Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
29
Réttur
ttagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Sagt er:
Ótöluð orð vinna engum mein,
öfund er tilfinning eigin vanmáttar.
— Orð til umhugsunar —
Þessum orðum fylgir uppskrift
af vinsælum vorrétti, en góður
matur nærir ávallt jákvæðar til-
finningar.
Steiktur
vatnasilungur
með sveppa-
sósu
800 gr vatnasilungur (flök)
'Asítróna, safinn
salt og pipar
1 eggjahvíta
1 matsk. vatn
fín brauðmylsna
2 matsk. matarolía
1 matsk. smjörlíki
1. Ef flökin eru af smáum fiski
þá beinhreinsið þau vel. Stærri flök
eru skorin í hæfilega stór stykki.
Sítrónuafinn er settur yfir fiskinn
og eru þau látin standa smá tíma
(15 mín.)
2. Eggjahvítan er þeytt með vatn-
inu, fiskflökunum er velt upp úr
eggjahvítunni og síðan upp úr brauð-
mylsnunni og þau steikt ljósbrún í
feitinni. Haldið þeim heitum (í ofni)
á meðan útbúin er.
Sveppasósa
3 matsk. smjörlíki
3 matsk. hveiti
1®/4 bolli mjólk
>/2SÍtróna, safinn
1 hvítlauksrif pressað
múskat framan á hnífsoddi
saltogpipar
1 dós sveppir
1 eggjarauða
Smjörlíkið er brætt, hveitið er
sett út í og látið rétt krauma, því
næst er heitur vökvinn settur út og
þeytt í með vírþeytara þar til sósan
er orðin jöfn og mjúk. Bætið við
salti og pipar og látið sjóða við
vægan hita í 5 mínútur.
2. Sítrónusafinn, pressað hvít-
laukssrif, múskat og sveppir, (safinn
er síaður frá), er sett út í sósuna
og hún látin krauma áfram í 5 mín.
til viðbótar. Eggjarauðan er hrærð
varlega út með ca. 'Abolla af heitri
sósunni og síðan er hún hrærð var-
lega út í sveppasósuna.
Sósan er hituð varlega að suðu
og síðan tekin strax af hellunni.
Með fiskrétti þessum er mjög
gott að bera fram kartöflur sem
fyrst eru snöggsoðnar og síðan
afhýddar. Kartöflumar eru skomar
í sneiðar og steiktar ljósbrúnar í
fremur lítilli feiti. Einnig á vel við
réttinn hrásalat með hvítkáli í aðal-
uppistöðu.
Verð á hráefni
800 gr.
silungur .... kr. 120.00
1 sítróna ... kr. 8.50
1 egg ...... kr. 7.00
1 dós sveppir .... 98.70
Kr. 234.20
Neytendur spyrja: Hvað veldur
þvi, að álegg í lofttæmdum um-
búðum hefur ekkert geymsluþol
eftir að umbúðimar hafa verið
opnaðar?
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
tn
^
r ú gefst þér einstakt tækifæri til
að eignast úrvalsgóðan Citroén-
bíl á ótrúlega hagstæðu verði.
Bílarnir voru að renna affæriband-
inu í Frakklandi og því miður
getum við ekki útvegað fleiri bíla.
Þetta er síðasta tækifærið.
Citroén GSA Special.
Citroén GSA Special er rúmgóður
5 manna fjölskyldubíll með
frábæra aksturseiginleika. Löng
reynsla Citroén bílanna á íslandi
sýnir að þeir henta íslenskum
aðstæðum afburðavel. Fram-
hjóladrifið og hæðarstillingin
skipa þeim í sérflokk við akstur í
snjó, ófærð og á malarvegum.
Þeireru líka alltaf í sömu hæð frá
jörðu, óháð hleðslu.
Dúnmjúk vökvafjöðrun, einstak-
lega þægileg sæti og listileg
hönnun á allri innréttingu og
stjórntækjum eru einnig meðal
þeirra mörgu kosta sem orsakað
hafa vinsældir Citroén GSA
hérlendis á undanförnum árum.
Greiðsluskilmálar
Sumartilboð okkar á þessum
bílum er aðeins kr. 350.000.-
Við minnum einnig á hagstæð
greiðslukjörin; allt niður í 30% út
og afganginn á allt að tveimur
árum.
Innifalið í þessu verði er m.a.
ryðvörn, skráning, skattur,
stútfullur bensíntankur og hlífðar-
panna undir vél. Líttu inn í
Lágmúlanum eða sláðu á þráðinn
sem allra fyrst.
Umboðsmaður okkar á Akureyri
er Gunnar Jóhannsson,
sími 96-25684.
Globusp
LAGMULA 5
SÍMI 681555
GOTT FÖIK I SÍA