Morgunblaðið - 29.05.1986, Side 33
OP
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
33
„Framkvæmdanefnd
krafna Karpovs“
segir Garri Kasparov heimsmeistari í
skák að framkvæmdanefnd FIDE eigi að heita
Lundúnum. AP.
GARRI Kasparov, heimsmeistari i skák, ásakaði í gær fulltrúa FIDE,
alþjóðaskáksambandsins, fyrir að draga taum áskorandans og fyrrum
heimsmeistara, Anatolys Karpov, í heimsmeistaraeinvígi þeirra, sem
hefjast í Lundúnum 28. júlí næstkomandi. Þar verður fyrri hluti
heimsmeistaraeinvigisins haldinn, en síðan verður einvígið flutt tíl
Leningrad i Sovétríkjunum, þar sem síðari 12 skákirnar í einviginu
verða tefldar.
ara skákmanna
um titilinn. Fyrsta |H “9 #j^|f
Campomanesar, Bk
forseta FIDE, sem ; ' ------—
stöðvaði það áður Kasparov
en því var lokið. Annað einvígið
vann Kasparov, en þá hafði það
verið sett inn í reglur FIDE að
fyrrum heimsmeistari ætti kost á
öðru einvígi án þess að tefla um
áskorunarréttinn.
Kasparov, sem er yngsti heims-
meistari skáksögunnar, aðeins 23
ára gamall, sagðist óttast, að FIDE
myndi gera of langt hlé á milli fyrri
og síðari hluta einvigisins. „Tveir
til þrír dagar eiga að nægja full-
komlega. Þegar á allt er litið verður
skákmaður að vera í mjög góðu
formi," sagði hann. Talið er að með
þessum orðum hafi hann verið að
vísa til þess þegar fyrsta einvíginu
var frestað, en þá var Karpov
almennt talinn að niðurlotum kom-
inn og þess vegna hafi Campoma-
nes gripið í taumana. Karpov tókst
að vinna fimm skákir í einvíginu
og skorti aðeins eina til þess að
sigra áður en Kasparov tókst að
svara fyrir sig með þremur vinn-
ingsskákum.
Kasparov skýrði frá því í samtali
við AP-fréttastofuna að fram-
kvæmdanefnd FIDE hefði hist í
Venezuela nýlega og rætt um dag-
skrá einvígisins, en hefði ekki haft
neitt samráð við sig hvað hana
snerti. Sagði hann að réttast væri
að endurskíra nefndina og kalla
hana „Framkvæmdanefnd krafna
Karpovs". „Þeir fallast á allar kröf-
ur Karpovs, en engar af mínum
kröfum. Eini vegur minn til þess
að fá frá þeim svar, er að notast
við fjölmiðlana," sagði hann. Sagði
hann að Campomanes, forseti
FIDE, væri forsprakki „alþjóðlegrar
skák mafiu“, sem ynni gegn hags-
munum skákmanna. „Eg skil þær
hvatir, sem þarna liggja að baki.
Með Karpov sem heimsmeistara
halda þeir völdum og völd jafngilda
peningum. Peningar jafngilda
áhrifum og þannig er hægt að halda
áfram. Hjá öllum helstu skákþjóð-
um heims má finna félaga í þessari
mafíu. England er eina landið, þar
sem enga slíka er að finna, hvorki
á meðal stórmeistaranna né fulltrúa
skáksambandsins," sagði Kasparov.
Kasparov sagðist ganga sigur-
viss til einvígisins. „En þetta mun
verða hörð barátta og ef til vill
þarf að tefla allar skákimar 24 til
þess að sigur náist. Ef annar hvor
fær mikið forskot í fyrri hluta ein-
vígisins, verður mjög erfitt að vinna
það upp.“ Kasparov hefur verið í
Bretlandi að kynna sér aðstæður á
Park Lane-hótelinu í London, þar
sem fyrri hluti einvígisins fer fram.
Hann heldur til Moskvu innan
skamms.
Kasparov notaði tækifærið og
tefldi íjöltefli við 20 efnilegustu
skákmenn Englands af yngri kyn-
slóðinni. Hann vann 11 skákir, gerði
sex jafntefli og tapaði þremur skák-
um.
Fáni Evrópuráðsins verð-
ur fáni Evrópubandalagsins
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins, hefur ákveðið að fáni
Evrópuráðsins, skuli einnig verða fáni samtakanna. Þá hefur einnig
verið ákveðið að lag Beethovens við ljóð Schillers Óðurinn tilgleðinn-
ar( An die Freude), verði opinber söngur Evrópubandalagsins.
Fáni Evrópuráðsins sýnir 12 gular
stjömur, se'm mynda reglulegan
hring á bláum grunni. Verður hann
tekinn opinberlega í notkun í dag,
29. maf, þegar hann verður dreginn
að húni fyrir framan Berlaymont
bygginguna í Briissel. Við það tæki-
færi verður Óðurinn til gleðinnar
einnig leikinn.
Stjömumar 12 f fánanum eiga
ekki að tákna núverandi fjölda aðild-
arríkja Evrópubandalagsins. Hinar
12 stjömur em gamalt grískt tákn
fyrir fullkomleika. Það að fáninn er
gerður að opinbem tákni Evrópu-
bandalagsins, merkir að honum
verður flaggað við opinber tækifæri.
Einnig er einstaklingum nú leyfilegt
að draga Evrópufánann að hún.
Hörkugóður bíll með mikið notagildi
í Isuzu Space Cab fara saman rúmgóð skúffa
03 rúmgott hús og það skapar honum sérstöðu
meðal vinnuþjarka - fágætur eiginleiki sem
kemur í ótrúlega góðar þarfir.
Isuzu pickup
- traustur, þægilegur, fallegur- og spennandi.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
4X4
5 gira
aflstýri
bensín/diesel
Sir Richard Attenborough
hefur töku nýrrar myndar;
Dauði Steve Biko
á hvíta tjaldið
Haarare, Zimbabwe. AP.
LEDKSTJÓRINN og leikarinn
Sir Richard Attenborough til-
kynnti í gær á fundi með frétta-
mönnum að hann muni hefja
töku myndar f Zimbabwe eftir
sex vikur, sem muni fjalla um
lát suður-afríska baráttu-
mannsins Steve Biko.
Biko lést er hann var í vörslu
lögreglunnar í Suður-Afríku. Att-
enborough hlaut Óskarsverðlaun
Veður
víða um heim
Lægst Hast
Akureyri 6 skýjað
Amsterdam 11 18 heiðskfrt
Aþena 19 30 heiðskfrt
Barcelona vantar
Berlín 14 20 skýjað
Brussel 10 23 heiðskfrt
Chicago 12 17 skýjað
Dublln 8 13 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 10 26 skýjað
Genf 18 26 skýjað
Helainkl 12 16 skýjað
Hong Kong 28 30 helðskfrt
Jerúsalem 14 24 skýjað
Kaupmannah. 1 17 helðskfrt
Las Palmas vantar
Ussabon 14 28 helðskfrt
London 8 18 skýjað
LosAngeles 17 27 heiðakfrt
Lúxemborg 10 skúrir
Malaga 23 mistur
Mallorca 28 léttskýjað
Mlamf 26 28 skýjað
Montreal 17 29 skýjað
Moskva 11 22 heiðskfrt
NewYork 14 27 heiðskfrt
Osló 8 10 heiðskfrt
Parfs 9 23 skýjað
Peking vantar
Reykjavfk 7 alskýjað
RíódeJaneiro 19 30 heiðskfrt
Rómaborg 18 31 helðskfrt
Stokkhólmur 9 18 rignlng
Sydney 11 21 heiðsklrt
Tókýó 18 23 helðskfrt
Vínarborg 13 26 heiðskfrt
Pórshöfn vnntar
fyrir mynd sína um ævi og starf
mannvinarsins Mathama Gandhi.
Það setti sinn svip á fréttamanna-
fundinn að menn voru ekki á eitt
sáttir hvort sýna bæri myndina í
Suður-Afríku eða ekki þar sem það
myndi þýða samskipti við rílris-
stjómina í Suður-Afríku.
Myndin hefur hlotið nafnið „Að
leita eftir vandræðum" eða „Ask-
ing for Trouble" á frummálinu og
gert er ráð fyrir að taka hennar
kosti 22 milljónir Bandaríkjadala.
Grikkland:
Theodorakis
segir af sér
þingmennsku
Aþenu. AP.
GRISKA tónskáldið Mikis The-
odorakis hefur sagt af sér þing-
mennsku. í bréfi til Kommún-
istaflokksins, KKE, segir hann
nærveru sína í þinginu hafa
verið „óskynsamlega, árang-
urslausa og aðeins til skrauts".
Afsögn Theodorakis gekk í gildi
sl. þriðjudagskvöld, þegar sagt var
opinberlega frá bréfí hans á sam-
eiginlegum fundi beggja þingdeild-
anna.
Theodorakis var einn tólf þing-
manna KKE, sem þekktur er fyrir
fylgispekt við Moskvuvaldið. Hann
hyggur á heimsreisu á þessu ári
og hefur ekki á pijónunum áform
um að setjast að í Grikklandi til
frambúðar, að því er heimildar-
menn innan flokksins töldu.
Þeir sögðu flokkinn hafa sam-
þykkt afsögnina án þess að æmta
„vegna mikilvægs lífsstarfs Mik-