Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
fclk f
fréttum
1 íWLt ||||Wm p.;; 1
•
I í \p&H
I i i ii i i iii r ri i U MM □ M
mii
■ i ,
Færeysku blaðamennirnir Snorri Halldórsson, Mikkjal Helmsdal og Jákup Midjord. Morgunblaðið/Július
Færeyskir blaðamenn í heimsókn
rír færeyskir blaðamenn voru staddir hérlendis
í fyrri viku í boði Flugleiða. Tilefni þess, að
þeim var boðið hingað, var formleg opnun áætlunar-
leiðar milli Torshavn í Færeyjum og Glasgow í Skot-
landi. Flugu þeir til Glasgow, dvöldu þar tvo daga,
en fóru síðan til Reykjavíkur og þaðan aftur heim tíT
Torshavn.
Þeir félagar, sem hér er mynd af, Snorri Halldórs-
son, blaðamaður á Dimmalætting, Mikkjal Helmsdal,
blaðamaður á Sosíalnum, og Jákup Midjord, ljósmynd-
ari á Dagblaðinu, heimsóttu Morgunblaðið meðan á
dvölinni í Reykjavík stóð. Skoðuðu þeir húsakynni
blaðsins og fylgdust með vinnsiu þess dagstund.
a ■
Utsýnarfarþegar í sól-
skinsskapi á Benal Beach
Morgunblaðinu barst þessi mynd á dögunum frá
Ferðaskrifstofunni Utsýn ásamt þeim upplýs-
ingum að um 40 íslendingar gistu nú Benal Beach á
Costa del Sol á vegum ferðaskrifstofunnar. Útisvistar-
svæðið sé óvenju glæsilegt með fímm stórum sund-
laugum og vatnsrennibrautum á milli þeirra. í einni
sundlauginni miðri sé bar í Suðurhafseyjastíl og geti
gestimir synt upp að bamum til að svala þorstanum.
Það var líka óspart gert sl. fímmtudag í 30 gráðu
hita. Gestir Útsýnar léku á als oddi og láta hið besta
af dvöl sinni, að því er segir í frétt frá ferðaskrifstof-
Sylvester Stallone
bætir við lífvörðum
eir sem séð hafa kvikmyndir
með Sylvester Stallone gætu
haldið að hann væri einfær um að
verja sig sjálfur. Svo er þó ekki,
því fyrir skömmu ijölgaði hann líf-
vörðum sínum eftir að hafa orðið
fyrir ógnun við kvikmyndatöku. Er
Stallone tók þátt í fjörugu sam-
kvæmi í klúbb einum í Hollywood
fyrir skömmu fylgdu honum þrír
lífverðir, en það reyndist ekki nóg.
Leðuijakkanum hans var stolið af
stólnum sem hann sat á! Og líf-
verðimir — þeir hljóta annað hvort
að hafa verið sofandi eða þeir hafa
tekið full mikinn þátt í fagnaðin-
um...
Óvenjuleg lækning:
Ég ákvað að hefja gagnárás
Það er hreint ótrúleg saga
sem Garrett Porter frá
Topeka, Kansas í Bandaríkjunum
hefur að segja. Þegar hann var
níu ára fékk hann heilaæxli sem
virtist ólæknandi. Hér var um
slæmt tilfelli að ræða og læknar
gáfust um síðir upp við að lækna
hann og sögðu að hann gæti alls
ekki lifað lengur en í hálft ár.
Heilaæxlið var komið á loka-
stig. Það var farið að hafa áhrif
á jafnvægisskyn drengsins og
sjóntaugar. Læknamir höfðu m.a.
rejrnt geislameðferð en heilaupp-
skurður var talinn óframkvæman-
legur vegna legu æxlisins í heilan-
um.
í örvæntingu sinni snéru for-
eldrar Garretts sér til hinnar
þekktu Menninger-stofnunar, sem
vinnur út frá sálfræðilegum hug-
myndum og þeirri kenningu að
fólk geti læknað sig sjálft, sé
sjálfstraustið nógu mikið.
Einn lækna stofnunarinnar,
Patricia Norris, tók hinn dauð-
sjúka Garrett í meðferð f október
1978, þegar komið var í ljós að
geislameðferðin skilaði ekki
árangri. Hún byijaði þegar að
kenna Garrett aðferð sem byggði
— af öllum lífs og sálar kröftum
m.a. á biofeedback-tækni (sam-
heiti aðferða til að fylgjast með
ósjálfráðri líkamsstarfsemi, t.d.
með aðstoð rafeindatækja) og
auka meðvitundina um hana með
það fyrir augum að læra að
stjóma henni (t.d. hjartslætti eða
breytingum á blóðþrýstingi) og
jafnframt þeim geðbrigðum sem
henni eru tengd. í huganum sá
hann sjúkdóm sinn fyrir sér sem
„stjömustríð". Hans eigin líkami
var sérs takt sólkerfí en æxlið
fjandsamleg pláneta sem reyndi
að ná yfirhöndinni. Garrett
ímyndaði sér að hann væri sjálfur
foringi flokks vopnaðra geimskipa
sem réðust að árásarskipum
fjandmannanna. Hann átti í þessu
innra stjömustríði í hálftíma á
hveiju kvöldi. Ástand hans hélst
svipað fram í júní 1979. En í
október 1979 - ári eftir að hefð-
bundinni meðferð var hætt -
sagði Garrett dr. Norris að hann
yrði ekki lengur eins áþreifanlega
var við „fjandmennina" í „hugar-
stríði" sínu.
Og hið ótrúlega hafði gerst, að
heilsu Garretts hafði farið tölvert
fram. Hann fékk jafnvægisskynið
aftur, sjónin batnaði - og í febrú-
ar 1980 leiddi rannsókn í ljós að
æxlið í heilanum var horfíð.
Nú er Garrett 16 ára oggengur
í menntaskóla og ekki hefur orðið
vart við sjúkdóminn aftur.
Draumur hans er að verða læknir.
Garrett skrifað bók um sjúkdóm
sinn og hvemig honum tókst að
sigrast á honum sem ber heitið
Hvers vegna ég? (Why me?). Þar
segir hann frá því hvemig hann
sem bam var í mikilli óvissu um
hve hættulegur sjúkdómur hans
væri. Hann segist hafa verið ógur-
lega hræddur og angistin hafí
aldrei látið hann í friði. „Eitt
kvöldið þegar ég var háttaður
sagði ég við sjálfan mig að ég
hlyti annað hvort að gefast alveg
upp eða beijast af öllum mætti.
Og ég ákvað að hefja gagnárás
af öllum lífs og sálarkröftum,"
segir Garrett Porter.
Garrett Porter — hann háði „sjömustríð“ í huganum í því skyni
að sigrast á sjúkdómi sínum.