Morgunblaðið - 29.05.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
23
gengum niður að fyrirhuguð-
um byggingarstað. Jú, svei mér
þá, það var tekið mark á okkur
og hætt við þetta fyrirhugaða
stórhýsi sem hefði dregið að
sér umferðina svo ekki hefði
verið líft í hverfinu. HÚRRA.
En hvað skeður svo? Fyrir-
varalaust og án nokkurra at-
hugasemda er stórverslunin
Mikligarður (Stóra hryllings-
búðin) opnaður. Upphófst þá
mikið húllumhæ hér á Holta-
veginum, ekki bara frá 9-5
mánudag til föstudags heldur
9-7 virka daga og 9-4 laugar-
daga og mikið þarf þetta stóra
fyrirtæki af vörum svo nú
öskra stóru flutningabilarnir
við eldhúsgluggann minn og
Holtavegurinn gefur Lauga-
veginum ekkert eftir hvað bíla-
umferð varðar. Því miður bætt-
ist enn eitt við þvi sjaldan er
ein báran stök. Friðsæl hár-
greiðslustofa sem var á horninu
á móti húsinu mínu hætti starf-
semi og sjoppa kom i stað
hennar, fín sjoppa með ham-
borgurum og kjúklingum að
ógleymdu gosi og öllu þvi sæl-
gæti sem nöfnum tjáir að
nefna. Bilstjórar stóru bílanna
sáu þetta auðvitað og notfæra
sér þjónustuna og leggja þá
bílunum sinum á hornið fyrir
utan svona rétt á meðan þeir
fá sér í svanginn. Geta nú allir
séð að útsýnið er ekki upp á
marga fiska fyrir akandi og
gangandi svo ég tali nú ekki
um börnin en Holtavegurinn
liggur bæði að Langholtsskóla
og Þróttheimum.
Já, nú voru góð ráð dýr. Ég
hringdi í Gatnamálastjóra í
fyrra og talaði við fulltrúa
hans. Sagði hann að ekkert
væri hægt að gera til þess að
draga úr þvi að bílum væri lagt
á hornið, ekkert mark væri
tekið á skiltum um að bílastöð-
ur væru bannaðar, það eina
sem ég gæti gert væri að biðja
sjoppueigandann um að reyna
að bægja bOunum frá. Síðan
hefur sjoppan skipt um eigend-
ur og ungu stúlkumar sem
afgreiða þar hafa að sjálfsögðu
annað þarfara að gera en að
fæla bílana frá þvi þá vilja
kúnnarnir gjaman fylgja með.
Ég skora þvi á borgarstjóra
að reyna að bæta þetta óviðun-
andi ástand og spyr hann að
þvi hvort ekki megi setja hraða-
hindrun á Holtaveginn og hand-
rið fyrir framan sjoppuna þvi
þar er breið gangstétt sem
ungu bilstjóramir hika ekki við
að leggja drekunum sinum upp
á. Ástandið er sem sagt mjög
slæmt. Má ég eiga von á úrbót?
Svo einföld er spuming min
eftir allan þennan formála.
Með fyrirfram þakklæti til
Daviðs, borgarstjóra, og Morg-
unblaðsins.
Svar:
Það var vinstri meirihlutinn í
borgarstjóm, sem _ ákvað hvort
tveggja; stórhýsi SÍS við Sundin
og stórmarkaðinn Miklagarð.
Vegna öflugra mótmæla borgar-
búa var hætt við fyrri ákvörðun-
ina, en vinstri menn heimiluðu
Miklagarð til bráðabirgða og settu
um það mjög ákveðin tímamörk.
Þau mörk hafa verið rýmkuð, en
miðað við hin upprunalegu tíma-
skilyrði vinstri borgarstjómarinn-
ar, ætti ekki að vera um það
mikill ágreiningur, að Sundahafn-
arsvæðið er ekki framtíðarstaður
fyrir svona starfsemi.
Um hina beinu spumingu bréf-
ritara er það að segja, að í borgar-
ráði er nú verið að fjalla um tillögu
umferðarráðs um hraðahindmn á
Holtavegi og hef ég raunar svarað
því áður. Nýjar reglur um stöðu
stórra bíla em að ganga í gildi
og bæta vonandi ástandið, en ég
mun láta kanna, hvort rétt þykir
að setja handrið það sem bréfritari
talar um.
Baldurshagi — Hólms-
land
Stefán Jónsson, Aðalstræti
6, spyn
Hjá Baldurshaga og í Hóhns-
landi við Geitháls eru allmargir
sumarbústaðir. Sumir þessara
bústaða eru ársíbúðir. Borgin
hefur veitt þvi fólki sem þarna
býr ýmsa þjónustu, svo sem lagt
þangað rafmagn, sorphreinsun,
strætisvagnaferðir og skólabQ.
Hvernig stendur á þvi að við,
sem þarna erum meira og
minna og aðrir allt árið, höfum
ekki fengið neysluvatn frá
vatnsveitunni? Megum við, sem
hér eigum hlut að máli eiga von
á heilnæmu vatni í krana okkar
á næstu mánuðum verðir þú
áfram borgarstjóri?
Svar:
Það er mjög dýrt að tengja
þessi hús við vatnsveitukerfíð,
bæði vegna fjarlægðar og vegna
þess hve hús þau, sem um ræðir
standa dreift. Neysluvatnsþörf
þessara húsa er miklu ódýrara að
leysa með því að bora eða grafa
eftir vatni á staðnum. Að sjálf-
sögðu vona ég, að þessi mál leys-
ist á viðunandi hátt, en ég sé
því miður ekki, að það geti orðið
þannig, að borgin leiði þangað
vatn frá Vatnsveitu Reykjavíkur.
Athafnasvæði Björg-
unarhf.
Sigurður Guðmundsson,
Funafold 75, spyr:
a) Hvernig stendur á því að
farið er að úthluta lóðum fyrir
vestan Gullinbrú á sama tíma
og úthlutunum er ekki lokið
austan megin? Verður þetta
ekki tU þess að fullfrágangi
hverfisins austan við Gullinbrú
seinkar?
Svar:
Eftirspum eftir lóðum hefur
verið mjög breytileg frá ári til árs.
Á árinu 1984 var t.d. úthlutað
mun fleiri lóðum en gert var ráð
fyrir í ljárhagsáætlun. Þá voru
t.d. örfáar lóðir eftir i 1. áfanga
austan Gullinbrúar og neðan Fjall-
konuvegar en til viðbótar var út-
hlutað um 50 lóðum ofan Fjall-
konuvegar. Það hefur verið stefna
núverandi meirihluta að hafa
framboð lóða meira en eftirspum.
Því var ákveðið að gera hluta
svæðisins vestan brúar bygging-
arhæfan. Ekki stendur til af hálfu
Reykjavíkurborgar að breyta
áætlun um frágang svæða austan
Gullinbrúar þótt byrjað sé að út-
hluta vestan hennar. Svæðið aust-
an brúar en neðan Fjallkonuvegar
er nær fullúthlutað og sýnist mér
sem meiri áhugi umsækjenda sé
eftir lóðum þar en vestan brúar-
innar.
b) Fyrirtækið Björgun er
með athafnasvæði gegnt nýja
hverfinu í Grafarvogi. Þar er
oft unnið allan sólarhringinn
og starfseminni fylgir hávaði
og mengun. Þess vegna vil ég
spyija borgarstjóra hvort hér
sé um að ræða framtíðarsvæði
fyrir fyrirtækið.
Svar:
Athafriasvæði Björgunar er á
hafnarsvæði og ekki fyrirhugað
að breyta því, enda hefur þetta
svæði verið sýnt sem hafnarsvæði
á skipulagi um árabil. Hins vegar
er sjálfsagt að beina athugasemd
og ósk um úrbætur til forráða-
manna Björgunar.
Leikvöllurinn við
Granaskjól
Sigurður Hallgrímsson,
Granaskjóli 24, spyr:
í Granaskjóli er barnaleik-
völlur sem aldrei hefur verið
gengið frá. Rauðamöl og gijót
er á Ieikvellinum svo börn geta
ekki nýtt sér leiksvæðið og
leika sér þvi á götunum í stað-
inn. Stendur ekki til eftir öll
þessi ár að ganga frá þessum
leikvelli svo íbúar hverfisins
geti verið óhræddir um börnin
sín.
Svar:
Leikvöllurinn við Granaskjól
verður lagfærður og settur í
stand. Það verður gert núna á
næstu dögum.
Hljóðmúr við Jaðarsel
Guðmundur Pétursson,
Kleifarseli 39, spyr:
Skv. núgUdandi skipulagi
Reykjavíkurborgar er gert ráð
fyrir að gangstígur við Jaðarsel
á kaflanum milli Kleifarsels og
Klyfjasels liggi norðanvert
(neðan) við Jaðarsel. Þarna var
íbúum við Kleifarsel lofaður
„hljóðmúr" þegar þeir unnu að
deiliskipulagi með fulltrúa
Reykjavíkurborgar.
Spurning: VUt þú beita þér
fyrir að gangstigurinn verði
felldur niður á þessum kafla
og „hljóðmúrinn“ við Jaðarsel
á kaflanum milli Kögursels og
Klyfjasels fái að halda sér að
Kleifarseli? Þetta yrði veruleg-
ur sparnaður fyrir Reykjavík-
urborg. P.s. Hvenær má ætla
að framkvæmdum á þessum
kafla ljúki?
Svar:
Varðandi fyrirspum íbúa við
Kleifarsel 1-47 um hljóðmúr og
gangstíg við Jaðarsel milli Kleif-
arsels og Jaðarsels, skal tekið
fram að samkvæmt upprunalegu
skipulagi var gert ráð fyrir bæði
gangstíg og hljóðmúr á þessu
svæði. Þar sem það er eindregin
ósk íbúanna að umræddur gang-
stígur verði felldur niður mun ég
beita mér fyrir því að það verði
gert enda verður þá fyrirhugaður
gangstígur sunnan Jaðarsels
gerður með tilliti til þess.
Framkvæmdir við hljóðmúrinn
ættu að geta hafist mjög fljótlega.
Símatími fyrir
unga kjósendur
FRAMRJÓÐFVD VR SJÁI.FS TÆBISFV OKKSIIVS
Frambjóðendur
Sjálfstæðisflokks-
ins bjóða ungum
kjósendum upp á
símaviðtalstíma í
kvöld fimmtudag-
inn 29. maífrá kl.
19.00 til22.00.