Morgunblaðið - 29.05.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.05.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986 Davfð Oddsson, borgarstjóri. ■m Katrín Fjeldsted. Arni Sigfússon Birgir Isleifur Gunnarsson. Útifundur Sjálfstæðisflokksins á Lækjartorgi í dag kl. 17:15 SÍÐDEGIS í dag efnir Sjálf- stæðisflokkurinn til útifundar á Lækjartorgi, þar sem Davíð Oddsson, borgarstjóri, og fram- bjóðendurnir Katrfn Fjeldsted og Árni Sigfússon flytja ávðrp. Fundurinn, sem hefst kl. 17:15, er haldinn undir kjörorðunum: „Styrk stjórn í Reykjavfk. Sof- um ekki á verðinum." Hljómsveit undir stjóm Stefáns Stefánssonar leikur á Lækjartorgi í hálfa klukkustund áður en fund- urinn hefst, og einnig munu þrír ffambjóðendur sjálfstæðismanna, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Júlíus Hafstein og Haraldur Blöndal tefla skák á útitaflinu milli klukk- an 16:45 og 17:15. Á útifundinum flytja hljómlist- armenn og söngvarar Reykjavík- urlög. Það er hljómsveit Magnús- ar Kjartanssonar ásamt söngvur- unum Ellen Kristjánsdóttur og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, sem annast flutninginn. Þá les Helgi Skúlason, leikari, ljóð. Fundarstjóri á útifundi sjálf- stæðismanna verður Birgir ísleif- ur Gunnarsson, alþingismaður. Magnús Kjartansson. Sigrún Hjálmtýsdóttir. Ellen Kristj ánsdóttir. Helgi Skúlason. Sefán Stefánsson. Siguijón Pétursson frambjóðandi Alþýðubandalagsins: Helstu embættísmenn borgar innar þarf að losa úr starfi SIGURJÓN Pétursson, sem skipar fyrsta sætið á lista AI- þýðubandalagsins í Reykjavík, segir, að leysa þurfi helstu embættismenn Reylgavíkurborgar frá störfum. „Þetta hefur lengi verið stefna okkar og er það áfram óbreytt," sagði hann, þegar leitað var álits hans á þeim ummælum Óssurar Skarphéðinssonar, sem skipar fjórða sætið á listanum, að Alþýðubandalagið muni fæla eða reka alla æðstu embættis- menn borgarinnar úr störfum komist það til valda í Reykjavík. Siguijón sagði, að það hefði lengi verið á stefiiuskrá Alþýðu- bandalagsins fyrir borgarstjómar- kosningar, að ákveðin æðstu embætti Ixirgarinnar ættu alltaf að vera laus við hveijar kosningar. „Það ættu að vera embættismenn, sem fylgdu viðkomandi meirihluta að málum og störfuðu með honum og fyrir hann. Jaftiframt höfum við verið með þá kenningu uppi, að aðra embættismenn, sem gegna lykilembættum, ætti að ráða til skamms tíma, þannig að það verði hægt að losa um þá á hverju einasta kjörtímabili," sagði hann. Siguijón var spurður um þau ummæli Össurar, að embættis- menn borgarinnar hefðu unnið skemmdarverk á valdatíma vinstri manna. „Ég hef nú ekki sjálfur orðað það þannig, en ég hef sagt og segi enn, að embættismennim- ir störfuðu ekki með okkur. Þeir sinntu þeim störfum, sem þeim var falið, en þeir gerðu margir hveijir ekkert umfram það. Þetta er auðvitað unnt að flokka undir skemmdarverk, það er spuming um það hvemig menn túlka það,“ sagði hann. Siguijón Pétursson kvaðst vilja vekja athygli á þvf, að á núverandi kjörtímabili hefðu embættismenn verið flæmdir úr störfum. Nefndi hann í því sambandi fræðslustjóra Reykjavíkur, forstjóra Bæjarút- gerðarinnar og forstöðumann Borgarskipulags. Einnig nefiidi hann uppsagnir á annað hundrað starfsmanna Bæjarútgerðarinnar. „Fordæmið er gefíð og eftirleikur- inn verður auðveldari nú en nokkru sinni áður," sagði hann. Listasafn íslands: Sýning á verkum Karls Kvaran | í LISTASAFNI fslands verður opnuð yfírlitssýning á verkum Karls Kvaran sunnudaginn 1. júní í tilefni Listahatíðar í ' Reykjavík 1968. Sýnd eru 96 verk, olíumálverk, gvassmyndir, 1 vatnslitamyndir og kUppimyndir sem fengnar hafa verið að láni frá einkaaðilum, opinberum stofnunum og af söfnum. Selma Jónsdóttir segir í aðfarar- ; orðum í sýningarskrá að Karl hafí alla sína starfsævi helgað sig list- inni eingöngu. Ungur að aldri hafí hann aðhyllst hið strang-abstrakta málverk og hafi alla tíð verið sjálf- ; um sér samkvæmur og trúr því listformi eins og sýningin beri ljós- ast vitni um. „Innan þessara marka hefur Karl mótað sjálfstæðan og persónulegan stíl, sterkan og áhrifamikinn. Listasafni íslands er mikil ánægja að fá nú tækifæri til að kynna í safninu árangur af 45 ára starfsferli Karls Kvaran," segir þar að lokum. Karl Kvaran fæddist árið 1924 á Borðeyri við HrútaQörð en flutti til Reykjavíkur ungur. Gekk fyrst í einkaskóla Marteins Guðmundsson- ar og Bjöms Bjömssonar á ámnum 1939 til 1940 og í skóla Jóhanns Briem og Finns Jónssonar árin 1941 til 1942. Hann stundaði nám við Handíða- og myndlistaskólann árið 1942 og var Þorvaldur Skúlason aðalkennari hans þar. í Kaup- mannahöfn stundaði hann nám við Konunglegu akademíuna og i einkaskóla Rostrup Böyesen á ámn- um 1945 til 1948. Verk sín sýndi Karl fyrst á Listamannaþingi 1950 og sína fyrstu einkasýningu hélt | hann f Listvinasalnum 1953, en þá < síðustu i Listmunahúsinu á nýliðnu ári. Yfírlitssýningin i Listasafninu I stendur til 29. júnf og er opin daglega fiá kl. 13:30 til 22:00 meðan á Listahátfð stendur. KarlKvaran Kjarvalsstaðir: Sýning á verkum sem tengjast Reykjavík Á KJARVALSSTÖÐUM verður opnuð sýningin „Reykjavík í myndlist“, á opnunarhátíð Listahátíðar laugardaginn 31. maí nk. Sýningin er haldin í tilefni hátíöarinnar og 200 ára afmælis Reykjavíkur. í byijun þessa árs bauð stjóm Kjarvalsstaða starfandi mynd- listarmönnum að taka þátt í sýn- ingunni og bámst dómnefnd á annað hundrað verk. Af þeim vom valin 60 verk sem tengjast Reykjavík á einn eða annan hátt eftir 33 listamenn á öllum aldri. Margir þeirra em þjóðkunnir, aðrir minna þekktir. Markmið sýningarinnar er að hvetja myndlistarmenn til að taka virk- an og skapandi þátt í afmælis- hátíðarhöldunum og jafnframt gefa almenningi kost á að sjá hveijum augum listamenn líta borgina eins og segir í frétt frá sýningamefnd. Dómnefnd skip- uðu þau Hulda Valtýsdóttir borgarfulltrúi og myndlista- mennimir Eyjólfur Einarsson og Ragna Róbertsdóttir. Morgunblaflið/RAX Dómnefndin virðir fyrir sér eht verkanna, frá vinstn: Eyjólfur Einarsson, Ragna Róbertsdóttir, Hulda Valtýsdóttir og Þóra Jóns- dóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.