er alltaf gaman að vinna."
„Var engan
veginn örugg
um að vinna“
— segir Marta Unnarsdóttir
íslandsmeistari kvenna
„ÞAÐ var stórkostlegt að vinna
eftir allt sem maður er búinn að
leggja á sig. Æfa eins og skepna
og geta ekki borðað nema sér-
stakt fæði. Ekkert súkkulaði_“
Svo mælti Marta Unnarsdóttir
íslandsmeistari kvenna og sigur-
vegari í þyngri kvennaflokki.
„Eg hefði ekki viljað búa með sjálfri
mér síðustu vikumar" sagði Marta
um leið og hún nartaði í brauðsneið
þá fyrstu í langan tíma með smjöri.
„Mataræðið var hræðilegt, svo sér-
hæft og það fór í skapið á mér.
Ómerkilegustu smáatriði fóm í
taugamar á mér, en það gleymist
allt þegar sigurinn er í höfn. Ég
var engan veginn öragg um að
vinna, hefði verið ánægð að komast
bara í úrslit. Andstæðingamir vora
mjög góðir. Ég fann mig vel á svið-
inu, sönglaði jafnvel með sumum
lögunum, sem spiluð vora á meðan
á sýningu stóð. Ég hef öðlast meira
sjálfstraust með því að keppa og
svo er alltaf gaman að fá viðurkenn-
ingu fyrir erfiði,“ sagði Marta og
kvaðst hún einnig ætla að halda
titlinum sterkasta kona landsins á
næsta kraftlyftingamóti.
B I N C 0
Bein útsending í Borgaraesi. Stjóraendur bingósins Þórður Ing-
ólfsson og Árai Sigmundsson og upptökustjórinn Hörður Jóhanns-
son.
Borgarnes:
Bingó í beinni
útsendingu
Borgarnesi.
í VIKUNNI hélt knattspyrnu-
deild Umf. Skallagríms í Bor-
garnesi bingó í beinni útsend-
ingu í kapalkerfi Útvarps-,
sjónvarps- og vídeófélags Borg-
arness, ÚSVB. Þetta er fyrsta
beina útsendingin i kapalkerf-
inu, sem hefur verið starfandi
í Borgarnesi síðan árið 1981.
Tókst þessi útsending mjög vel,
þrátt fyrir nokkra byijunarörð-
ugleika, sem voru nær allir á
tæknilega sviðinu.
Spilaðar vora fjórar umferðir í
þessu bingói. Þeir sem fengu
bingó hringdu í upptökusalinn og
var þá farið yfír þeirra spjald. Ef
það reyndist rétt þá var sent út
létt tónlistarefni í kapalkerfinu á
meðan sá heppni hraðaði sér með
bingóspjaldið á útsendingarstað-
inn að Hrafnakletti 6. Er vinn-
ingshafinn mætti á staðinn var
slökkt á myndbandinu með tón-
listarefninu og hafin bein útsend-
ing frá afhendingu vinninga. Að
þessu loknu var bingóinu haldið
áfram þar til síminn hringdi aftur
og einhver annar kallaði bingó ...
- TKÞ.
BETRA ÚTLIT
OG BETRIVELLÍÐAN
SNYRTISTOFA LIUU,
ENGIHJALLA8, KAUPGARÐI, 2. HÆÐ. KÓP.
Stofan býður upp á 10% afmælisafslátt út þennan mánuð,
erum með alla almenna snyrtingu, fótsnyrtingu og nudd,
ennfremur hina áhrifaríku Cathiodermie-húðmeðferð,
brjóstameðferð, augnmeðferð og hálsmeðferð.
Símapantanir í síma 46620.
VERIÐ VELKOMIN
bobob
Fyrsta sending seldist upp á mettíma.
Nýsending komin, 10 mismunandi lita-
samsetningar
Bobob er nýtískulegur stóll fyrir nútíma-
fólk.
1. Áklæði með 28 mm þykkri bólstr-
un, 3 litasamsetningar.
2. 3 litirá grunni.
3. Axlaólar i efri stillingu fyrir 2ja
ára og uppúr.
4. Axlaólar í neðri stillingu fyrir aö
2ja ára aldri.
5. 4 punkta öryggisbelti, losnar i 4
lausatauma.
6. Læsing öryggisbelta, ein smella
læsir öllum 4.
7. Stálgrind í 3 litum.
8. Festingaólar í gólf sem fylgja,
einnig má nota sætabelti í aftur-
sæti.
9. Háar hliðar skorða barnið af.
0. Bóistruð seta. Klæðningu er
hægt að vernda.
1. Slétturbotn.
Armurtil þess að ráða halla stóls-
ins. Stillanlegur úr framsæti með
fisléttu átaki.
Heildsölubirgðir
Póstsendum
KLAPPARSTÍG 27, SÍMI 19910.