Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 57
MORGIJNBLAMÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
M
Tf
VEL KLÆDD
SÍMASKRÁ
alltaf sem ný t kápunni
frá Múlaltmdi
Engri bók cr flctt jafnmikið og símaskránni.
Hún þarf því að eiga góða yfirhöfn svo hún
losni ekki úr böndunum og verði illa til reika.
í hlífðarkápunni frá Múlalundi, vinnustofu
SÍBS, er símaskráin vel varín!
Fæst í öllum helstu bóka- og ritfangaverslunum landsins
Múlalundur, Hátúni 10 C, Sfmar: 38450 38401 I
-j
Morgunblaðið/Þorkell
Hljómsveitin „Hálft / hvoru“ með nýútkomna hljómplötu, „Götu-
mynd“. Fr& vinstri: Hannes Jón Hannesson, Gísli Helgason, Guðmund-
ur Benediktsson, Herdís Hallvarðsdóttir og fremst stendur dóttir
Herdísar, Bryndís.
Hljómsveitin „Hálft í hvoru“
Gefur út „Götumynd“
á 5 ára afmæli sínu
— Gísla Helgasyni afhent gullplata vegna
„Ástaijátningar“
HUÓMSVEITIN „Hálft í hvoru“ gaf nýlega út hljómplötuna „Götu-
mynd“ i tilefni 5 ára afmælis hljómsveitarinnar. Á plötunni eru tiu
lög og eru flest þeirra eftir liðsmenn hljómsveitarinnar.
Þetta er þriðja hljómplatan, sem
„Hálft í hvoru" sendir frá sér ef
frá er talin „Ástaijátning" sem út
kom í fyrra, en ágóði af þeirri plötu
rann allur til kaupa á tölvustýiðum
vélum til útgáfu á blindraletri. Gísli
Helgason, einn meðlima hljómsveit-
arinnar, bar hita og þunga af útgáfu
hjómplötunnar og var honum afhent
gullplata sl. þriðjudag í tilefni af
því að 6.000 eintök hafa þegar selst
og er platan nú uppseld hjá út-
gefanda. Óskar Þórisson tók við
gullplötu fyrir hönd Skífunnar, sem
sá um útgáfu og dreifingu plötunn-
ar og þriðju gullplötunni veitti við-
töku Halldór S. Rafnar fyrir hönd
blindrabókasafnsins og þakkaði
hann Gísla sérstaklega fyrir fram-
lag hans til handa blindum.
Hljómplatan „Áfram" kom út
fyrir tæpum þremur árum síðan,
en síðan þá hafa orðið miklar breyt-
ingar á högum hljómsveitarinnar.
Tónlistarstefna heftir breyst nokk-
uð og mannskapur er annar. Hljóm-
sveitina skipa nú: Gísli Helgason,
Herdís Hallvarðsdóttir, Guðmundur
Benediktsson og Hannes Jón Hann-
esson. Hljómsveitin leggur áherslu
á flutning eigin tónlistar sem og
flutning íslenskrar þjóðlagatónlist-
ar. Upptökur „Götumyndar" hófust
um miðjan nóvember og lauk í
apríl sl. Hljómsveitin leggur í tón-
leikaferð um landið til að fylgja nýju
hljómplötunni eftir og hefst sú ferð
um 10. júní. Þá verða tónleikar á
Hótel Borg nk. fímmtudagskvöld
kl. 21 þar sem platan verður m.a.
kynnt.
Gísli Helgason sagði er hann tók
við gullplötunni að þó hann hlyti
allt lofið, bæri að þakka milli 40
og 50 manns fyrir vinnu sína, sem
margir hveijir gáfu. Með sölu „Ást-
aijátningar" safnaðist ein milljón
kióna auk þess sem ríkissjóður lagði
fram aðra milljón til styrktar sama
málefni.
Salix kojumar frá Viöju eru sterkar, stílhreinar
og rúma jafnt unga sem aldna.
Henta jafnt heima sem í sumarbústaðnum.
Fáanlegar í hvítu og beyki.
4.900- fo i
tborgun, H mánaða
HÚSGAGNAVERSLUNIN
VIÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
Sfmi 44444
Þar sem
góðu kaupin
gerast
Beckers
Vonimarkaðurinn hl.
Ármúla 1a. Sími 91-686117.
Allar vikur verða
fegrunarvíktcr með
Beckers málníngu.