Morgunblaðið - 29.05.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
13
„Einræði Davíðs“
eftir Sólveigv
Pétursdóttur
Lýsandi dæmi um málefnafátækt
vinstri manna fyrir þessar borgar-
stjómarkosningar, er tal þeirra um
einræði Davíðs Oddssonar í Reykja-
vík.
I Stjómarfarsrétti Ólafs Jóhann-
essonar segin „Lengi framan af
vom bæjarfógetar jafnframt fram-
kvæmdastjórar bæjarstjóma. Nú
kjósa bæjarstjómimar hins vegar
sérstakan mann til að hafa á hendi
aðalframkvæmdastjóm bæjarfé-
lagsins. Nefnist hann bæjarstjóri,
en í Reykjavík borgarstjóri. Er
hann kjörinn til fjögurra ára í senn.
Bæjarstjóri hefur á hendi fram-
kvæmd ákvarðana þeirra, er bæjar-
stjóm gerir og í bæjarmálefnum
yfírleitt. ■ Hann á sæti á fundum
bæjarstjómar og bæjarráðs, en
atkvæðisrétt á hann eigi, nema
hann sé jafnframt kjörinn bæjar-
fulltrúi.“
Ópólitískur
borgarstjóri
Þetta er mergur málsins; ef
borgarstjóri er pólitískur, þá em
öll völd raunvemlega frá honum
tekin. Þetta sést best, ef litið er til
kjörtímabilsins 1978-1982, er
vinstri flokkamir vom í meirihluta.
Sá borgarstjóri, er þeir réðu, lagði
aðeins fram 2 tillögur og náði
hvomg fram að ganga. Davíð
Oddsson er framkvæmdastjóri þess
fyrirtækis, sem Reykjavíkurborg er.
Hann fær sitt vald frá kjósendum
og ber ábyrgð gagnvart þeim. Það
hlýtur að teljast sjálfsögð krafa, að
efsti maður á framboðslista þess
flokks, sem flest atkvæði hlýtur,
verði æðsti yfirmaður borgarmál-
efna.
Hvert atkvæði
skiptir máli
Þeir, sem em fylgjandi slíkri
kröfu, verða hins vegar að nýta
kosningarétt sinn. Það er ekki
nægilegt að líta á tölur í skoðana-
könnunum og hugsa með sér, að
eitt atkvæði skipti engu máli til eða
frá og fá sér síðan blund. Við
skulum minnast þess, að skömmu
fyrir borgarstjómarkosningar 1978
var eitt dagblað landsins með skoð-
Tveggja. alda sýn:
Sýning Þjóð-
dansafélags
Reykjavíkur
í TILEFNI 35 ára afmælis Þjóð-
dansafélags Reykjavikur og 200
ára afmælis Reykjavíkurborgar
efnir Þjóðdansafélagið til vEg-
legrar afmælissýningar í Gamla
bíó fimmtudaginn 29. maí kl.
20.30.
Á sýningu þessari verða færðir
upp nokkrir dansar er sýna hluta
þeirrar danshefðar sem ríkt hefur
hér á landi sl. 200 ár, ekki síst í
Reykjavík. Yfírlit þetta spannar
fyrst og fremst gömlu dansana og
fyrirennara þeirra, söngleikina og
dansa frá því um og eftir aldamótin
1800. Þá verður gefíð örlítið sýnis-
hom af endurvakningu vikivaka og
söngdansa á ámnum milli stríða og
eftir 1950.
Félagar úr Dómkómum aðstoða
við söng og syngja nokkur íslensk
þjóðlög. Þá hefur verið leitað til
nokkurra eldri borgara sem hafa
stundað gömludansaböllin í nokkra
tugi ára og gera reyndar enn til
að sýna gömul og ný tilbrigði í
gömludönsunum. Einnig hefur verið
leitað til þekktra dansara eins og
Sæma Rokk og Diddu.
Miðasala hefst f Gamla bíó
fímmtudagkl. 17.00.
(Fréttatilkynning).
anakönnun. Sýndi hún fram á það,
að Sjálfstæðisflokkurinn myndi
halda góðum meirihluta; raunin
varð önnur. Þá vöknuðu margir upp
við vondan draum. Meirihlutinn
tapaðist með 58 atkvæðum. Af
þessu sést, að hvert atkvæði getur
skipt sköpum.
Falleg hugsun,
en ekki raunhæf
Loforð vinstri flokkanna um
stórátak í einstökum baráttumálum
felur í sér fallega hugsun, en hún
er ekki raunhæf. Hvar á að taka
fé til þessara framkvæmda? Á að
leggja niður malbikun gatna, hita-
veituframkvæmdir, holræsagerð,
umhverfísfegrun ofl.? Það er af-
leitt, þegar frambjóðendur
vinstri flokkanna sjá ekki skóg-
inn fyrir tijánum. Að sjálfsögðu
þarf að sinna öllum þessum mála-
flokkum. Hitt er svo aftur annað
mál, að þeim má sinna eftir vissri
forgangsröð í samræmi við þróun
þjóðfélagsins og þarfír íbúanna.
Þetta hefur Sjálfstæðisflokkurinn
ávallt haft að leiðarljósi og reynslan
sýnt, að það kunna kjósendur að
meta.
Lýðræði en
ekki einræði
Ef þú, kjósandi góður, vilt kom-
ast hjá því, að íbúðin þín verði tekin
leigunámi, en sú tillaga kom fram
á valdatíma vinstri flokkanna. Ef
þú vilt komast hjá því, að fá yfír
þig 7 borgarstjóra, eða þaðan af
fleiri. Og ef þú vilt forðast hugsan-
legar erlendar lántökur til að vinstri
Sólveig Pétursdóttir
menn geti staðið við stóru orðin, þá
veitir þú Sjálfstæðisflokknum, og
þar með Davíð Oddssyni, brautar-
gengi í borgarstjómarkosningunum
„Við skulum minnast
þess, að skömmu fyrir
borg-arstj órnarkosning-
arnar 1978 var eitt
dagblað landsins með
skoðanakönnun. Sýndi
hún fram á það, að
Sjálf stæðisf lokkurinn
myndi halda góðum
meirihluta; raunin varð
önnur. Þá vöknuðu
margir við vondan
draum. Meirihlutinn
tapaðist með 58 at-
kvæðum.“
þann 31. maí nk. Það er lýðræði,
en ekki einræði.
Höfundur er lögfræðingur og
skipar 19. sæti á borgarstjómar-
lista Sjilfstæðisflokksins iReykja-
vik.
Mímir
MÁLASKÓLI
RIT ARÁSkÓLÍ
Enskuskóli æskunnar er fyrir börn á
aldrinum 8—12 ára og starfræktur á veg-
um Málaskólans Mímis. Námskeiðið sem
við kynnum hér stendur yfir í tvær vikur
og hægt er að velja á milli fjögurra
þyngdarstiga.
Ef þið viljið bæta árangurinn í skólan-
um (hver vill það ekki?) eða skilja textana
við popplögin er enska lykilorðið.
Lærið enskuna á nýjan og skemmtileg-
an hátt með enskum kennara í Ensku-
skóla æskunnar.
Enska
Enska
Byrjendaflokkur — þar sem eru tekin fyrir grundvallar-
atríði enskunnar. Takmarkið er að bömin skilji og geti sagt
einfaldar setningar, fyrirspumir og skipanir.
Fyrir þá sem hafa undirstöðuþekkingu í ensku. Eftir nám-
skeiðið eiga þátttakendur að geta rættt um sín áhugamál
og sagt ffá sinni reynslu.
Enska
Enska
Fyrir þá sem skilja og geta sagt einfaldar setningar. Eftir
námskeiðið eiga þátttakendur að vera færir um að tjá sig
um sfnar þarfir og geta rætt daglega hluti á einfaldan hátt.
Fyrir þá sem kunna ensku en vilja viðhalda kunnáttunni og
bæta við orðaforðann.
2. júní — 13. júnf og 16. júní— 30. júní
I BREIÐHOLTI
í VESTURBÆ
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN
10004/21655