Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 41

Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986 41 Athugasemd frá borgarlækni MORGUNBLÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Skúla G. Johnsen, borgarlækni: í Þjóðviljanum í dag, miðviku- daginn 28. maí, er vitnað í útvarps- viðtal við undirritaðan og látið líta svo út, að orðrétt sé haft eftir. Það sem blaðið birtir er hins vegar stfl- færð útgáfa af efninu. Ekki hefur það verið borið undir mig og ekki birt með mínu leyfí. Útvarpsviðtal það, sem notað var í þessum tilgangi fjallaði um heil- brigðispólitísk atriði sem hafa ann- að slagið komið til umræðu hér á landi a.m.k. sl. 20 ár, þ.e. hvemig skipulag heilbrigðisþjónustunnar hér á landi hafi leitt til mikils vaxtar í tilteknum þáttum heilbrigð- isþjónustunnar, en lítils vaxtar eða stöðnunar í öðrum. Þessi umræða hefur verið lífleg í öllum nágranna- löndum okkar undanfama áratugi. Það er ósmekkleg blaðamennska, sem vala getur þjónað góðum mál- stað, að spyrða saman, þessa um- ræðu úr lagi færða annars vegar og hins vegar frásögn af heilsu- gæslumálum í Breiðholtshverfum, sem er skrifuð f kosningastfl. Þar sem fleiri en blaðamaður Þjóðviljans hafa orðið til þess að gefa ranga mynd af uppbyggingu heilsugæslunnar hér í borginni, vil ég gera örstutta grein fyrir þeim málum. Sem borgarlæknir hef ég haft nokkum forgang um þessi málefni hér í borg sl. 12 ár og málið mér því skylt. Þegar lögin um heilsugæslu- stöðvar tóku gildi fyrir 12 ámm höfðu borgaryfírvöld tilbúnar ítar- legar tillögur um framtíðarfyrir- komulag læknisþjónustu utan sjúkrahúsa í Reykjavík. í tillögum þessum er m.a. að fínna flestar þær hugmyndir, sem liggja að baki heilsugæslustöðvunum í dag. Við samþykkt heilbrigðisþjón- ustulaganna var gert upp á milli íbúa landsins eftir búsetu að því er varðaði uppbyggingu opinberrar þjónustu, sem öllum er jafn nauð- synleg. Einnig samþykkti alþingi að ríkissjóður skyldi greiða 85% stofnkostnaðar af heilsugæslu- stöðvum, sem þýddi afgerandi for- ystu ríkisins í þessum máium og jafnframt að slegið var á frumkvæði sveitarfélaganna. Forgangsregl- unni hefur verið fylgt allt til þessa dags, enda hafa ekki nema 5% fjár- veitinga ríkissjóðs til heilsugæslu- stöðva frá 1924 mnnið til Reykja- víkur. Þrátt fyrir að litlar sem engar fjárveitingar hafa fengist til heilsu- gæslustöðva í Reykjavík, þá hefur Athugasemd VEGNA fréttar á bls. 2 í Morgun- blaðinu sl. miðvikudag um samn- ing Akranesbæjar og ríkisins um skólabyggingar hefur Ingibjörg Pálmadóttir bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins og skólanefnd- armaður i grunnskólanum óskað að koma eftirfarandi athuga- semd á framfæri: Það er rangt sem segir í niðurlagi fréttarinnar að minnihlutaflokkam- ir í bæjarstjóm hafí ekki staðið með þessum samningi því sl. fjögur ár hefur það verið samdóma álit allra skólanefndarmanna að þetta sé eina færa leiðin og fögnum við því ein- róma að meirihlutinn hafí loksins tekið við sér í þessu máli. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! tekist að koma á fót 5 heilsugæslu- stöðvum, auk þess sem samningur er um fulla þjónustu fyrir Reykvík- inga í Heilsugæslustöðinni á Sel- tjamamesi. Heilsugæslustöðvamar vom teknar í notkun sem hér segir: í Árbæ 1977, í Asparfelli 1978, í Fossvogi 1981, samningur við Seltjamameskaupstað 1981, í Mið- bæ 1983 ogHlíðahverfí 1986. Eins og áður segir hefur alþingi daufheyrst við flestum óskum Reykvíkinga um fjárveitingar til heilsugæslustöðva. Ef ekki hefði komið til góður vilji borgarstjómar í þessum málum þá hefðu aðeins 2 heilsugæslustöðvar verið komnar á fót hér í borginni, í Arbæ og Miðbæ. Hinar stöðvamar hafa risið á kostnað borgarsjóðs. Á undanfömum 4 ámm hefur áfram verið unnið að uppbyggingu heilsugæslustöðva hér í Reykjavík. Skipuð var sérstök bygginganefnd með þátttöku heilbrigðisráðuneytis- ins og síðan gerð áætlun um röð næstu byggingaverkefna. Þá var skipting borgarinnar í heilsugæslu- starfssvæði endurskoðuð og einnig lóðamál heilsugæslustöðvanna í hinum ýmsu hverfum tekin til at- hugunar og lóðum úthlutað fyrir 5 stöðvar. Reykjavík hefur verið skipt í 14 heilsugæslusvæði. Staðan í hvetju hverfí er sem hér segin 1. Seltjamames, Melar og Skeija- §örður, 13.500 íbúar. Heilsu- gæslustöðin á Selljamamesi var byggð til að þjóna a.m.k. 12.000 manns. Óskað hefur verið eftir Qarveitingu til að ljúka innréttingu stöðvarinnar. 2. Vesturbær, 5.500 íbúar. Stað- setning heilsugæslustöðvarinn- ar er ákveðin á homi Garða- strætis og Vesturgötu. Hönnun stendur yfír og gert er ráð fyrir að gerð útboðslýsingar ljúki í byijun næsta árs. 3. Miðbær, 8.700 íbúar. Heilsu- gæslustöðin tók til starfa 1983. 4. Norðurmýri og Tún 5.000 íbú- MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Alfheiði Ingadóttur, for- manni kosningastjórnar Alþýðu- bandalagsins: Á bls. 2 í Morgunblaðinu í dag er uppspunnin „frétt" um undir- búning kosningahátíðar G-listans í Reylqavík. Þó þessi skrif sanni betur en margt annað þá málefna- fátækt sem einkennt hefur kosn- ingabaráttu andstæðinga okkar í vor og geri því lítið annað en að styrkja stöðu Alþýðubandalagsins, hlýt ég að benda lesendum Morgun- blaðsins á að þau eiga ekki við rök að styðjast. Auðvitað hefði verið eðlilegast að Morgunblaðið hefði leitað eftir upplýsingum um undir- búning kosningahátfðarinnar fyrir- fram — fyrst ætlunin var að auglýsa hana svona rækilega fyrir okkur — og hefði ég eða aðrir starfsmenn á kosningaskrifstofunni fúslega veitt þær ef svo hefði verið. Hins vegar er aldrei of seint að láta hið rétta koma í Ijós. í kosningastjóm G-listans sitja sex félagar, auk mín þau Anna Hildur Hildibrandsdóttir, Siguijón Pétursson, Skúli Thoroddsen, Þor- bjöm Guðmundsson og Össur Skarphéðinsson. Kosningastjóri er Steinar Harðarson. Dagskrá kosn- ingahátíðar G-listans var ekki und- irbúin af kosningastjóm heldur af sérstakri dagskrámefnd, sem Margrét Óskarsdóttir leiðir. Hinn 23. maí sl. lágu fyrir drög að dag- skrá hátíðarinnar, sem kynnt vom kosningastjóm, svo og tillaga dag- skrámefndar um ræðumenn, en hún var að fjórir efstu menn G-list- ans og formaður Alþýðubandalags- ins héldu þar stutt ávörp. Eftir nokkrar umræður um hvemig ar. Óákveðið um staðsetningu. 5. Hlíðar, 3.300 íbúar. Stöðin tók til starfa í þessum mánuði. 6. Laugames- og Háaleitishverfí, 7.300 íbúar. Lóð hefur verið úthlutað við Dalbraut. í stað byggingar kæmi einnig til greina að borgin semdi við Heimilislæknastöðina og heil- brigðisráðuneytið um staðsetn- ingu heilsugæslustöðvar við Álftamýri. 7. Nýr miðbær og Gerði, 7.800 íbúar. Staðsetning óákveðin. 8. Fossvogur, 4.300 íbúar. Stöðin tóktilstarfa 1981. 9. Heimar, Vogar og Kleppsholt, 9.500 íbúar. Lóð úthlutað við Holtaveg. 10. Árbæjarhverfí og Selás, 8.400 íbúar. Stöðin opnaði 1977. 11. Breiðholt I, 4.600 íbúar. Lóð úthlutað í Mjódd. 12. Breiðholt II, 8.800 íbúar. Lóð úthlutað við Hjallasel. 13. Breiðhoít III, 11.300 íbúar. Framkvæmdir hafnar við Hraunberg. 14. Grafarvogur. Staðsetning óákveðin. Góð heilsugæsla er komin undir fleim en byggingum. Heilsugæslan byggir fyrst og fremst á góðu skipulagi og góðu, velmenntuðu starfsliði. Hér í borg- inni hefur verið unnið markvisst að því að finna bestu leiðina til að gott heilsugæslukerfí fyrir alla Reykvíkinga verði að vemleika. Um það efni hefur fengist ákjósanleg niðurstaða, sem legið hefur á borð- um ríkisstjómarinnar um nokkurt skeið. Það er hins vegar öllum ljóst sem að þessum málum starfa að alþingi verður að aflétta þeirri forgangs- reglu sem sett var fyrir 12 áram og beitt hefur verið gegn Reykvík- ingum umfram önnur byggðarlög í landinu. Varla er raunhæft að ætla borgarsjóði að axla byrðar ríkis- sjóðs hér eftir, svo sem verið hefur hingað til. Reykjavík, 28. maí 1986. Skúli G. Johnsen, borgarlæknir. landsmálin og þá þingmenn tengj- ast yfirstandandi kosningabaráttu til borgarstjómar var einróma ákveðið að óska eftir því við for- mann AB að hann talaði á fundinum eins og hann hefur reyndar gert víða um land á vegum flokksins undanfama daga. Ég verð því að hryggja andstæð- inga okkar með því að um tillögu dagskrámefndarinnar var alger eining í kosningastjóminni. Alþýðubandalagið gengur sam- hent til þess biýna verks að upplýsa Reykvíkinga um það hvemig borg- inni hefur verið stjómað og í þágu hverra. Álfheiður Ingadóttir, formaður kosningastjórnar G-listans. Aths. ritstj.: Morgunblaðið stendur við frétt sína um ágreining í kosningastjóm Alþýðubandalagsins um ræðuhöld Svavars Gestssonar. Atkvæða- greiðsla fór fram í kosningastjóm- inni um það, hvort Svavar fengi að halda ræðu og hvort hann fengi að halda lokaræðu. Átökin um þetta urðu svo hörð, að einn sijómarmað- ur í kosningastjóm flokksins íhug- aði alvarlega að segja af sér vegna málsins. Vel má vera, að dagskrá fundarins hafí að loknum þessuir deilum verið samþykkt í kosninga- stjóminni „einróma", en sú af- greiðsla hefur þá verið formsatriði. sem engu máli skiptir í þessu sambandi. Athygli vekur, að Álf- heiður mótmælir því ekki að at- kvæðagreiðsla hafí farið fram uir það, hvort Svavar fengi að haldí lokaræðuna. Athugasemd frá Álfheiði Ingadóttur Akstur á kjördag Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða á bifreið til aksturs á kjördegi, laugardaginn 31. maí nk. Upplýsingar eru góðfúslega veittar á skrif- stofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háa- ' leitisbraut 1 frá kl. 09.00—22.00 og frá kl. 13.00—18.00 um helgar. Sjáifstæðisfiokkurinn ■■■ MONZA Sparneytinn bíll á góðu verði Frábærir aksturseiginleikar Framhjóladrifinn BíLVANGURsf HOFÐABAKKA 9 5IMI 687300 Fiymo raf E 30 HandsJáttuvélar ,'WTT'' Snotra UFO 46 kr. 17 900 - Mikið urval sláttuvéla. Allar stœröir af rafmagns- og bensínknúnum vélum, sem henta þér og þínum garöi. Útsölustaður B.B. byggingavörur hf Suöurlandsbraut 4, Reykjavík Sími 33331 Umboðs og heildverslun G.Á. Pétursson hf. Smiöjuvegi 30. Kópavogl Simi 77066 Viögeröa-og varahlutaþjónusta Smiðjuvegl 28. Köpavogi Simi 78600 Flymo L47 loftpúöavél kr. 25.200.- Flymo L 38 kr. 21.600,- Ginge FPrk 46BL kr. 32.800,- Flymo E38 rafknúinn svifnökkvi kr. 11.600 - Flymo E30 kr. 9.500 m&núru

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.