Morgunblaðið - 29.05.1986, Blaðsíða 7
■ sumar efnir Úrval til 12
daga hringferðar um
Norðurlönd. Meginmark-
miðið er að kynnast höfuð-
borgunum fjórum, Osló,
Stokkhólmi, Helsinki og
Kaupmannahöfn, með
eins aðgengilegum hætti
og kostur er.
Fyrirhafnar-
laus ferða-
máti
Ferðin hefst með flugi til
Oslóar. Þaðan er farið
með lest til Stokkhólms,
síðan með ferju til Helsinki
og aftur til Stokkhólms.
Frá Svíþjóð liggur svo
leiðin með lest til Kaup-
mannahafnar.
Alls staðar er farið í
skipulagðar skoðunar-
ferðir um borgirnar og
nágrenni þeirra. Heimsóttir
verða margir forvitnilegir
staðir. Gist er á fyrsta
flokks gististöðum og
góður tími gefinn til að
slappa af og kíkja í versl-
anir.
íslenskur fararstjóri sem
öllum hnútum er kunnugur
sér um að allt fari eins og
best verður á kosið.
Verö pr. mann:
I þríbýli: 39.810,- kr.
( tvíbýli: 40.710,- kr.
[ einbýli: 45.010,- kr.
Innifalið: Flug, lestar- og
ferjuferðir, hótelgisting í 9
nætur, ferjugisting ( 2
nætur, morgunverður í 11
daga, skoðunarferðir,
akstur frá og að flugvelli úti
og íslensk fararstjórn.
Brottför:
Ferðin stendur yfir frá 15.
til 26. júlí.
ð8&tTAM o°. suTn AGTJTMMffi giga .TffvPTO<TOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
„Spasj,,
Flamenco-habð
íBroadway
SUNNUDAGSKVÖLD1. JÚNÍ
Morgunblaðið/Júlíus
Möstrin í Árbæjarhverfi fjarlægð í sumar
Brátt hverfa þessar háspennulínur og möstur úr borgarmyndinni. í sumar verða möstrin fjarlæg'ð
og háspennulínan sem liggur í gegnum Árbæjarhverfið, miili Bæjarháls og Hraunbæjar, verður
grafiníjörð.
J__________________________________________________________________________
Kl. 20.30
verður tekið á móti gestum með
Sigló Sangria, þjóðardrykk Spánverja.
★ Boðið upp á spænska þjóðarrétti
★ Hinn frábæri flamenco-flokkur frá
Spáni undir stjórn Javier Agra
kemur fram. í flokknum eru frægir
listamenn.
Dansmærin Rosa Durán ólst upp í Madrid og
var ekki nema fimm ára þegar fjallað var um
dans hennar í dagblöðum í Madrid. Hún hefur
hlotið ýmiskonar viðurkenningu fyrir dans sinn;
verðlaun frá leikhúsi þjóðanna í París, fengið þjóð-
arverðlaun Kennaraskólans í flamenco-fræðum
o.fl. Hún kennir nú flamenco við akademíuna í
Madrid.
Gítarleikarinn Perico Del Lunar hefur komið fram
á leiksviði Evrópu og Ameríku og hlotið mikið
lof. Leikur hans er talinn mjög upprunalegur og
í nánum tengslum við spænska hefð í gítarleik.
Með í hópnum er einnig ungur gítarleikari sem
hlaut 1. verðlaun fyrir gítarleik frá Kennaraskólan-
um í flamenco-fræðum í Jerez de Frontera 1984.
Hann er talinn einn efnilegasti konsert-gítarleikari
Spánar.
★ Granada Tres-tríóið flytur spænska
og suður-ameríska tónlist
★ Ferðaskrifstofan Atlantic kynnir vin-
sæla ferðamannastaði á Spáni
Miðasala og borðapantanir er í
Gimli kl. 16.00—19.00 virka daga
og 14.00—19.00 um helgar.
Listahátíð í Reykjavík
(HKXVTIK BUOADWAr
nn eru nokkur sæti laus
í fyrirhafnarlausa
hringferð Úrvals um
Norðurlönd í júlí
FERMSKRIFSmMN ÚRVOL
Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900.