Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
é
Nautaat — olía á stríga 1934
Uppstilling — olía á stríga 1934
Spilamaðurinn — olía ástríga 1971
Um sýmnguna
150 málverk, auk þess sem mörg
hundruð teikninga og grafíkmynda
liggja einnig eftir hann frá sama
ári. Ein elsta myndin á sýningunni
er frá hinu svokallaða „synthet-
íska-kúbíska“ skeiði, sem stóð yfír
frá c. 1912-1919, en þá sögðu
Picasso og félagar hans, t.a.m.
Braque og Gris, skilið við rannsókn-
ir á eðli og vægi hluta, en einbeittu
sér að því að raða saman litflötum,
þannig að þeir mynduðu þekkjanleg
fyrirbæri.
Eftir að Picasso gekk að eiga
rússnesku ballettdansmærina Olgu
Kokhlovu árið 1918 og fór að taka
þátt í samkvæmislífi auðugra París-
arbúa, fóru verk hans að draga dám
af list sígildra listamanna eins og
Ingres. Hefst þar með hið „klass-
íska tímabil" iistamannsins, sem
stendur til 1925. Tvær teikningar
frá því tímabili eru á sýningunni,
önnur af sitjandi konu, hin af
þokkagyðjunum þremur, Evfro-
syne, Aglaiu og Þalíu. Þær gyðjur
urðu honum síðar tilefni margvís-
legra myndrænna hugleiðinga um
fegurðina og holdsins lystisemdir.
Upp úr 1924 var Pícasso farinn
að hafa æ meira samband við Súr-
realista í Frakklandi, og áhrifa frá
kenningum þeirra og þankagangi
eftír Aðalstein
Ingólfsson
Sýning Listahátíðar 1986 á verk-
um eftir Pablo Picasso er ein-
stæður listviðburður, ekki aðeins á
íslandi, heldur einnig í stærra
samhengi. Fimm ár eru liðin síðan
haldin var risastór sýning á þeim
verkum Picassos sem franska ríkið
eignaðist og hefur nú komið fyrir
í sérstöku safni í París. Ekki er lík-
legt að stórar sýningar verði haldn-
ar á verkum Picassos í nánustu
framtfð, a.m.k. ekki á Norðurlönd-
um. Verkin á sýningu Listahátíðar
eru aukinheldur úr einkasafni frú
Jacqueline Picasso, ekkju lista-
mannsins, og hafa mörg þeirra
aldrei komið fyrir almenningssjónir.
Þessi verk eru 55 talsins, valin af
frú Picasso sjálfri. Af þeim eru 51
málverk á striga, 3 teikningar og
einn skúlptúr, sem er portrett af
Jacpueline Picasso.
Tæplega er hægt að ætlast til
þess að þessi sýning spanni feril
Picassos allan, en eins og mörgum
er kunnugt, var hann hamhleypa
til vinnu alla sína löngu ævi. Þess
má t.d. geta, að árið sem Picasso
varð 88 ára gamall, málaði hann
4