Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 72
©tönaóarbankinn
HMRfenbMM
„hmSbókha^
— 991
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Frjáls verðlagn-
ing í málmiðn-
aðinum í haust
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti
á fundi sínum í gær að fella
niður ákvæði nm hámarksá-
lagningu á útselda vinnu í
málmiðnaði frá og með 1.
október í haust. Var það gert
á grundvelli könnunar Verð-
lagsstofnunar á samkeppni í
greininni. Undir málmiðnað-
inn falla meðal annars bif-
reiðaviðgerðir, blikksmíði,
skipasmíði og skipaviðgerðir.
Jafnframt ákvað Verðlagsráð
ákveðnar aðgerðir til að örva
samkeppni og tryggja sanngjama
þróun verðlags þegar frelsi mál-
miðnaðarins kemur til fram-
kvæmda. Óheimilt verður að gefa
út sameiginlegar verðskrár og
verkstæðunum gert skylt að hafa
eigin verðskrár á áberandi stöð-
um þannig að viðskiptavinir eigi
auðvelt með að kynna sér verð
áður en til viðskipta kemur. Lagt
er fyrir Verðlagsstofnun að örva
samkeppni fyrirtæiga og efla
verðskyn neytenda með birtingu
f upplýsinga um verð. Einnig á
stofnunin að undirbúa þegar til-
lögur að því hvemig nánar verði
staðið að verðgæslu þannig að
verðgæsla stofnunarinnar og
upplýsingamiðlun geti orðið sem
virkust þegar frá 1. október.
Fiskmarkaðurínn
í Bretlandi:
Lágt verð
léleg gæði
TVÖ FISKISKIP seldu afla smn
í Bretlandi í gær. Gæðum aflans
hjá báðum skipunum var ábóta-
vant og verð eftir því fremur
lágt.
Hrungnir GK seldi 106,9 lestir í
Hull. Heildarverð var 4,5 milljónir
króna, meðalverð 42,52. 60% aflans
fóru í 2. gæðaflokk, 40% í þann
3. Húnaröst ÁR seldi 56 lestir í
Grimsby. Heildarverð var 3,1 millj-
ón króna, meðalverð 55,77. Allur
aflinn fór í 2. gæðaflokk.
Krístján syngnr
hjá New York
City-óperunni
Akureyri.
KRISTJÁN Jóhannsson óperu-
söngvari hefur verið ráðinn til
að syngja i La Boheme eftir
Puccini með New York City
óperunni i Lincoln Center. Frum-
sýnt verður í september i haust.
Kristján syngur hlutverk Rodolfo í
La Boheme. „Þetta er sama hlut-
verk og ég „depúteraði" í í Þjóðleik-
húsinu á sfnum tíma - þetta er
mitt besta hlutverk," sagði Kristján
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins á Akureyri.
Þess má geta að á næsta ári
syngur Kristján aftur með New
York City óperunni í Lincoln Center
- þá fer hann með hlutverk í Tosca,
sem hann æfir einmitt nú í Þjóðleik-
húsinu.
Kristján Jóhannsson
ii'in imniiii
iiiiiii iiiiin
Þannig stóð styttan af Tómasi Guðmunds-
syni i Austurstræti ein sér og vestar í
götunni en hún verður.
Hugmynd þeirra Dagnýjar Helgadóttur og Guðna Páls-
sonar. Höggmyndin stendur á blágrýtisstalli fremst en
fyrir aftan er hvit marmarasúla, þar sem á er letrað
hluti kvæðisins Austurstræti eftir Tómas Guðmundsson.
Höggmyndin af Tómasi
í Austurstræti að nýju
í SUMAR verður höggmynd af Tómasi Guð-
mundssyni skáldi komið fyrir í Austurstræti á
ný. Höggmyndin verður á nýjum stalli sem
arkitektarnir Dagný Helgadóttir og Guðni Páls-
son hafa teiknað.
í lýsingu sem fylgir teikningunum segir að styttan
skuli staðsett þannig að hún sé það fyrsta sem
mætir manni í Austurstræti. Guðni Pálsson sagðist
:ra ráð fyrir að hún verði staðsett skáhallt út frá
tvegsbankahúsinu. Styttan verður á stalli úr blá-
G
giýti, sem er tákn hins veraldlega, mannsins, og
stendur fremst. Hluti úr kvæðinu Austurstræti eftir
Tómas verður grafíð í súlu úr hvftum marmara sem
tákn hins andlega, skáldskaparins, og stendur fyrir
aftan blágrýtisstailinn sem bakgrunnur. Báðir eiga
steinamir að vera gljáslípaðir.
Guðni sagði að höggmyndin ætti að njóta sín
betur á þessum stað en þar sem hún var áður, í
miðju Austurstrætinu. Þar hafi hún iðulega staðið
í skugga.
Búvörur hækka um
tæplega 3% tíl bænda
Rætt um auknar niðurgreiðslur til að lækka kindakjötsverð
NÝTT verð á búvörum á að taka
gildi næstkomandi mánudag, 2.
júní. Búist er við að verðlags-
V estmannaeyjar:
Grasmaðkur hrell-
ir garðeigenduma
Vestmannaeyjum.
GARÐEIGENDUM í Vest-
mannaeyjum til mikillar mæðu
og hrellingar hefur grasmaðkur
tekið að herja á garða fólks víða
í bænum og einnig hefur hans
orðið vart undir Hlíðarbrekk-
um. Hefur kvikindi þetta þegar
valdið miklum spjöllum í falleg-
um húsagörðum og sumsstaðar
eru blettir hreint kvikir af þess-
um ófögnuði.
Þess eru dæmi að vel hirtir
garðar sem alla jafna eru á þessum
tíma fagurgrænir, eru nú kolmó-
rauðir yfir að líta. Hér er á ferðinni
algeng tegund grasmaðks og er
talið að þessí plága muni ganga
yfír eftir á að giska hálfan mánuð,
þegar lirfan verður orðin að fiðrildi.
A mánudaginn unnu starfsmenn
bæjarins að því að úða þá garða
þar sem ástandið var hvað verst,
en það mun hafa haft takmörkuð
áhrif. Sterkur áburður er talinn
besta vopnið gegn þessum vágesti.
Ekki er talin ástæða til þess að
óttast um frekari útbreiðslu gras-
maðksins, eftir að gripið hefur
verið til áburðargjafar. Grasmaðk-
ur hefur ekki þjakað Eyjabúa í
mörg ár, en alltaf er hætta á að
upp komi svona faraldur við sér-
stakar aðstæður. -hlg
grundvöllurmn, það er verð bú-
varanna til bænda, hækki um
2,6-2,8%. Til tals hefur komið að
auka niðurgreiðslur til að láta
útsöluverð á kindakjöti haldast
óbreytt.
Sexmannanefnd, sem verðleggur
búvörumar til bænda, og fímm-
mannanefnd sem verðleggur þær í
heildsölu eru þessa dagana að ljúka
vinnu við verðlagninguna. Útlit er
fyrir að verðlagsgrundvöllurinn
hækki innan við 3% eins og fram
kemur hér að ofan, en ekki ljóst
hvað vinnslukostnaðurinn hækkar.
Ef vinnslukostnaðurinn hækkar
hlutfallslega jafn mikið og grund-
vallarverðið og niðurgreiðslur hald-
ast hlutfallslega jafn miklar, hækkar
útsöluverðið svipað og grundvallar-
verðið, það er um 2,6-2,8%.
Fulltrúar bænda hafa lagt til að
niðurgreiðslur verði auknar á kinda-
kjöti, þannig að komist verði hjá
hækkuninni núna um mánaðamótin
og það lækkað verulega að auki.
Er farið fram á þetta til að takast
megi að auka söluna aftur, en hún
hefur verið heldur dræm frá áramót-
um og hægt gengið á birgðir. Aukn-
ar niðurgreiðslur til að eyða kinda-
kjötshækkuninni myndu kosta ríkis-
sjóð 5 milljónir á mánuði.
Lágheiðín mok-
uð en lokuð
HÁLFGERT vetrarveður hefur
ríkt á Vestfjörðum og norðan-
verðu landinu suður eftir Aust-
fjörðum og færð á ýmsum fjall-
vegum af þeim sökum spillzt. Allir
fjallvegir á hálendi eru lokaðir
og þungatakmarkanir á flestum
opnum vegum.
Steingrímsfjarðarheiði lokaðist í
hretinu um daginn, en reynt var að
opna hana í gær. Vegna bilunar í
snjóblásara tafðist moksturinn nokk-
uð. Á þriðjudag þurfti að ryðja
veginn yfir Mörðudalsöræfi og
Fjarðarheiði til Seyðisíjarðar. Lokið
var við mokstur Lágheiðar í byijun
vikunnar en heiðinni síðan lokað
vegna aurbleytu. Annars er fært
frá Reykjavík til ísafjarðar svokall-
aða syðri leið. Hringvegurinn er fær
og fært með ströndinni frá Húsavík
til Vopnafjarðar, en þungatakmark-
anir eru víða.