Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986 71
Revkjavíkurleikarnir:
ísland — Tékkó-
slóvakía í kvöld
ÍSLENDINGAR og Tóklcar leiða
saman hesta sína í þriðja sinn í
landsleik f knattspymu á Reykja-
víkurleikunum í kvöld. Leikurinn
hefst kl. 19.00 á Laugardalsvelli.
Þnr landsliðsmenn bætast f
landsliðshóp íslands í kvöld, það
eru þeir Sigurður Grótarsson og
Ómar Torfason, sem leika með
Luzern og Guðmundur Þor-
björnsson, sem leikur með Bad-
en. Bjami Sigurðsson, markvörð-
ur, verður ekki með I kvöld en í
hans stað kemur Friðrik Friðriks-
son, Fram, eða Þorsteinn Bjama-
son, ÍBK.
ísland og Tékkóslóvakía hafa
aðeins mæst tvívegis áður í
A-landsleik f knattspyrnu. Það var
árið 1981 er þjóðirnar léku saman
í riðli fyrir undankeppni HM á
Spáni. Tékkar unnu fyrrí leikinn
ytra með sex mörkum gegn einu
en jafntefli varð í Reykjavík, 1 -1.
Tékkneska liðið hefur nú á að
skipa mjög ungu og skemmtilegu
liði. Þeir sýndu þaö gegn írum á
þriðjudaginn. Leika mun nettarí
knattspyrnu og láta knöttinn
ganga vel á milli sín. Það má því
búast við fjörugum og skemmtileg-
um leik.
íslenski landsliðshópurinn verð-
ur skipaður eftirtöldum leikmönn-
um gegn Tékkum í kvöld:
Markverðir:Friðrik Friðriksson,
Fram og Þorsteinn Bjarnason, ÍBK.
Aðrír leikmenn: Ágúst Már
Jónsson, KR, Arnór Guðjohnsen,
Anderlecht, Guðmundur Steins-
son, Fram, Guðmundur Þorbjörns-
son, Baden, Guðni Bergsson, Val,
Gunnar Gíslason, KR, Halldór
Áskelsson, Þór, Loftur Ólafsson,
— Hveragerði
ÞAÐ VAR mikið skorað af mörk-
um f fyrstu umferð Mjólkurbikar-
keppninnar sem fram fór f g»r-
kvöldi. Stœrsti sigurinn var sigur
Vfkinga yfir Augnabliki, en þeim
leik lauk með 13:1-sigri Vfkings.
Óvœntustu úrslftin urðu trúlega
þau að Hvergerðingar unnu ná-
granna sfna frá Seffossi með fjór-
um mörkum gegn þremur og
slógu þá þar með út úr bikamum.
í Hveragerði var hörkuleikur.
Heimamenn komust í 1:0 en
skömmu fyrír leikhlé jafnaði Sel-
foss. Hvergerðingar skoruðu síðan
næstu tvö mörk en gestirnir svör-
uðu aftur með tveimur mörkum
og jafna. Þegar skammt var til
leiksloka skoruðu heimamenn sig-
urmarkið við mikinn fögnuð. Mörk
þeirra gerðu Páll Leó Jónsson 2,
Gunnar Einarsson og Ólafur Jós-
fesson eitt hvor.
Andri Marteinsson var at-
kvæðamestur í leiknum gegn
Augnabliki á gervigrasinu í Laug-
ardal. Andrí gerði fjögur mörk í
leiknum en eina mark Augnabiiks
gerði Sigurður Halldórsson, en að
vísu gerðu þeir eitt sjálfsmark sem
KR, Ólafur Þórðarson, ÍA, Ómar
Torfason, Luzern, Pétur Ormslev,
Fram, Pétur Pétursson, Hercules,
Ragnar Margeirsson, Waterschei,
Sigurður Grétarsson, Luzern, Sig-
urður Jónsson, Sheff. Wed. og
Viðar Þorkelsson, Fram.
Forsala á leikinn hefst kl. 12.00.
á Laugardalsvelli. Dómari verður
Englendingurinn Joe Worrall og
línuverðir þeir Kjartan Ólafsson og
Eyjólfur Ólafsson. Knattspyrnu-
áhugamenn ættu að nýta sér þetta
sérstæða tækifæri og sjá okkar
snjöllu leikmenn í landsleik.
sló Selfoss út
varfyrsta mark leiksins.
Grindvíkingar gerðu góðar ferð
í Mosfellssveitina í gær. Þeir unnu
þar Aftureldingu með þremur
mörkum gegn tveimur í æsispenn-
andi leik og á Fylkisvellinum áttu
heimamenn ekki í neinum erfiðleik-
um meö lið Hafna. Staðan þar í
leikhléi var 5:0 fyrir Fylki en fleiri
urðu mörkin ekki. Orri Hlöðvers-
son var atkvæðamestur og skoraði
tvö markanna.
Víkverji vann Skallagrím í Laug-
ardalnum með 9 mörkum gegn
engu og hafði mikla yfirburði og
fyrir norðan vann Tindastóll sætan
sigur yfir Magna frá Grenivík. 8:1
urðu lokatölurnar. Á Reyðarfirði
var ekki skorað eins mikið. Valur
vann þar Hrafnkel Freysgoða meö
tveimur mörkum gegn einu og
gerðu þeir Gústaf Ómarsson og
Elís Árnason mörkin.
Ekki tókst að ná úrslitum úr
fleiri leikjum en á þriðjudaginn voru
nokkrir leikirog uröu úrslit þessi:
Þróttur R. — Leiknir R. 5:1
Höföstrendingar — KS 0:1
Höttur — Austri 0:1
ÞrótturN. —Huginn 3:2
Leiknir F. — Einherji 0:3
Mjólkurbikarinn:
Mikið skorað
Handknattleikur:
Þrír sigrar
á Grænlandi
ÍSLENSKA unglingalandsliðið f
handknattleik, skipað leikmönn-
um sem eru tvftugir og yngri, er
r keppnisferðalagi á Grœnlandi
og hefur þegar leikið þrjá leiki
og unnið þá alla. Uðið leikur tvo
leiki til viðbótar og kemur heim
á morgun.
Fyrsti leikurinn var á sunnu-
dagskvöldið gegn A-landsliði
Grænlands og vann íslenska ungl-
ingaliðið þann leik með 30 mörkum
gegn 21. Frosti, Árni og Héðinn
urðu markahæstir í þeim leik,
skoruðu hver um sig flmm mörk
og Skúli gerði fjögur.
Á þriðjudaginn lék liðið síöan tvo
leiki og vann þá báða. Fyrst léku
strákarnir gegn úrvalsliði frá Nuuk
og unnu þann leik 29:17 og enn
skoraði Frosti fimm mörk. Skúli
og Halldór gerðu einnig fimm mörk
en Héðinn og Ámi fjögur hvor.
Seinni leikurínn var gegn dönsku
3. deildariiði sem er þama á ferða-
lagi og vannst sá leikur 25:20.
Halldór skoraði níu mörk, Ámi sjö
og beir Skúli og Héðinn þrjú hvor.
Islenska liðinu líöur vel á Græn-
landi. Keppt er í glæsilegum og
nýlegum íþróttahöllum og aðstað-
an ölltil mikillarfyrirmyndar.
• Það var hart barist f rígningunni f Kópavogi f gœr er 1. deild kvenna hófst með leik UBKog Vals.
Valur lagði UBK
VALSSTÚLKURNAR unnu fyrsta I má á myndinni hér að ofan var i inn með 3 mörkum gegn einu og
leikinn í 1. deild kvenna f gœr- mikill kalsi hjá stúlkunum, helll- það var Erla Rafnsdóttir sem
|™®ldJ Þær heimsóttu Breiða- Hgning og setti það svip sinn á gerði eina mark UBK, en hún er
blik í Kópavoginn. Eins og sjá | leikínn. Valsstúlkurnar unnu lelk- | einmitt lengst til vinstrí
Málinu
áfrýjað
til Hæsta-
réttar
— sagði Sveinn Bjöms-
son forseti ÍSÍ
„ÞAÐ var ákveðið á fundi
framkvœmdastjómar ÍSÍ f
dag að áfrýja málinu til
Hæstaróttar,u sagði Sveinn
Bjömsson, forsetl íþrótta-
sambands íslands, f samtali
við Morgunblaðið f gmr-
kvöldi er hann var spurður
um framhald máls ISÍ og
Jóns Páls Sigmarssonar.
„Við sendum á morgun
greinargerð frá sambandinu
til fjölmiöla og ég held ég láti
það nægja. Ég vil ekki tjá mig
frekar um málið en vísa til
greinargerðarinnar sem þiö
fáið á morgun," sagði Sveinn
að lokum.
Lá alltaf
á borðinu
— sagðiJónPáll
Sigmarsson
„ÞETTA eru nú ekki miklar
fréttir fyrir mig. Mór hefur
alltaf fundist þetta liggja al-
veg á borðinu að þetta fœrí
svona,“ sagði Jón Páll Sig-
marsson kraftlyftingamaður f
samtali við Morgunblaðið f
gmrkvöldi þegar hann var
spurður um hvemig honum
fyndist úrskurður Bmjarþings
Reykjavfkur f máli hans gegn
Jón sagðist ekki vilja tjá sig
frekar um málið fyrr en hann
hefði haft tíma til að skoða
dómsorðin og ræða við lög-
fræðing sinn. „Ég held það sé
ekki rétt hjá mér að tjá mig
frekar um þetta að svo komnu
máli. Ég hef sjálfur ekki séö
dómsorðin og ekki rætt viö
lögfræðing minn þannig að ég
held óg geymi allar yfiriýsingar
þar til óg kem heim úr þessari
ferð,“ sagöi Jón Páll.
• Janus Guðlaugsson hefur skrifað undir samning við Fram og mun
leika með liðinu f sumar. Hann verður löglegur 28. júnf og leikur sinn
fyrsta leik gegn KR.
Janus
íFram
JANUS Guðlaugsson, sem leikið
hefur með Lucano f svissnesku
2. deildinni f vetur, hefur ákveðið
að ganga til liðs við Fram. Hann
skrifaði undir f gmr og mun vera
löglegur með Fram 28. júnf og
leikur þá vmntanlega sinn fyrsta
leik gegn KR þann 30. júnf á
Laugardalsvelli.
Janus Guðlaugsson hefur verið
einn okkar besti knattspyrnumað-
ur undanfarin ár og ávallt staðið
sig vel með landsliðinu og á hann
að baki 34 A-landsleiki. Auk þess
hefur hann leikið með drengja- og
unglingalandsliði íslands. Janus
kemur til með að styrkja Fram-liðiö
mikið. Hann lék með FH í fyrra-
sumar. Áður hefur hann leikið með
Fortuna Köln í 2. deildinni í Vest-
ur-Þýskalandi.