Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 32

Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986 Mitterrand gæti efnt til kosninga snemma París. AP. FRANCOIS Mitterrand, Frakk- landsforseti, segir í viðtali, sem birtist í Herald Tribune í gær, að svo gæti farið að hann boðaði til þingkosninga fyrr en ætlað væri. Hann gaf hins vegar ekki til kynna hvenær þær yrðu, ef svo færi að hann flýtti þeim. Mitterrand segist hafa völd til að rjúfa þing og boða til þing- eða forsetakosninga. Hann kveðst geta boðað til kosninga á morgun ef honum sýndist svo en hins vegar væri hann ekki haldinn kosninga- áráttu og því væri ekki að vænta kosninga alveg í bráð. í þingkosningum í marz sl. tapaði flokkur Mitterrands, Sósíalista- flokkurinn, meirihluta sínum til hægri manna. í viðtalinu segist Mitterrand verða að taka tillit til hins nýja meirihluta, en það kæmi þó ekki í veg fyrir að hann léti afstöðu sína í innan- og utanríkis- málum í ljós. Þyngsti fíkniefnadómur í Svíþjóð: Dæmdirtil 12 ára refsingar Stokkhólmi. Frá Erik Linden, fréttaritara Morgunbladsins. ÞYNGSTI dómur sem nokkur sinni hefur verið kveðinn upp í fíkniefna- máli í Svíþjóð, var kveðinn upp f Stokkhólmi í gær. Þrir menn voru dæmir til þyngstu refsingar, til 12 ára fangelsis, hver um sig fyrir smygl á einu tonni af marijuana. Fíkniefhin voru flutt inn frá Thailandi í sérsmíðuðum skápum. í hveijum þeirra höfðu verið falin 70 kíló af marijuana, en mennimir áttu fyrirtæki sem verslaði með húsgögn. Að undanfömu hefur kastast í kekki með Mitterrand og Jacques Chirac forsætisráðherra í ýmsum málum. Þannig hefur t.d. ágrein- ingur þeirra um sölu ríkisfyrirtækja og hvort Frakkar ættu að taka þátt í geimvamaráætlun Bandaríkja- manna komið upp á yfirborðið. í viðtalinu segir Mitterrand að Bandaríkjamönnum hafi sézt yfír þá staðreynd að Frakkland væri sjálfstætt ríki þegar þeir gagnrýndu þá ákvörðun frönsku stjómarinnar að heimila ekki yfírflug herflugvél- anna, sem tóku þátt í loftárásunum á Líbýu 15. apríl sl. „Við emm dyggir og tryggir stuðningsmenn Atlantshafsbandalagsins," sagði forsetinn og bætti við að Frakkiand væri Miðjarðarhafsríki, sem hefði ýmissa hagsmuna að gæta í araba- ríkjum, hagsmuna, sem fæm ekki endilega saman við hagsmuni Bandaríkjanna. AP/Símamynd „ Við erum ekki hryðjuverkamenn “ „Við erum ekki hryðjuverkamenn," sagði Iíafez Assad, forseti Sýrlands, við lok opinberrar heimsóknar sinnar til Grikklands í gær, þar sem hann átti viðræður við Andreas Papandreou, forsætisráðherra landsins. Þá fordæmdi Assad árásir skæruliða Palestinuaraba á flugvellina í Róm og Vínarborg 27. desember síðastliðinn og sagði þar um að ræða hryðjuverk. Tilgangur heimsóknar Assads tíl Grikklands er talinn vera sá, að leita eftir stuðningi þar í landi gegn ásökunum um að Sýrlendingar standi að baki hryðjuverkum. Papandreou hefur harðlega gagnrýnt fyrirætlanir vestrænna ríkja um að einangra ríki, sem verða ber að þvi að styðja hryðjuverk. Myndin sýnir Papandreou til hægri kveðja Assad. GENGI GJALDMIÐLA Lundúnum. AP. BANDARÍSKI dalurinn féll gegn öllum helstu gjaldmiðl- um heims í gær á gjaldeyris- mörkuðum, nema kanadíska dalnum. Breska pundið kost- að 1,5010 dali, en kostaði á þriðjudaginn 1,4965 dali. Gengi annarra gjaldmiðla gagnvart dal var sem hér segir, gengið frá því á þriðjudag innan sviga. Dalurinn kostaði 2,2735 vestur-þýsk mörk, (2,2860), 1,8795 svissneska franka, (1,8905), 7,2325 franska franka, (7,2865), 2,5575 hol- lensk gyllini, (2,5735), 1.557,50 ítalskar lírur, (1.566,50), 1,37945 kanadíska dali, (1,3717) og 168,90 japönskyen, (169,68). Bandarískir þingmenn heimta bann við innflutningi á laxi: „Krefjumst aldrei veiðistöðvunar — leitum heldur á aðra markaði“ — segir Odd Steinbo, forstjóri Sölumiðstöðvar laxeldis 1 Noregi „ÉG GET ekki þakkað Norðmönnum nægilega stuðninginn, sem þeir veittu okkur við að útvega eskimóum í Alaska kvalveiðikvóta,*1 skrif- aði bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ted Steven í bréfi til norska sendiherrans i Washington 5. ágúst á siðasta ári. Það var eftir fund Alþjóða hvalveiðiráðsins. Steven leggur nú tii við bandaríska viðskiptaráðuneytið, ásamt fimm öðrum þingmönnum frá Alaska, Oregon og Washington, að innflutningur á norskum eldislaxi verði bannaður vegna hvalveiða Norðmanna. Odd Steinbe, forstjóri Söiumiðstöðv- ar laxeldis í Noregi, sagði í samtali við Morgunblaðið: „Við munum aldr- ei kreQast þess að hvalveiðamar verði stöðvaðar. Við leitum frekar á aðra markaði." Orðalagið í bréfunum til norska sendiherrans annars vegar og við- skiptaráðuneytisins hins vegar er ólíkt. í þakkarbréfinu talar Steven um „hvalveiðar". í bréfí þingmann- anna er talað um „hvaladráp". Blaðafulltrúi Teds Steven segir að orðið hvaladráp komi aðeins fyrir í sameiginlegum kafla þingmannanna í tillögunni um innflutningsbannið. Þar séu aftur á móti beinar tiivitnan- ir í Steven og þar sé ætfð talað um hvalveiðar. En hvemig skyldi standa á því að þingmaðurinn þakkar í fyrra það sem hann leggst nú gegn? Blaðafulltrúinn: „Steven öldunga- deildarþingmaður gerir greinarmun á veiðum Norðmanna og eskimóa í Alaska. Eskimóamir þurfa að veiða Kanada: Spánskir togarar tekn- ir fyrir landhelgisbrot eftir eltingarleik yfir hálft Atlantshafið St. John 8. Nyiundnalandi. KANADÍSK varðskip drógu tvo spænska togara til hafnar í borg- inni St. John’s á Nýfundnalandi aðfaranótt miðvikudags. Lögreglan tók á móti skipstjórum togaranna á hafnarbakkanum og leiddi þá í fangelsi. Skipstjórarnir eru sakaðir um ólöglegar veiðar. Kanadísku varðbátamir eltu spænsku togarana í þrjá daga vítt og breitt um Atlantsála. Togaram- ir vom komnir langleiðina til Azor- eyja þegar þeir loks námu staðar og kanadískir embættismenn, sem vom um borð í varðbátunum, fóm um borð í þá. Skipstjóramir verða kærðir fyrir að veiða í leyfísleysi í kanadiskri lögsögu og hindra embættismenn í starfí. Þeir eiga yfír höfði sér allt að 150 þúsund dollara (um sex milljónir ísl. kr.) sekt hver. Togaramir sigldu aftur inn í kanadíska lögsögu á mánudag. Spænskir Qölmiðlar höfðu greint frá því að þar myndi floti annarra spænskra fískiskipa bíða í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að togaramir tveir yrðu dregnir til kanadískrar hafnar. En til þess kom ekki. Embættismenn sjávarútvegs- ráðuneytisins hafa lýst yfír því að kanadíska stjómin ætli nú að þyngja refsingu við ólöglegum veiðum og efla varðskipaflotann. Meðal annars verða byssur settar á þilför eftirlitsbáta. Skipstjórar spánsku togaranna bíða eftir að koma fyrir dómara i St. John’s á Nýfundnalandi. hval sér til lífsviðurværis og afkomu þeirra hefði verið stefnt í hættu hefðu þeim verið meinaðar veiðam- ar. Aftur á móti eru veiðar Norð- manna í ágóðaskyni." Norsk dagblöð vitna ekki til þess- arar röksemdar þingmannsins. A forsíðu Bergens Tidende stóð í fyrir- sögn „Kúvending um hval" og á innsíðu „Þakkar fyrir hjálpina með laxastríði". Norðmenn seldu á síðasta ári eldislax fyrir 400 milljónir norskra króna til Bandaríkjanna. í Noregi hefur tillaga öldungadeildarþing- mannanna verið sett í samband við laxeldi í ýmsum fylkjum Bandaríkj- anna og því haldið fram að tillagan varði fremur viðskiptahagsmuni en hvalveiðar. „Við erum ekki hvalveiðimenn og erum því ekki í aðstöðu til að skipta okkur af hvalveiðum," segir Steinbe, forstjóri Sölumiðstöðvar laxeldis í Noregi. „Ef stjómvöld vilja að veið- unum verði haldið áfram þá er það þeirra mál. Ennfremun Hafi ein- hveijir hópar mótmæli gegn hval- veiðum í frammi og reyna t.d. að fá Bandaríkjamenn til að hætta að kaupa af okkur eldislax með lögleg- um aðferðum þá getum við ekkert að gert utan að læra af reynslunni." — Steinbe, ert þú ekki hræddur um að ykkur veitist erfítt að selja eldislax til Bandaríkjanna á þessu ári? „Við gerum ráð fyrir að 20 til 25 prósent af útflutningi okkar á eldis- laxi fari til Bandaríkjanna. Á síðasta ári fluttum við 28 prósent til Banda- ríkjanna, en líkast til minnkar salan í ár vegna þeirrar umfjöllunar sem málið hefur fengið í Bandaríkjunum. Ef við missum markaðinn í Bandaríkjunum er aðeins eitt að gera: leita annað. Útflutningur til eins lands á aldrei að vera svo mikill að allt hrynji við markaðs- brest. Það er ágætt að 20 til 25 prósent af útflutningi okkar á eldis- laxi fari til Bandaríkjanna er ágætur hlutur. Og hann mætti eiginlega ekki vera stærri. Við megum ekki vera um of háðir einhveijum einum viðskiptavini," sagði Steinbe.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.