Morgunblaðið - 29.05.1986, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
Þessi mynd er tekin við Södersjúkrahúsið í Stokkhólmi, þar sem
hætt hefur verið móttöku sjúklinga vegna verkfallsaðgerða lækna
og hjúkrunarfólks. Sömu sögu er að segja frá öðrum helstu sjúkra-
húsum borgarinnar.
Vinnudeilurnar í Svíþjóð:
Verkbann boðað
á 180.000járn-
iðnaðarmenn
Stokkhólmi. Frá Erik Liden og Pétri Péturssyni, fréttaritumm Morgunblaðsina.
SAMBAND sænskra járnsmiðja boðaði á þriðjudag verkbann á
samtals um 180.000 járniðnaðarmenn. Verði af verkbanni þessu,
lamast mestöll iðnframleiðsla í Sviþjóð.
Verkbannið er svar atvinnurek-
enda við verkfallsboðun jámiðnað-
armanna frá því á mánudag. Verk-
fallið kemur til framkvæmda nk.
þriðjudag, 3. júní, og mun taka til
17.000 jámiðnaðarmanna hjá 19
útflutningsfyrirtækjum. Verkbann-
ið tekur gildi daginn eftir.
„Nauðsynlegt var að grípa til
Skákmótið í Bugojno:
Miles með
forustu
Bugojno, Júgóslavfu. AP.
BRESKI stórmeistarinn, Anth-
ony Miles, hefur forustu eftir
tvær umferðir á alþjóðlega skák-
mótinu í Bugojno. Hann hefur
hlotið 1 'h vinning, en hann gerði
jafntefli við Lajos Portish frá
Ungveijalandi í gær. Þátttakend-
ur f mótinu eru átta sterkustu
skákmeistarar heims, að undan-
skildum heimsmeistaranum
Kasparo v og er meðal ELO stiga-
tala keppenda 2.631 stig.
Anatoly Karpov, fyrrum heims-
meistari, sem gerði jafntefli í fyrstu
umferð við Boris Spassky, á vinn-
ingslega biðskák við landa sinn
Artur Yusupov og er því líklegt að
hann muni deila fyrsta sætinu með
Miles, þegar biðskákir hafa verið
tefjdar.
Önnur úrslit urðu þau að Ljubom-
ir Ljubojevic frá Júgóslavíu gerði
jafntefli við Spassky og skák þeirra
Jan Timman frá Hollandi og Andrei
Sokolov frá Sovétríkjunum fór í bið
og er talin jafnteflisleg.
þessarar ráðstöfunar, þar sem
mikill hluti iðnrekstrarins hlýtur að
stöðvast af völdum verkfallsins,"
sagði í tilkynningu, sem samband
jámsmiðjanna lét frá sér fara,
þegar þessi óvænta ákvörðun var
kynnt síðla á þriðjudag.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra sagði sama dag, að ríkis-
stjómin hefði ekki uppi áform um
að blanda sér í deiluna. Hann lagði
áhersiu á mikilvægi þeirrar megin-
reglu, að aðilar vinnumarkaðarins
kæmu sér sjálfír saman um lausn
á deilumálum sínum, en bætti við,
að þeir yrðu jafnframt að bera
ábyrgðina, sem því fylgdi.
Skæruverkföllum vegna verk-
bannsboðunar á háskólamenntaða
ríkisstarfsmenn var haldið áfram á
þriðjudag. Þar standa kennarar -
og þó umfram allt nemendur þeirra
- fremstir í flokki. Einkum eru
burtfararprófsnemar áhyggjufullir
út af ástandinu. Ef verkbannið
kemur til framkvæmda að því er
kennarana varðar, eiga nemendum-
ir á hættu, að einkunnagjöf falli
niður og þeir geti ekki sótt um
skólavist til framhaldsnáms.
Verkföll lækna og hjúkrunarfólks
halda áfram og ná til fleiri sjúkra-
húsa en áður. Ekki er nú unnt að
taka á móti fleiri sjúklingum á þeim
sjúkrahúsum, sem enn em opin.
ERLENT
Frakkland:
„Viss um að forsetinn
verður áfram ódeigur
stuðningsmaður Andreis“
sagði Yelena Bonner eftir fundinn með Mitterrand
París. AP.
YELENA Bonner hitti Francois Mitterrand, forseta Frakklands,
að máli á þriðjudag og sagðist vona, að eiginmaður hennar ætti
eftir að öðlast frelsi með stuðningi hans og frönsku þjóðarinnar.
Frú Bonner tjáði Mitterrand
þakklæti sitt fyrir áheymina og
sagðist vera „viss um að forsetinn
verður áfram ódeigur stuðnings-
maður Andreis".
„Hlýlegar móttökur Mitterrands
bera vitni um þá umhyggju og
athygli, sem hann sýnir örlögum
eiginmanns míns, og eru auk þess
skýr vottur um afstöðu frönsku
þjóðarinnar," sagði Bonner.
Fyrr um daginn átti hún viðræð-
ur við Jacques Chaban-Delmas,
forseta franska þjóðþingsins, Jac-
ques Chirac forsætisráðherra og
þijá aðra ráðherra í frönsku ríkis-
stjóminni.
Aðstoðarmenn frú Bonner til-
kynntu á þriðjudag, að vegna
þreytu mundi hún sleppa fyrir-
huguðum fundi sínum með Gro
Harlem Bmndtland, forsætisráð-
herra Noregs, og halda beint til
London á miðvikudag til viðræðna
við Margaret Thatcher forsætisráð-
herra.
Yelena Bonner heldur til Rómar
á föstudag og ræðir þar við Fran-
cesco Cosiga forseta, en á mánudag
fer hún til Moskvu.
Hún var spurð, hvemig henni
væri innanbijósts, þegar komið
væri að því, að hún héldi heim:
„Því er langtífrá auðsvarað," sagði
hún. „Mér þykir erfitt að skiljast
við bömin mín, bamaböm og móð-
ur, sem búa öll á Vesturlöndum,
en á hinn bóginn hlakka ég til
samfundanna við eiginmann minn.
Ef hann væri ekki í Sovétríkjunum,
færi ég þangað aldrei aftur.“
Þegar hún var spurð um heilsu
Sakharovs, kvaðst hún hafa talað
við hann í síma 15. maí og þá hefði
hann verið við góða heilsu. „Hann
sagðist vera að skúra gólfin og búa
íbúðina undir komu rnína."
Franskur blaðamaður hafði eftir
henni ummæli, sem hún lét falla
um heimferð sína í vinahópi á
þriðjudag: „Þegar ég stíg út úr
lestinni í Gorki og kyssi Andrei, þá
verða KGB-mennimir þar með kvik-
myndatökuvélar sínar. Og þegar við
komum heim til okkar, verða þeir
einnig allt um kring. Þetta er óbæri-
legtilfínning."
Mynd þessi var tekin, er Yelena Bonner, eiginkona sovéska andófs-
mannsins Andrei Sakharov, gekk á fund Francois Mitterrand Frakk-
landsforseta i gær.
Bandaríkin:
Ný kókaínblanda breið-
ist út eins o g faraldur
New York. AP.
ÞAÐ ER kallað „crack“ á austurströnd Bandarikjanna og „rock“ á
vesturströndinni. Nafngift þessi á við um reykjarhæfa kókaínblöndu
og er talið að aldrei hafi svo vanabindandi eiturlyf verið selt á götum
Bandarikjanna.
Fyrir hina ríku er efnið nógu
sterkt og hinir efnaminni hafa efni
á að kaupa það. Þessi kókaín-
blanda er að verða vinsælasta
nautnalyfið í vesturheimi og er
notað bæði í menntaskólum og
fátækrahverfum.
„Þrettán ár hef ég starfað á
þessu sviði og ég hef aldrei séð
neitt þessu líkt,“ segir Mark Ben-
civengo, fíkniefnasérfræðingur við
heilbrigðisstofnun í FTladelfíu:
„Þetta er eins og faraldur."
í Bandaríkjunum er starfandi
sérstök símaþjónusta sem tekur á
móti rúmlega 700 upphringingum
aðframkominna fíkniefnaneytenda
á degi hveijum. Fyrir ári hafði
aldrei verið hringt í stofnunina
vegna kókaínblöndunnar. Nú er
um þriðjungur upphringinga vegna
lyfsins.
Lögreglan segir að kókaínsala
hafi aukist vegna þessarar blöndu.
í New York hefur kókaín yfirtekið
helming af eiturlyfjamarkaðinum,
í Dallas tvo þriðju og þijá fjórðu
í Detroit.
Efnið er sogað niður í lungu og
eitrið fer með súrefninu í blóðið.
Kókafnið nær til heilans á nokkrum
sekúndum og áhrifunum lýsir einn
notandi sem „rafmagnsstuði" sýnu
kröftugra vímunni af kókaíni í nös.
En ódáinslostinn hverfur eftir
nokkrar mínútur og þá taka margir
neytendur upp á því að fá sér
annan skammt. Að lokum verður
líkaminn ónæmur fyrir áhrifum
kókaínblöndunnar og eftir situr
fíknin.
Bæði lögregla og efnafræðingar
tala um sigur ólöglegra fíkniefna-
framleiðenda: fyrir tíu til tuttugu
dollara (ijögur til átta hundruð
krónur) komast þeir í helgreipar
fíkniefnisins, sem aldrei hefðu eftii
á kókaíni í duftformi.
Og það er bamaleikur að útbúa
kókafn til reykjar. Fyrir utan
kókafnið, sem venjulega er tekið í
nefið, eru áhöld og efni til í hveiju
eldhúsi. „Gijótið" er lagað með
því að setja kókaínduft í hitaða
blöndu. Þegar efnið harðnar er það
brotið f örlitlar flfsar og selt.
Talið er að „gijótið“ hafí fyrst
komið fram á sjónarsviðið á vestur-
strönd Bandaríkjanna í upphafí
þessa áratugar. Seint 1983 varð
vart við efnið í Bronx hverfínu í
New York. Síðan þá hefur efnið
breiðst út eins og sinueldur. Á
götuhomum í New York, þar sem
ungir menn í eina tíð seldu marijú-
ana, standa nú táningar og bjóða
„gijót“.
Um tvö hundruð þúsund New
York-búar og tugmilljónir manna
um öll Bandaríkin hafa prófað
lyfið. Á heilsugæslustöðvar koma
nú flestir eiturlyfjasjúklingar eftir
ofneyslu þessarar kókaínblöndu.
Greinilegasta merkið um aukna
neyslu „gijóts" eru sölustaðimir,
sem sprottið hafa upp eins og
gorkúlur. „í sumum hverfum eru
fleiri söluhús en kirkjur og vín-
búðir,“ segir Sterling Johnson,
saksóknari New York í fíkniefna-
málum.
í þessum söluhúsum kaupa
menn kókaínblönduna, leigja pípu
og reykja efnið á staðnum. Þessi
hús hafa verið borin saman við
ópíumdyngjur bannáranna. Og
þangað sækja þeir, sem engan
samastað hafa til að reykja lyfið.
Þar á meðal em táningar, sem enn
búa í foreldrahúsum.
Söluhúsin eru einnig algeng í
Miami á Floridaskaganum. Ungt
fólk fær nokkur hundruð dollara
borgaða á dag fyrir að gæta hús-
anna og ganga þar um beina.
Ýmsar öryggisráðstafanir eru
gerðar í þessum húsum dauðans.
Þar eru brynvarðar útidyr, verðir
bera sjálfvirk skotvopn og baðmull-
arhnoðra vætta í sýru til að eyði-
leggja sönnunargögn.
Lögreglan í Los Angeles hefur
komið sér upp sérstökum búnaði
til að bijótast inn í stöðvar fíkni-
efnasalanna. Stálplötur eru settar
framan á tijádrumb og drumbinum
komið fyrir á stórri lögreglubifreið.
Þannig útbúnum er bifreiðunum
ekið á fullri ferð á veggi söluhús-
anna og drumbamir notaðir til að
stanga göt á virki eiturlyfla-
prangaranna.