Morgunblaðið - 29.05.1986, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
LAWN-BOY
GARÐSLÁTTUVÉLIN
Þaö er leikur einn aö Rafeindakveikja. sem
slá með LAWN-BOY tryggir örugga gang-
garösláttuvélinni, setningu.
enda hefur allt veriö Grassafnari, svo ekki
gert til aö auövelda
þér verkiö.
þarf að^raka.
3,5 hö, sjálfsmurö tvi-
gengisvél, tryggir lág-
marks viðhald.
Hljóölát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp að veggjum
Auðveld hæðarstilling
Ryöfri.
Fyrirferöalitil, létt og
meðfærileg.
VELDU GARÐSLÁTTUVÉL, SEM GERIR MEIR
EN AÐ DUGA.
AQtaf á föstudögum
Drjúgt er í töskum kvenna
Skyggnst ofan í „helgidóminn" hjá nokkrum konum.
Sjálfstraust og megrun
Norræn afmæliskveðja til
Reykjavíkurborgar
Á annaö hundrað listamenn og skemmtikraftar
koma hingað til lands í júlí og halda hátíð í borginni
með íslenskum starfsbræðrum sínum í tilefni af tvö
hundruð ára afmæli höfuðborgarinnar. Rætt er við
Birgi Edvardsson framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
Fataefni og gæði þeirra
Fatnaður úr vönduðum efnum er dýrmæt eign.
Myndbönd
Föstudagsblaðið ergott forskot á helgina
Enn um flugöryggi
eftirÁmunda H.
*
Olafsson
í Morgunblaðinu 16. maí sl. birt-
ist gagnmerk grein eftir Jóhannes
R. Snorrason um flugöryggismál.
Greinin heitir: Um öryggi í flugi.
Jóhannes getur trútt um flugöryggi
talað og hefur geflð öðrum flug-
mönnum gott fordæmi með 37 ára
farsælum flugmannsferli, starfandi
sem yflrflugstjóri Flugfélags ís-
lands hf. og síðan hjá Flugleiðum
hf. Tilefni skrifa hans er umræðu-
þáttur í sjónvarpinu ásamt viðtali
við Pálmar Smára Gunnarsson um
hið hörmulega flugslys í Ljósufjöll-
um 5. aprfl sl. Ég vil sérstaklega
minna á og tilgreina skoðanir hans
varðandi tvo flugmenn í stjómklefa
farþegaflugvéla. Um þetta segir
Jóhannes: „í umræðunni minntist
enginn á þann augljósa öryggisþátt
að í stjómklefa farþegaflugvéla
skuli vera tveir vel þjálfaðir flug-
menn. Ég minnist þess frá fyrri
árum hve okkur fannst það mikil
ffamför og aukið öryggi þegar
teknar voru í notkun flugvélar þar
sem þessa var kraflst. Þessi örygg-
isþáttur gleymdist alveg í umræð-
unni en hefði þó verið þess virði
að um hann yrði fjallað.
Tveir vel þjálfaðir flugmenn ættu
að vera um borð í öllum fjölhreyfla
flugvélum sem flytja fólk fyrir
gjald, a.m.k. undir öllum kringum-
stæðum þegar flogið er blindflug,
um það er engin spuming í mínum
huga. Vissulega myndi það valda
auknum kostnaði fyrir litlu flug-
félögin, en við emm að ræða örygg-
ið sem fjárhagssjónarmið mega sem
allra minnst áhrif hafa á. Öllum
ætti að vera ljóst að það kostar
mikla fjármuni að starfrækja flug
með öryggi og festu, en ég álít að
fólkið í landinu vilji greiða fyrir
öryggi í flugsamgöngum. Öllum
ætti einnig að vera ljóst að full-
komnu öryggi verður ekki náð, en
við verðum að reyna að komast sem
næst því marki. Annað hvort höfum
við efni á að halda hér uppi flug-
samgöngum með boðlegu öryggi
eða við verðum að bíða þar til við
höfum efni á því.“
Þetta er vel mælt og undir þessi
orð Jóhannesar tek ég heilshugar.
Ég vil líka minna á að þetta mál
hefur ekki öllum verið gleymt, er
rejmdar löngu leyst, aðeins óaf-
greitt.
Rannsóknamefnd flugslysa skil-
Amundi H. Ólafsson
„Þess má geta að Flug-
íeiðir hf. gáfu út þá
yfirlýsingn í maí 1983,
að allt flug’ á vegum
Flug-leiða verði fram-
kvæmt af tveimur flug-
mönnum. Við það hefur
verið staðið.“
aði skýrslu 14. des. 1982, sem fjall-
aði um það flugslys, er TF-FHJ
fórst í Kistufelli í Esju 20. júlí 1982,
og þar með fímm manns. í skýrslu
rannsóknamefndarinnar segir orð-
rétt: j, 4. — Tillögur í öryggisátt.
4.5. Ahöfn loftfara. Gaumgæfílega
skuli íhugað, hvort við stjóm loft-
fara sem eru í farþegaflugi í at-
vinnuskyni, skuli gera kröfur um
tvo flugmenn með gild réttindi,
þegar áætlað er flug í blindflugs-
ski_lyrðum.“
í framhaldi af rannsókn og
ábendingu Rannsóknamefndar
flugslysa ritaði Flugmálastjóm og
Loftferðaeftirlit Öryggisnefnd fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna
bréf og bað um tilnefningu fulltrúa
frá Öryggisnefnd FÍA í nefnd
beggja aðila til úrlausnar á ábend-
ingu Rannsóknamefndar flugslysa.
Á endanlegum fundi náðist sam-
eiginleg niðurstaða, þannig skráð
hjá Loftferðaeftirliti flugamála-
stjómar:Þ
„Fundur hjá Loftferðaeftirliti
flugmálastjómar 20. maí 1983 kl.
13.30. Fundinn sátu: Ámundi H.
Ólafsson, öiyggisnefnd FÍA, Þórður
Finnbjömsson, öryggisnefnd FÍA,
Skúli Jón Sigurðarson, loftferðaeft-
irliti, Grétar H. Óskarsson, loft-
ferðaeftirliti, Magnús Guðmunds-
son, loftferðaeftirliti. Efni fundar-
ins: Ábending flugslysanefndar um
að gerðar verði kröfur um tvo flug-
menn í farþegaflugi í atvinnuskyni
þegar áætlað er flug í blindflugs-
skilyrðum, sbr. slysaskýrslu
TF-FHJ frá 14. desember 1982.
Fundarmenn komust að sameig-
inlegri niðurstöðu svohljóðandi: Við
stjóm loftfara í atvinnuskyni með
farþega þegar áætlað er blindflug
skulu vera tveir flugmenn með gild
réttindi til blindflugs og gild réttindi
á viðkomandi loftfarstegund og gilt
atvinnuflugmannsskírteini III.
flokks. Þetta gildir einnig við allt
atvinnuflug með farþega milli Is-
lands og annarra landa. Reglur
þessartaki gildi 1. október 1983.“
Undir þessar reglur rituðu allir
ofangreindir nafn sitt. Reglur þess-
ar hafa aldrei fengið, en vantar
aðeins, staðfestingu samgönguráð-
herra til fullgildingar.
Þess má geta að Flugleiðir hf.
gáfu út þá yfirlýsingu í maí 1983,
að allt flug á vegum Flugleiða verði
framkvæmt af tveimur flugmönn-
um. Við það hefur verið staðið, þ.e.
þegar Flugleiðir þurfa að leigja
flugvél hjá öðrum flugfélögum,
verða tveir flugmenn að fljúga við-
komandi flugvél.
Ritstjómargrein Morgunblaðsins
11. apríl sl. nefnist „Öryggi í flugi“.
Þar segir m.a.: „Fyrir liggur að 29
manns hafa látið lífið í tíu flugslys-
um hér á landi frá 1980 og í öllum
tilfellum er um litlar flugvélar að
ræða.“ Ennfremur segir: „En hitt
er íhugunarefni fyrir embættis-
menn og þá ekki síður stjómmála-
menn, sem sérleyfi veita, að öryggi
sé alltaf í fyrirrúmi, þegar slík leyfi
eru veitt. Það eina sem í raun og
veru skiptir máli í sambandi við
flugrekstur hér á landi er öryggi
farþega. Og það eina sem við höfum
ekki efni á er áhætta sem leitt
gæti til mannskaða. Við þurfum og
verðum að herða róðurinn í öryggis-
málum.“
Svo mörg eru þau orð um flugör-
yggi. Nú er að sýna vilja í verki.
Vilji er allt sem þarf — og ein
undirskrift.
Skrifað 24. maí.
Höfundur er flugstjórí hjá Flug-
leiðum.
Menntaskólinn við Sund:
Brautskráir 161 stúdent
Mennstaskólanum við sund var
slitið í Háskólabíói sl. fimmtu-
dag. Lauk þá sautjánda starfsári
skólans, en stúdentar voru út-
skrifaðir þaðan i fjórtánda sinn.
Sigurður Ragnarsson, konrektor,
sem gegnt hefur starfí rektors á
liðnu skólaári, flutti yflrlit um starf
skólans undangengið skólaár. í máli
hans kom m.a. fram að 830 nem-
endur stunduðu nám í skólanum í
vetur. Samtals störfuðu 66 kennar-
ar við skólann, 36 fastir kennarar
og 30 stundakennarar.
Bjöm Bjamason, rektor, braut-
skráði síðan 161 stúdent frá skólan-
um og em þá stúdentar skólans
orðnir fast að 2.500. Hinir nýju
stúdentar skiptust þannig á náms-
brautin málabraut 17, félagsfræði-
braut 41, hagfræðibraut 32, nátt-
úmfræðibraut 40 og eðlisfræði-
braut31.
í hópi nýstúdenta vom 87 stúlkur
og 74 piltar. Stúlkumar hafa verið
í meirihluta í stúdentahópnum
undanfarin ár, en nú bar svo við,
að þær vom einnig í meirihluta á
eðlisfræðibraut, sem til skamms
tíma var að miklum meirihluta
skipuð piltum. Hefur það ekki gerst
áður í sögu Menntaskólans við sund.
Hæstar einkunnir á stúdentsprófí
hlutu: Auður Freyja Kjartansdóttir
úr eðlisfærðideild og Benedikt
Ámason úr hagfræðideild, bæði
með einkunnina 9,4, Anna Þórdís
Sigurðardóttir eðlisfærðideild með
9,3, Róbert Jón Raschhofer eðlis-
fræðideild með 9,2 og Ragnhildur
Sigurðardóttir náttúmfræðideild
með 9,0. Þau hlutu öll viðurkenn-
ingar fyrir frábæran námsárangur.