Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
Hellisland, kjörinn staður fyrir fólkvang Selfossbúa f framtíðinni, í baksýn er Selfoss.
Fyrir kynslóðir
en ekki kynslóð
Um umhverfismál á Selfossi
umhverfismál, t.d. að umhverfís-
sjónarmiða skuli að jafnaði gætt
eða að vemda náttúmna og það
sérstaka sem kann að vera í hveiju
byggðarlagi. Einnig á að gera ráð
fyrir opnum svæðum með tilliti til
útivistar og þá greint frá til hvers
þessi svæði skuli notuð. Opnu
svæðin geta verið margskonar, t.d.
íþróttasvæði, svæði til skrúðgarða-
ræktunar eða skógræktar ofl. ofl.
Deiliskipulag tekur síðan við af
aðalskipulagi og er það nánari út-
færsla á notkun svæðisins. Deili-
skipulagið er svo til eingöngu unnið
af viðkomandi sveitarfélagi og er,
ef vel á að fara, mikil nákvæmnis-
vinna, t.d. varðandi svæði sem
merkt er grænt á aðalskipulagi og
tilgreint sem íþróttasvæði þarf í
deiliskipulagi að koma fram hvers
konar íþróttir eigi að stunda þar.
Eins og gefur að skilja getur verið
um margskonar svæði að ræða t.d.
knattspymuvöllur, trimmsvæði,
sundlaug, svæði fyrir hestamenn,
golfvöllur og svona mætti lengi
telja.
Það er því stórmál fyrir hvert
sveitarfélaga að vel takist til um
deiliskipulag og er umhverfismála-
þátturinn einna þyngstur á metun-
um, eins miklu máli og hann skiptir
okkur í hinu daglega lífí.
Þrátt fyrir þessa staðreynd virð-
ast sveitarstjómarmenn, upp til
hópa, hafa lítinn áhuga á umhverf-
ismálum. Þessu til stuðnings má
benda á þá litlu fjármuni sem varið
er í umhverfísmál í mörgum sveitar-
félögum ásamt því hve umhverfis-
nefndir hafa þar oftast nær lítið
vægi í sínum ályktunum miðað við
aðrar neftidir t.d. bygginganefnd,
en hennar styrkur er að vísu að hún
Hulda Guðbjömsdóttir
„Það er því stórmál
fyrir hvert sveitarfélag
að vel takist til um
deiliskipulag o g er
umhverfismálaþáttur-
inn einna þyngstur á
metunum, eins miklu
máli og hann skiptir
okkur í hinu daglega
lífi.“
er lögskipuð. Þó skal bent á það,
að Reykjavíkurborg hefur farið á
undan með góðu fordæmi með því
að sameina ýmsar nefndir er fóru
með umhverfísmál og setti á lagg-
eftir Huldu
Guðbjörnsdóttur
Á undanfömum ámm, jafnvel
áratugum, hefur í hinum ýmsu
löndum vaknað mikill áhugi fyrir
náttúruvemd og umhverfísmálum
almennt. Sú er krafa almennings
að við getum átt þess kost í daglegu
lífí að hafa rými og komast í snert-
ingu við náttúruna ásamt því að
almennt fegurðarskyn fái að njóta
sín._
Á íslandi hefur áhugi á þessum
málum aukist til muna frá því sem
áður var, en þrátt fyrir þennan
áhuga á undangengnum ánim er
skipulag þessara mála ( ýmsu
ábótavant, það eru t.d. ein sex ráðu-
neyti sem fara með hina ýmsu
þætti umhverfismála. Það segir sig
því sjálft að óumflýanlegir árekstr-
ar hljóta að eiga sér stað í þessum
málaflokki og er skemmst að
minnast þeirra rannsókna er þurfti
að gera á kísilgúr í Mývatni og
engan veginn var ljóst hver átti að
sjá um og/eða borga þessar rann-
sóknir. Það er því löngu tímabært
að stofnað verði sérstakt Umhverf-
ismálaráðuneyti sem fari með
helstu þætti þessarra mála.
Hvað snertir þessi mál í þéttbýli
eru þau oftast í höndum lögskipaðra
nefnda: Náttúruvemdar-, gróður-
vemdar-, bygginga- og heilbrigðis-
nefndar, einnig era oft starfandi
umferða-, ferðamála- og fegranar-
nefndir. Állar þessar nefndir starfa
innan sveitarfélaganna að umhverf-
ismálum að meira eða minna leyti.
Tekið skal þó fram að allt era þetta
ráðgefandi nefndir og hið eiginlega
vald er hjá kjömum sveitarstjómar-
mönnum.
Ætla má af ofan töldu að mikil
gróska væri nú í umhverfis- og
skipulagsmálum, ásamt því að nú
er landið allt skipulagt með lögum.
Sjá nánar meðfylgjandi skipurit.
í aðalskipulagi er einkum um
að ræða stefnumörkun um land-
notkun og þróun byggðar. Þar era
bein ákvæði í reglugerð er snerta
Svæði milli Austurvegar og Árvegar er upplagt fyrir skrúð- eða grasagarð til að sýna fram á hvaða
jurtir er hægt að rækta á Selfossi.
Ekki premíum/premíum bensín
Reikningur yfir umræddan bensfnfarm. Skammstöfunin RMS stendur
fyrir „Regular Motor Spirit".
eftir Árna Ól.
Lárusson
Þórður Ásgeirsson sendir mér
kveðju sína f Morgunblaðinu f gær
undir fyrirsögninni „Premíum bens-
ín 01ís“. Hann vfsar til þess sem
haft var eftir mér í frétt, sem birt-
ist f Morgunblaðinu 27. þ.m., en
þar kom fram, að ég vildi ekki líkja
97 octan bensfni Olís við premfum.
bensfn Skeljungs, sem væntanlegt
er til landsins um næstu helgi. Þórð-
ur vill ekki sætta sig við, að ég
telji hér ekki um sambærilega vöru
aðræða.
Allsendis granlaus var ég um,
að þessi orð yrðu tilefni skeytasend-
inga í minn garð af hálfu Þórðar.
Auðvitað er umrætt bensín sam-
bærilegt að því leyti, að hvort
tveggja er bensín. En þegar farið
er að flokka bensfn niður f premíum,
regular, stjömu, súper eða hvaða
nöfnum sem menn vilja gefa bensíni
með mismunandi eiginleikum, eink-
um ef það er keypt undir einu nafni
en selt undir öðru, þá horfír svolítið
öðruvísi við. öllum er ljóst að mjólk
er mjólk, hvort sem hún er nýmjólk
eða léttmjólk og sambærileg sem
mjólk. En vegna innri samsetningar
og flokkunar verður hún ósambæri-
Ieg.
Bensínið, sem Olís auglýsir sem
premíum bensín, var keypt til lands-
ins sem regular bensín og á inn-
kaupsverði, er miðaðist við regular
bensfn. Þetta bensfn, samtals um
12.000 tonn, keyptu Skeljungur hf.
og Olíufélagið hf., en Olís fékk á
síðari stigum að ganga inn í kaupin,
sem nam um 3.200 tonnum. Við
það eitt breyttust eiginleikar bens-
ínsins ekkert og kaupin vora gerð
á grandvelli regular bensíns, en það
er einmitt þetta bensfn, sem Olís
kýs að kalla premfum bensín.
Með skilgreiningu Þórðar á því
sem er sambærilegt selja öll félögin
í dag sambærilegt bensín á bensín-
stöðvum sínum, en sé litið til blönd-
unarhlutfalls þess selur Olís bensfn-
ið óblandað en hin félögin að nokkru
blandað. En allir selja bensín. Skelj-
ungur og Olfufélagið kusu að selja
þetta umrædda bensín sem venju-
legt bensín, þótt einstakir þættir
þess væra í átt til premíum bensíns,
enda hafði bensínið verið keypt sem
regular bensín og greitt sem slíkt
eins og áður segir.
Ekki skal frekar Qölyrt um þetta
mál. Rétt er þó að árétta, að farmur
sá af bílabensíni, sem Skeljungur
og Olíufélagið hafa nú fest kaup á,
er keypt sem premíum bensfn, með
öllum þeim eiginleikum sem það á
að hafa og verður selt sem preiníum
bensín. Með öðram orðum varan
verður afhent notendum undir sama
nafni og hún er keypt undir.
Höfundur er frumkvæmdastjóri
fjármálasviða Skefjungs hf.
Jónfna Guðnadóttir
Sýnirí
Gallerí Gijóti
Jónína Guðnadóttir opnar sýningu
í Gallerí Gijóti á morgun, föstudag-
inn 30. maí, kl. 18. Á sýningunni
eru lágmyndir og skúlptúrar úr
steinleir. Þetta er sjötta einkasýn-
ing Jónínu og um leið önnur sýning
hennar í Gijótinu. Auk þess hefur
hún tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum innan lands sem utan.
Sýningin er opin frá kl. 12—18 alla
virka daga og frá kl. 14—18 um
helgar. Henni lýkur 12. júní.