Morgunblaðið - 29.05.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
Nýtt bifvélaverk-
stæði á Flúðum
Syðra-Langholti, 26. mai.
SIGURÐUR H. Jónsson, bifvéla-
virkjameistari, opnaði fyrir
nokkru nýtt bifvélaverkstæði á
Flúðum. Húsið er 300 fermetrar
að flatarmáli. Þar fara fram
almennar bifvélaviðgerðir og er
næg atvinna fyrir 5 starfsmenn
að mestu við viðgerðir á bflum
og dráttarvélum.
í sumar verður verkstæðið opið
um helgar með hjólbarðaþjónustu
og aðrar minniháttar viðgerðir fyrir
ferðamenn. Sigurður hefur rekið
bifvélaverkstæði á öðrum stað hér
í sveitinni f 5 ár. Hannes Bjamason
bifvélameistari rak i tæp 30 ár
verkstæði á Flúðum en hætti rekstr-
inum fyrir þremur árum utan þess
að annast hjólbarðaþjónustu og
ljósastillingu.
Það er hverju byggðarlagi mikils
virði að hafa góða viðgerðarþjón-
ustu fyrir vélar og tæki svo sem
við Hrunamenn höfum verið svo
farsælir að hafa haft um langt ára-
bil. Sig. Sigm.
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
«v Starfsmenn verkstæðisins, f.v. Sigurður H. Jónsson, Jóhann Marels-
son, Jóhann B. Kormáksson og Esther Guðjónsdóttir. Á myndina
vantar Gisla Einarsson.
Söluvagn við Skalla-
grímsgarð í
Borjfamesi.
NÝLEGA var settur upp sölu-
vagn við Skallagrímsgarðinn í
» .Borgamesi. Vagninn, sem heitir
„Trölli“, er í eigu hjónanna Ólafs
I. Waage og Gunnþórunnar
Gisladóttur.
í vagninum eru seldar heitar
pylsur, samlokur, pizzur, pítur,
langlokur, ís, sælgæti og gos. Að
sögn Ólafs I. Waage hefur þessari
nýjung verið tekið vel og gengur
reksturinn framar öllum vonum.
Borgarnesi
Sagði Ólafur að með staðsetningu
vagnsins hefði verið haft í huga að
hafa hann í hjarta bæjarins og að
hann þjónaði einnig ferðafólki sem
skoðaði sig um í Borgamesi. Að-
spurður sagði Ólafur að vagninn
væri opinn alla virka daga frá hálf-
tfu á morgnana til miðnættis, um
helgar opnaði hann á hádegi og
væri þá opið til klukkan flögur eftir
miðnætti.
- TKÞ
Morgunblaðið/Theodór
Gunnþórunn Gfsladóttir stendur við hliðina á söluvagninum „Trölla“
sem nýlega var settur upp við Skallagrfmsgarðinn í Borgamesi.
VEGARÆSI
Eigum fyrirliggjandi rör í vegaræsi frá 12—48", efni
galv., 1,25—1,5 og 1,65 mm.
Hjólbörur
Eigum ávallt fyrirliggjandi sterku hjólbörurnar með
trésköftum sem við höfum framleitt í 45 ár.
Póstkassar
Eigum fyrirliggjandi á lager inni- og útipóstkassa.
NÝJA BLIKKSMIÐJAN HF.,
Ármúla 30, sími 81104.
Skólanemendur, kennarar og foreldrar fjölmenntu á afmælishátíðina í Ölduselsskóla og var salur-
ínnjafnan troðfullur meðan sýningaratriði fóru fram.
Afmælishátíð Reykja-
víkur í Ölduselsskóla
FYRSTU helgina í maí var í
Ölduselsskóla í Reykjavík há-
tíðleg haldin afmælishátíð
Reykjavíkurborgar, þar sem
kennarar, foreldrar og skóla-
nemendur lögðust á eitt um
glæsilega hátið. Var hún ngög
fjölsótt.
Stóð hátfðin 2. og 3. maí og
sáu foreldrar um grillveislu við
mikinn fögnuð kl. 1 á laugardag.
En á föstudag var lokadansleikur
ogfurðufataball.
Hátíðin á laugardag hófst með
skrúðgöngu um hverfið kl. 12.30.
Kl. 1 til 5 voru sýningar f stofum
skólans, sem nemendur höfðu út-
búið með hjálp kennara sinna og
var það allt tengt sögu Reykjavík-
ur. Jafnframt voru sýningar af
ýmsu tagi á sviði, blokkflautuleik-
ur, kórsöngur, leiklistarhópar 4.,
5. og 6. bekkjar fluttu efni en
7.-9. bekkur flutti ljóð, samtals-
Sýningar nemendanna voru allar tengdar Reykjavík. Hér siglir
fley Ingólfs Arnarsonar inn f Reykjavikurhöfn.
þátt og efni úr Pilti og stúlku. Guðmundsson. Á leikvelli skólans
6. bekkur flutti ljóð eftir Tómas fóru fram íþróttir.
Krabbameinsfélagið:
800 hafa svarað í
könnun félagsins
UM ÞAÐ bil 800 manns hafa
þegar svarað bréfum
Krabbameinsfélagsins við-
víkjandi könnun á ristil- og
endaþarmskrabbameinum
sem nú fer fram á vegum
félagsins. Tilviljun ræður
hverjir veljast í könnunina
en hún nær til sex þúsund
einstaklinga, karla og
kvenna, á aldrinum 45 til 70
ára. I byrjun árs voru send
út tvö þúsund bréf og eitt
úsund til viðbótar nýlega.
haust verða þau þrjú þús-
und bréf sem eftir eru send
út. Af þeim sem svarað hafa
SIMI 685411
endaþarmskrabbameins.
nú þegar þurfa 17 manns
nánari rannsókna við.
í upphafí er væntanlegum þátttak-
endum gert að senda hægðasýni
til rannsóknar á blóði. Þeir sem
blóð fínnst hjá verða kailaðir inn
til ristilspeglunar. Blæðing getur
verið af ýmsum orsökum en þeir
sem hafa verið með bólgusjúkdóma
og/eða krabbamein eru taldir vera
í meiri hættu en aðrir.
Fréttatilkynning
Flugleiða-
fréttir í
nýju broti
FLUGLEIÐAFRÉTTIR, 1. tbl.
12. árg., eru nýkomnar út og
er blaðið i nýju og stærra broti
en verið hefur. Útgefandi er
kynningardeild Flugleiða og er
Sæmundur Guðvinsson ábyrgð-
armaður þess.
Blaðið er 12 síður og flytur ýmsar
fréttir úr starfí og af umsvifum
Flugleiða. Jafnframt eru Flugleiða-
fréttir gefnar út á ensku en það
blað er 43 síður og flytur helztu
fréttir sem birtast í íslensku út-
gáfunni.