Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
iY((ífÆPí°í''ua'LI tr
Þessir hringdu .
Úrtýndist.
Fjölnir Sigtryggsson hringdi:
„Ég týndi úrinu mínu sl. föstu-
dagskvöld. Ég held það hafi dottið
úr úlpuvasa fyrir framan gisti-
heimilið í Bláa lóninu. Þetta er
japanskt tölvuúr með vísum og
gullhúðaðri festi. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
migí síma 681744.“
Forgangsverkefni að
ganga frá umhverfi
Laugardalsvallar
Anton Erlendsson
hringdi:
„Nú eru um 30 ár síðan Laug-
ardalsvöllurinn var vígður. Enn á
eftir að ganga frá umhverfi vallar-
ins og aðkoman að vellinum alltaf
jafn erfið. Ég ætlaði að leggja til
að það væri forgangsverkefni að
ganga frá umhverfí vallarins á
undan öðrum framkvæmdum í
Laugardal."
Taska tapaðist
Dóra hringdi:
„Ég tapaði töskunni minni á
íjórða tímanum aðfaranótt sl.
sunnudags á Austurvelli. Þetta
er svört leðurtaska með skilríkj-
um, myndavél, sólgleraugum og
fleiru ásamt 700 krónum í pening-
um. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í Dóru Magnús-
dóttur síma 11279 heima og
vinnusíma 687700.“
„En sólin gengur sína
leið“
Gestur hringdi:
„Mig langaði að senda lesend-
um þessa gömlu vísu:
„Tólf em á ári tunglin greið,
tilberaðl3renni,
en sólin gengur sína leið
svo sem guð bauð henni.
Rakara raunir
Bágt er að heyra um erfiða af-
komu hjá rakarastéttinni og að þeir
beijist í bökkum með að halda
atvinnunni gangandi.
Öðru vísi mér áður brá. Fyrir 50
árum voru rakarar velmegandi
menn svo sem Sigurður hjá Eim-
skip, Kjartan í Austurstræti, Eyjólf-
ur í Bankastræti og Óskar f Kirkju-
stræti svo nokkrir séu nefndir.
Fastur taxti á þessum tíma var 1,40
krónur fyrir klippingu og 40 aurar
fyrir rakstur.
Þá var dagvinnukaup hafnar-
verkamanna kr. 1,40 um tfmann.
Svo menn fengu klippingu fyrir
klukkutfma vinnu. Nú er kaup
verkamanna í hæsta flokki eftir 15
ára starf kr. 158,99 á klst. en klipp-
ing kostar frá 350 til 595 krónur
eða að meðaltali um 470 krónur,
Svo að verkamenn eru nú 3 klukku-
tíma að vinna fyrir einni klippingu.
Þá má geta þess að fyrir 50 árum
voru raftæki lítið notuð við klipping-
ar, en greiða og skæri að mestu
eingöngu. Svo það tók lengri tíma
Krabba-
meinsfélag-
ið biðst
afsökunar
Kæra Kristín!
í Velvakanda þann 8.5. sl. hefur
þú orð á mistökum, sem Krabba-
meinsfélaginu urðu á í bréfaskrift-
um sínum til þín. Krabbmeinfélagið
gengst við þessum mistökum og
harmar að þau gátu átt sér stað.
Það er sjálfsögð kurteisi að biðja
þig einnig afsökunar á prenti og
eru þessar línur því ritaðar. Það er
mjög miður að mistök okkar hafa
orðið til að auka angur þitt.
Til að hindra að mistök af þessum
toga endurtaki sig gerum við aukn-
ar ráðstafanir um hert eftirlit með
útsendingu bréfa til þátttakenda í
þeirri rannsókn sem um ræðir.
Með vinsemd og virðingu,
f.h. Krabbameinsfélagsins,
G. Snorri Ingimarsson, læknir,
forstjóri Krabbameinsfélags
íslands.
en nú að klippa hvert höfuð. Getur
svona misræmi gengið átölulaust?
Siguijón Sigurbjörnsson
7970-0886
Þakkir fyrir
frábæra mynd
Ástæða þykir mér til að þakka
forráðamönnum Tónbíós fyrir sýn-
ingu myndarinnar Salvador. Hún
kom róti á huga minn og hvet ég
fólk til að sjá hana áður en það er
um seinan. Þessi kvikmynd er algjör
hvalreki á fjörur okkar, sem þykj-
umst hafa einhvem áhuga á mál-
efnum El-Salvador og annarra
landa sem ekki ósvipað ér ástatt
fyrir. í besta falli getur mynd sem
þessi snert okkur það óþyrmilega
að okkur standi ekki á sama. Enn-
fremur er það ánægjulegt að pen-
ingafabrikkan vestur í Bandaríkj-
unum á það til að taka slík hliðar-
spor sem þessi mynd er vitni um.
Með bestu kveðjum til forráða-
manna Tónabíós.
Ari Tryggvason
Meira um verð á
morgungulli
Kæri Velvakandi.
Ingvar Halldórsson hjá Góðu
fæði h/f., skrifar athugasemd við
f-ein mína hjá Velvakanda 7. maí.
greininni upplýsir hann að Morg-
ungull með rúsínum hafi ekki
hækkað í verði frá framleiðanda
síðan 1. janúar 1986, vafalaust rétt,
en breytir engu um það að allt er
rétt og satt sem í greininni stóð.
23. mars keypti ég í umræddri
verslun Morgungull á 156 kr., 11.
apríl á 179,90 kr. eins og það
kostar nú og fékk þær upplýsingar
að þetta hefði hækkað hjá framleið-
anda. Þær upplýsingar voru frá
ábyrgum aðila, enda vafalaust rétt-
ar, og er einföld skýring á því.
Morgungullið sem selt var og keypt
í apríl var af eldri birgðum, frá
því einhvemtíma fyrir áramót. Það
sem selt var f apríl var af seinni
innkaupum, hvenær sem þau voru
gerð. Sama mun hafa gilt um aðra
þá verslun sem nefnd var í grein-
inni, en þar fylgdi með umræddum
skýringum að þetta væri eðlileg
hækkun, hráefnið hefði hækkað í
útlöndum.
Þó allt mas um þetta sé til lftils
væri þó gaman að fá það upplýst
hjá Ingvari Halldórssyni hvenær
Morgungullið hækkaði í verði síð-
ast, hvað mikið og hvers vegna.
Verðlagsstofnun og fleiri aðilar
leggja nú f mikinn kostnað til að
fylgjast með breytingum á verði á
vörum og þjónutu, allt er þetta til
lftils ef almenningur gerir það ekki
líka. Það er snjallræði að halda til
haga verðmerktum umbúðum og
bera saman þegar næst er keypt
og lfka að skrifa hjá sér verð á
öðru sem fólk kaupir.
HEILRÆÐI
„Byrgjum brunninn áður en
barnið fellur ofan í hannu
Að gefnu tilefni er vert að minna á hina miklu slysahættu sem
skapast, þar sem heitir pottar í görðum eru hafðir án loka eða hlífa
milli notkunar.
Lítil böm geta hæglega orðið sér að voða, falli þau ofan í þá.
Því er nauðsynlegt að setja tryggilegt lok eða segl yfir til að koma
í veg fyrir slys.
Utank)örstaða-
skrifstofa
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar 688322, 688953 og 688954.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Utankjörstaðakosning fer fram í Ármúlaskóla
alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnu-
dagakl. 14-18.
Sjálfstæðisfólk. Vinsamlegast látið skrifstofuna
vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á
kjördegi 31. maí nk.
V
35 ára
Tveggja alda sýn >
danshefð Reyk-
víkinga
Danssýning í
kvöldkl. 20.00 í
Gamla bíói.
Dans, söngur,
leikir og músík.
Miðar verða
seldiríGamla
bíói í dag frá kl.
16.00.
Og nú erum við í Borgartúni 28