Morgunblaðið - 29.05.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
„Vettvangur til að
móta heimabyggðina“
— segir Sigríður A. Þórðardóttir
efsti maður á lista í Grundarfirði
má segja að sveitarstjómarmál
séu sá hluti stjómmála sem
stendur okkur næst og snertir
nánasta umhverfi okkar. Heill
„Ef sjálfstæðismenn fá
meirihluta í sveitarstjóm við
þessar kosningar verður fag-
leg úttekt gerð á fjármálum
sveitarsjóðs og samin áætlun á
grundvelli úttektarinnar. Og
annað, við ætlum að ráða
hæfan sveitarstjóra til starfa
fyrir sveitarfélagið," segir
Sigríður A. Þórðardóttir kenn-
ari sem skipar fyrsta sæti á
framboðslista sjálfstæðis-
manna í Grundarfirði. Sigríð-
ur gegndi starfi oddvita á síð-
asta kjörtimabili, 1978—1982.
Hún hefur starfað í ýmsum
nefndum og gegnt trúnaðar-
störfum fyrir sveitarfélagið á
yfirstandandi kjörtímabili.
„Ein leið til pólitískra áhrifa
er að taka þátt í sveitarstjómar-
störfum. Ég tel reyndar að sú
leið sé mjög vænleg til árangurs
ekki síst fyrir okkur konur,"
sagði hún. „Ég hóf afskipti af
sveitarstjómarmáium vegna þess
að á þeim vettvangi gafst tæki-
færi til að taka þátt í framfömm
og mótun heimabyggðar minnar,
Grundarfjarðar. Mér fannst það
mjög heillandi verkefni og vildi
leggja fram krafta mína. Það
og hamingja hvers byggðarlags
ræðst síðan af því hvemig þess-
um málum er sinnt, hveijir velj-
ast til forystu og hvaða stefnu
er fylgt."
í stefnumálum sínum leggja
frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins á Gmndarfírði áherslu
á uppbyggingu fjölbreytts at-
vinnulífs, þar á meðal eflingu
ferðamannaþjónustu.
Þá er á stefnuskránni að ljúka
byggingu íþróttahússins, halda
áfram framkvæmdum við höfn-
ina, efla skólastarf, meðal annars
með því að bæta aðstöðu fyrir
verklega kennslu. Sjálfstæðis-
menn á Gmndarfirði fengu tvo
hreppsnefndarfuiltrúa kjöma við
síðustu sveitarstjómarkosningar
en eftir kosningar mynduðu
framsóknar- og alþýðubanda-
lagsmenn meirihluta.
Mikill hugur er í sjálfstæðis-
mönnum á Gmndarfirði í þessari
kosningabaráttu, að sögn Sigríð-
ar, en takmarkið er að fá þijá
fulltrúa kjöma og ná þar með
meirihlutanum.
Umsjón: Helga Ólafsdóttir
Yfir tvö hundruð sjálfstæð-
iskonur á framboðslistum
Konur á framboðslistum
sjálfstæðismanna i komandi
sveitarstjómarkosningum
era rúmlega þijátiu prósent
frambjóðenda. Alls skipa 217
konur sæti á listum sjálf-
stæðismanna. Á fjórum stöð-
um á landinu eru konur í
fyrsta sæti, það er á Húsavík,
Olafsfirði, Grundarfirði og
Eyrarbakka. Á þrettán stöð-
um eru konur i öðru sæti og
á nítján stöðum skipa konur
þriðja sæti á listum.
Umsjónarmaður síðunnar
hafði samband við nokkrar
kosningaskrifstofur og alls
staðar var mikill hugur í
starfsfólki og frambjóðend-
iim.
„Málefnastaða okkar er góð,
en það verður að vinna vel ffarn
að kosningum, því ekkert er
öruggt í pólitík," sagði Krístín
Bjömsdóttir formaður Sjálf-
stæðiskvennafélags Snæfells-
og Hnappadalssýslu. Hún skip-
ar annað sæti lista sjálfstæðis-
manna í Stykkishólmi en hún
hefur unnið að hreppsnefndar-
málum til margra ára.
í sama streng tók Sigrún
Símonardóttir sem skipar
þrifja sæti á lista sjálfstæðis-
manna í Borgamesi. Sigrún
sagði að konur tækju nú gífur-
lega mikinn þátt í kosningabar-
áttunni. Fimm sjálfstæðiskon-
ur em á lista sjálfstæðismanna
í Borgameshreppi.
Meðal sjálfstæðisfólks á
Patreksfírði er mikill baráttu-
hugur og vel unnið. í fyrsta
skipti nú hafa sjálfstæðismenn
boðið konu fram til sýslunefnd-
ar en það er Ingveldur Hjartar-
dóttir. Hún varð fyrir svömm
þegar haft var samband við
kosningaskrifstofuna á Pat-
reksfirði og sagði hún að mikið
af ungu áhugasömu fólki hefði
tekið þátt í undirbúningsvinnu
fyrir kosningamar. Á Seyðis-
firði skipa konur níu sæti á lista
sjálfstæðismanna ásamt níu
körlum; eini listinn á landinu
þar sem jafnræði" er á með
kynjunum. Þar, sem annars
staðar, er mikill baráttuhugur
í sjálfstæðismönnum.
Konur sem karlar í Vest-
mannaeyjum em kappsfull f
baráttunni og margir leggja
hönd á plóginn fyrir kosningar.
Helga Jónsdóttir húsmóðir
skipar §órða sæti á lista sjálf-
staéðismanna í Vestmannaeyj-
um. Helga tók þátt í prófkjöri
og hafiiaði í flórða sætinu, en
hún hafði ekki haft afskipti af
stjómmálum áður en hún gaf
kost á sér í prófkjörið.
Nýlega kom saman stór hóp-
ur sjálfstæðiskvenna sem eiga
sæti á framboðslistum flokks-
ins víðs vegar um land og var
mikill baráttuhugur í frambjóð-
endum.
Það er greinilegt að sjálf-
stæðiskonur um land allt em
fullar bjartsýni á velgengni í
kosningunum á laugardag.
Hinn flölbreytti hópur fram-
bjóðenda hefur sett ýmis bar-
áttumál á oddinn, þau em
mismunandi eftir byggðarlög-
um og þörfum, en víst er að
krafturinn er mikill.
Landssamband sjálfstæðis-
kvenna sendir öllu sjálfstæðis-
fólki baráttukveðjur og óskir
um góðan kosningasigur í
sveitarstjómarkosningunum á
laugardag.
„Self oss býr yfir
mikluni möguleikum“
— segir Bryndís Brynjólfsdóttir annar
maður á lista sjálfstæðismanna
Ingveldur Hjartar-
dóttír í framboði til
sýslunefndar á Pat-
reksfirði.
Helga Jónsdóttir skip-
ar fjórða sæti á lista
sjálfstæðismanna í
Vestmannaeyjum.
Hún er í fyrsta skipti
i framboði.
Kvenframbjóðendur á listum Sjálfstæðisflokksins um land allt eru 217 talsins. Sfðastliðum laugardag
hittust nokkrir kvenframbjóðendur og var þessi mynd tekin við það tækifæri.
„IJMFRAM allt ber að hafa
það í huga, að við erum öll
manneskjur og að hið mann-
lega fái að ráða ferðinni. Við
sem skipum lista Sjálfstæðis-
flokksins höfum að sjálf-
sögðu lagt fram stefnumál
okkar,“ segir Bryndís Brynj-
ólfsdóttir, sem skipar annað
sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins á Selfossi.
„Á stefnuskrá okkar setjum
við meðal annars, að gera Sel-
foss að miðstöð skólamála,
byggðar verði íbúðir fyrir aldr-
aða og þjónustumiðstöð, komið
verði upp skólaathvarfí og
skóladagheimili, svo eitthvað sé
nefnt".
Brymdís er fædd og uppalin
í Tryggvaskála á Selfossi. Hún
er nú í fyrsta skipti á framboðs-
lista fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
en í prófkjöri hafnaði hún í
því sæti sem hún nú skipar.
Bryndís Brynjólfsdóttir er
kaupmaður og hefur mikinn
áhuga á atvinnumálum staðar-
Landssamband sjálfstæöiskvenna
ins svo og ferðamálum og
menningarmálum.
„Það dylst engum að Selfoss
býr yfir miklum möguleikum.
Héðan er stutt til aðalmarkaðs-
svæðis landsins og hér í ná-
grenninu er aðal landbúnaðar-
hérað landsins. Það eru mögu-
leikar á að gera Selfoss að
miðstöð verslunar og viðskipta,
mennta og skólamála og heil-
brigðisþjónustu á Suðurlandi,"
sagði hún.
Sjálfstæðismenn fengu fjóra
bæjarfulltrúa kjöma við kosn-
ingamar 1982 og hafa á yfir-
standandi kjörtímabili verið í
meirihlutastarfi með framsókn-
armönnum. Bryndís sagði að
kraftmikið starf væri að baki
fyrir þessar kosningar og mikill
hugur í sjálfstæðismönnum á
laugardag.