Morgunblaðið - 29.05.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
37
Sigurjón Pétursson Össur Skarphéðinsson
Alþýðubandalagsmenn gera kröfu til
forystu fyrir vinstrisinnum í
borgarstjóm Reykja víkur. Fyrsta
verk Þjóðviljaliðsins yrði að gera
Sigurjón Pétursson áhrifalausan.
Alfreð Þorsteinsson, gamalreyndur
framsóknarmaður úr Reykjavík.
Þótti það til marks um erfíðleika
framsóknar við að berja saman list-
ann, að kallað var á Alfreð. Ekki
einvörðungu skortur á mönnum
heldur einnig máléfnum hefur ein-
kennt kosningabaráttu Framsókn-
arflokksins, sem sýnir, að frambjóð-
endur voru lítt undir það búnir að
hefja kosningaslag, þegar kallið
kom. Flokksforystan leitaði til Al-
freðs um leið og hún bað Kristin
Finnbogason að taka við þrotabúi
NT og verða aftur framkvæmda-
stjóri Tímans. Er rétt að minnast
þess, að það voru einkum aðstand-
endur NT í Framsóknarflokknum,
sem beittu sér fyrir talinu um fé-
lagshyggju fyrir ári. Nú eru þeir
úti í kuldanum innan flokksins, sem
situr eftir í skuldasúpu vegna
NT-ævintýrisins. Kosningabaráttan
hefur frestað því uppgjöri, sem hlýt-
ur að vera óhjákvæmilegt meðal
framsóknarmanna vegna þess máls.
I „f ramsóknarvalsi“
Kvennalistinn er afsprengi upp-
gjörs meðal þeirra, sem stóðu að
Þegar frambjóðendur fíokksins eru
spurðir, hvar þeir fái fjármagnið
vísa þeir á Ámunda nokkum
Ámundason, sem virðist svipaður
„kraftaverkamaður" krata og
Kristinn Finnbogason hjá Fram-
sóknarflokknum á sínum tíma.
hafa í borgarstjóm fyrir Fram-
sóknarflokkinn, gáfu kost á sér
aftur. Fyrir valinu í fyrsta sæti
varð Sigrún Magnúsdóttir, kaup-
kona, sem lítið hefur farið fyrir í
stjómmálum eða borgarmálum og
Þrátt fyrir reynsluleysið, eða
kannski vegna þess, hefur Bjami
P. Magnússon gefið kost á sér sem
borgarstjóraefni vinstrisinna. Eng-
inn sýnist þó styðja það framboð
nema hann sjálfur. Samkvæmt
könnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla íslands fyrir Morgunblaðið
segist meirihluti alþýðuflokks-
manna vilja, að Davíð Oddsson verði
áfram borgarstjóri. Virðist það fólk
ekki taka mikið mark á tali Bryndís-
ar Schram, sem er einna hatrömm-
ust allra vinstrisinna í persónulegri
gagnrýni á Davíð, og er þá mikið
sagt. En vinstrisinnum þykir nú fín-
ast, að líkja Davíð við skurðgoð
marxista víða um lönd; hærra er
ekki unnt að komast í metorðastig-
anum hjá þeim eins og kunnugt er.
Víst er, að alþýðuflokksmönnum
verður ekki að þeirri ósk sinni, að
Davíð verði áfram borgarstjóri með
því að kjósa A-listann; þeir verða
að setja x við D til að ná þvi mark-
miði.
Hvorki Kristján Benediktsson né
Gerður Steinþórsdóttir, sem setið
Kristján Benediktsson
Alfreð Þorsteinsson
Þegar Kristján hætti í borgarstjóm
var kallað á Alfreð tilaðfylla sæti
á listanum, svo að bjóða mætti fram
—það gleymdist hins vegar að finna
málefnin.
Sigurður E. Guðmundsson
Bjarni P. Magnússon
Sigurður hefur sakað Bjarna um að
brjóta leikreglurá vettvangi
Alþýðuflokksins.
Kvennaframboðinu í síðustu borg-
arstjómarkosningum og Kvenna-
listanum í þingkosningum. Kvenna-
framboðið átti að vera óformleg
hreyfíng kvenna, þar sem enginn
kæmist til varanlegra metorða.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem
sat í borgarstjóm fyrir Kvenna-
framboðið, hefur haft þær leikregl-
ur að engu, en skipt um nafn á
fleyinu til að þurfa ekki að takast
á við þá, sem gagnrýna valdatöku
hennar í nafni Kvennaframboðsins.
Þar eru einnig óuppgerð mál á
döfínni. Guðrún Jónsdóttir, fráfar-
andi oddviti Kvennaframboðsins í
borgarstjóm, segir í Þjóðviljanum í
gæn „. . . var meirihluti Kvenna-
framboðskvenna á móti framboði
núna, þar eð endurtekning á þeirri
aðgerð væri ekki rétta leiðin í
kvennabaráttu að sinni.
Kvennaframboð og Kvennalisti
em tvö ólík öfl. Meðan það hefur
ekki vafíst fyrir Kvennaframboðinu
að vera heilt í sinni afstöðu til
málefna, hefur Kvennalistinn oft-
lega orðið ber að því að stfga eins-
konar framsóknarvals."
Grein Guðrúnar Jónsdóttur og
ásökunin um framsóknarvals
Kvennalistans verður varla skilin á
annan veg en þann, að hún sé að
hvetja stuðningsmenn sína í
Kvennaframboðinu til að kjósa
Alþýðubandalagið. Er líklegt, að
Ingibjörgu Sólrúnu þyki ómaklega
að sér vegið með því að bendla sig
við framsókn. Hún hefur jafnan
skipað sér vinstra megin við Al-
þýðubandalagið.
Leiðsögn Alþýðu-
bandalagsins
í kosningabaráttunni hafa mál
æxlast þannig hjá vinstrisinnum,
að alþýðubandalagsmenn hafa náð
undirtökunum, þegar litið er til
þeirra málefna, sem þeir hafa helst
á oddinum í gagnrýni sinni á sjálf-
stæðismenn. Fyrir síðustu kosning-
ar leiddu alþýðubandalagsmenn
vinstrisinna í ógöngur á Rauða-
vatnsheiðum og nú hafa þeir farið
með þá alla leið austur að Ölfus-
vatni, við suðurenda Þingvalla-
vatns. Að vísu varð annað mál til
að sameina vinstrisinna f þessari
viku, að þeir gátu æst sig og
skammast yfír auðum stól Sjálf-
stæðisflokksins á DV-fundinum;
launar DV þeim það með því að
styðja þá f Ölfusvatnsmálinu.
Hér verður ekki litið á efnislega
hlið Ölfusvatnsmálsins, enda hafa
henni verið gerð rækileg skil á síð-
um Morgunblaðsins. Hitt er lær-
dómsríkara, þegar til framtíðar er
litið, að íhuga þá staðreynd, að með
fyrirgangi hefíir alþýðubandalags-
mönnum tekist að ná forystu
vinstrisinna með þetta mál að vopni.
Þetta gefur Reykvíkingum hug-
mynd um, hvemig staðið yrði að
málum í borgarsfjóm Reykjavíkur
undir leiðsögn Alþýðubandalagsins.
Sprengdar yrðu reykbombur, alið
yrði á öfund og vanmetakennd og
í krafti þess höfðað til samstöðu
um félagshyggju undir forystu
Alþýðubandalagsins. Þá er hamrað
á því nú á lokadögunum, að AI-
þýðubandalagið sé tvímælalaust
helsti andstæðingur Sjálfstæðis-
flokksins.
Undir forystu hinnar nýju stéttar
í Alþýðubandalaginu yrði fljótt
breyting á stjóm höfuðborgarinnar.
Framgangur þeirra, sem ráða ferð-
inni hjá Alþýðubandalaginu, hefur
einnkenst af því innan þeirra eigin
flokks, að þeir svífast einskis fyrir
völd og áhrif. Nái þeir tangarhaldi
á einhveiju valdatæki, eins og Þjóð-
viljanum, er það nýtt til hins ítrasta
í eigin þágu. Þannig yrði einnig
staðið að málum í borgarstjóm
Reykjavíkur. Forsmekkinn af því,
sem koma myndi, sjá menn, ef þeir
lesa dylgjur Össurar Skarphéðins-
sonar f garð embættismanna
Reykjavíkurborgar. Hann sakar þá
um „skemmdarverk" og hótar að
flæma þá burt í öskuna eða götu-
hreinsun, en ómerkilegri störf getur
sjálfur ritstjóri Þjóðviljans að sjálf-
sögðu ekki ímyndað sér í hroka sín-
um. Starfsmenn Reykjavíkurborgar
era um 7000. Hveija Össur flokkar
með embættismönnum og hveija
hann iítur niður á sem öskukarla
skal ósagt látið, en leiðsögnin í
næstu hreinsunum Þjóðviljaliðsins
er skýr, nú er þess bara beðið að
fá völdin.
Varist vinstri slysin
Sjálfstæðismenn hafa um nokk-
urt árabil haft það sem kjörorð að
vara fólk við vinstri slysum á kjör-
dag. Hafí verið ástæða til þess áður
fyrr er hún mikil nú. Kosningabar-
áttan hefur einkennst af sérkenni-
legu ábyrgðarleysi hjá andstæðing-
um Sjálfstæðisflokksins, ef ekki
galgopahætti. Þeir hafa fært ís-
lenska stjómmálabaráttu nokkra
áratugi aftur í tímann með persónu-
legum árásum á Davíð Oddsson.
Það er undir Reykvíkingum
komið nú á laugardaginn, hvort
þeir lqósa þessa sundurlausu vinstri
fylkingu yfír sig. Þeir hafa það f
hendi sér, hvort þeir vilja fóma
öraggri og markvissri stjóm fyrir
þá slæmu stjómarhætti, sem era
óhjákvæmileg fylgja stjómmála-
manna og flokka af þeirri gerð, er
hér hefur verið lýst.
Reykvíkingar hafí vanist því á
undanfömum fjórum árum, að þeir
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
stjóm borgar sinnar. Þeim hefur
verið það mikill léttir, eftir flögur
mögur vinstri ár 1978 til 1982.
Andvaraleysi, sem oft leiðir af
miklu öryggi, má á hinn bóginn
ekki verða til þess, að aftur verði
vinstra slys í Reykjavík - þá taka
við fjögur dýrkeypt ár.
Vestmannaeyjar:
——
Utvarp
Heimaey
hefur út-
sendingar
Vestmannaeyjum.
„MIÐAÐ við með hvað Stutt-
um fyrirvara við stofnuðum
til þessarar útvarpsstöðvar
og að allir, sem við þetta
starfa, eru reynslulausir á
þessum starfsvettvangi, er
ég þokkalega ánægður með
fyrsta útsendingardaginn,“
sagði Bjarni Sighvatsson, út-
varpsstjóri Utvarps Heima-
eyjar, sem hóf útsendingar i
Vestmannaeyjum á þriðju-
daginn. Útvarp Heimaey er
rekið af Eyveijum, félagi
ungra sjálfstæðismanna, og
sendir út á FM 102 alla daga
fram að helgi frá klukkan
17 til 22 og frá morgni tíl
kvölds á laugardaginn. Út-
sendingin heyrist vel um all-
anbæinn.
„Dagskráin hjá okkur er
blönduð. Við eram með tónlist-
arþætti, bamaeftii, getrauna- •
þætti og viðtalsþætti við fólk.
Þá era fréttir úr bæjarlífínu
ríkur þáttur í dagskránni og
höfum við fréttamann, sem fer
um bæinn og tekur viðtöl og
annað efni. Þá ætlum við að
vera með símaviðtöl og á kosn-
ingadaginn munum við útvarpa
upplýsingum um kjörsókn og
fleira viðvíkandi kosningunum
og viðtölum við fólk. Við reyn-
um sem sagt að hafa þetta eins
og hjá alvöra útvarpsstöðvum
þó í smáu sniði sé.“ Bjarni sagði
ennfremur að tilgangurinn með
þessum tímabundna útvarps-
rekstri væri sá, að gefa ungu
fólki kost á því, að prófa þennan
fjölmiðil, sem nú væri svo mjög
í tizku. Bjarni hvatti bæjarbúa
til að hafa samband við Utvarp
Heimaey, segja álit sitt á dag-
skránni og koma fram með
hugmyndir.
hkj
Embættí ríkis-
saksóknara
lausttil
umsóknar
FORSETI íslands hefur veitt
Þórði Bjömssyni ríkissaksóknara
lausn frá embætti frá 1. júlí 1986
vegna aldurs og hefur embætti
ríkissaksóknara verið auglýst
laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 20. júní 1986.
Hæstiréttur:
Embætti dóm-
ara auglýst laust
til umsóknar
FORSETI íslands hefur veitt
Sigurgeiri Jónssyni hæstarétí-
ardómara lausn frá embætti
frá 1. júlí 1986 að telja vegna
aldurs.
Jafnframt hefur dómaraemb-
ætti við Hæstarétt íslands verið
auglýst laust til umsóknar. Um-
sóknarfrestur ertil 20. júní 1986.