Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
21
Leiksögiileg1
athugasemd
eftir Svein Einarsson
í umfjöllun um hina skemmtilegu
sýningu Nemendaleikhússins á
Tartuffe eftir Moliére hefur hvað
eftir annað verið hamrað á því, að
um sé að ræða frumflutning verks-
ins á sviði hérlendis. Það er ekki
fyllilega rétt. Vorið 1929 léku þau
Paul Reumert og Anna Borg gesta-
leik hjá Leikfélagi Reykjavíkur og
voru þá fluttir þrír fyrstu þættimir
í þessu meistaraverki Moliéres. Þau
Reumert og Anna léku á dönsku
og aldrei mun hafa verið þýtt nema
þessir þrír þættir og þá reyndar
ekki hlutverk Mariane, sem Anna
lék og Tartuffes sjálfs, sem Reum-
ert lék. Hann hafði reyndar leikið
þetta hlutverk sem gestur fyrstur
útlendinga í Comedie Francaise,
sjálfu húsi Moliéres, og á frummál-
inu. íslenska þýðingin var eftir
Indriða Einarsson og er mér reynd-
ar ókunnugt um, hvar hún kann
að vera niðurkomin, en meðal þátt-
takenda í sýningunni vom Soffía
Guðlaugsdóttir, sem lék Elmire,
Ardís Bjömsdóttir, sem lék Dorina,
og Valur Gíslason (Cléante) og
Biynjólfur Jóhannesson, sem lék
Orgon (og svo skemmtilega vill til
að ungur fslenskur leikari, dóttur-
sonur Brynjólfs, leikur á Comedie
Francaise um þessar mundir, Þór
Tulinius).
Síðar var verkið flutt af stúdent-
um f útvarpi f leikstjóm Lámsar
Pálssonar og þýðingu Boga Ólafs-
sonar, sem trúlega hefur ekki verið
í bundnu máli. Þetta var 1946 og
meðal flytjenda ýmsir síðar þjóð-
kunnir menn eins og Thór Vil-
hjálmsson, Stefán Hilmarsson,
Hulda Valtýsdóttir, Helga Möller
n ogEinarPálsson.
Annars ríQast hér upp, hversu
oft kemur í ljós við slík tilvik, hve
þekking á fslenskri leiklistarsögu
er takmörkuð og að menn kunna
ekki að hafa ekki nennu á því að
nýta sér þau fáu gögn, sem þó til
em. Þannig kynnti Stúdentaleik-
húsið franska framúrstefnuhöfund-
inn Jean Tardieu með pomp og
prakt fyrir nokkmm ámm — tæpum
tuttugu ámm eftir að Leikfélag
Reykjavíkur hafði raunvemlega
fyrst kjmnt þennan forvitnilega
höfund. Svo ekki sé nefnd þau
mýmörgu dæmi, þegar fjölmiðlafólk
er óvitandi um verk, sem hér hafa
verið sýnd — rekast á þau í umgetn-
ingum um leiksýningar erlendis eða
nýjar kvikmyndir og skíra upp á
nýtt, þannig að almenningi er óger-
legt að glöggva sig á því, að um
sama verkið sé að ræða.
Svo em og önnur dæmi. í tilefni
af sýningu Leikfélags Hafnaifyarð-
ar nýverið á Galdra-Lofti, mátti sjá,
hvemig hver gagmýnir af öðmm
tuggði upp — og þá sennilega úr
Poul Reumert f hlutverki
Tartuffe, sem hann lék meðal
annars í Reykjavík 1929
leikskrá — að hressileg sýning
Leiksmiðjunnar fyrir nokkmm
ámm hefði breytt skilningi manna
á titilpersónunni frá ofurmennsku-
hugsjón til venjulegs leitandi ungl-
ings. Hér er hugsanlega lögð til
gmndvallar Skímisgrein frá 1980.
Engin ástæða er svo sem til að efast
um það sérstaklega, að aðstandend-
ur umræddrar sýningar hafi ætlað
sér hinn sfðartalda skilninginn, ef
rétt er tíundað. En sjón er sögu
ríkari, og að minnsta kosti margir
þeir, sem sáu sýninguna, upplifðu
þann Loft, sem þar gat að lfta, sem
algjöra undantekningarmanneskju.
Menn skyldu varast að bera hug-
lægar upplifanir fram sem stað-
reyndir.
Höfundur er fyrrverandi Þjóð-
leikhússtjórí
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Hann fylgir þér
fyrírhafnarlaust
MobiraTalkman, söluhæsti bílasíminn á Norðurlöndum, erótrúlega lipurog léttur í
meðförum. Mobira Talkman vegur aðeins 4,4 kg. með öllum búnaði (enginn
aukabúnaður) og er því sá léttasti á markaðnum. Sjátfvirk hleðsla á rafhlöðum gerír
Mobira Talkman ávallt tilbúinn til notkunar utan bílsins.
Þetta, ásamt því hversu sáraeinfalt og fljótlegt er að kippa Mobira Talkman
með sér úr bílnum, gerir hann ekki síður sigurstranglegan hér á íslandi
en á hinum Norðurlöndunum.
Sendi og rafhlöðum
smellt úr. t.d undan framsæti
eða úrfarangursgeymslu Talfærið í samband Loftnetið í samband Tilbúinn!
Renndu við eða hringdu í Hátækni í Ármúlanum og fáðu allar nánari upplýsingar
um Mobira Talkman. Það er vel þess virði.
IJr
Hátæknihf
Ármúla 26, símar: 91 -31500 - 36700
108 Reykjavík
Godgreiðslukjör
2 þættir á spólu
Þættir 59/60 koma á bensínstöðvar OLÍS á Stór-
Reykjavíkursvæðinu — Kelfavík og Akureyri í dag.
Einnig á útvaldar myndbandaleigur á landsbyggðinni.
Dreifing á landsbyggðinni,
Tefli hf., Síðumúla 23,
sími 686250.
J