Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 50

Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986 Er dagvistun aðeins slagorð fyrir kosningar? eftirSelmu Júlíusdóttur Svo leng^i má brýna deigt jám að bíti um síðir. Það á við um mig nú. Ég ætla að standa upp á aftur- fætuma og leggja orð í belg. Um hvað? Um dagvistun bama og stjómmálafokkana. Aðalsiagorð þeirra fyrir allar kosningar em hróp um fleiri dagheimili og talið er upp með miklum Qálgleik hve mörg dagheimiii em reist í stjómartíð hvers. Seima Júlíusdóttir Kristín Á. Ólafsdóttir hefur látið sig dreyma framtíðardrauma í DV 21. maí um að Kennaraháskóla ís- lands verði breytt í verðbréfamark- að og vídeóleigu. Kannski gæti draumurinn breyst í hólfaðan geymslu- og uppeldisstað fyrir böm, þar sem nýjustu tækni og vísundum væri beitt og fullkomnir „Við skulum stinga við fæti hart og krefjast þess að þessi mál verði ekki lengur yfirborðs- slagorð stjórnmála- manna.“ tölvuvæddir róbótar væra aðal uppalendumir en í fullkomnum stjómklefa sætu háskólamenntaðir tölvufræðingar sem kynnu vel að stjóma öllum herlegheitunum. Að sjálfsögðu væra heimilin misjafn- lega ríkmannléga búin en allavega mundi ekki þurfa að hafa níu böm í blokkaríbúð. Nei. Allar íbúðir væra auðar 8—10 tíma á sólarhring og fólkið væri eitthvað þarfara að gera en að basla við að hanga yfír bömunum sínum eða annara. Já stórt er hugsað eða hvað? Eigum við ekki að taka höndum saman sem höfum haft það að aðalmarkmiði að hugsa fýrst og fremst um einstaklinginn, bamið. Við sem áiftum að heimilið sé besti kosturinn fyrir bamið og að foreldr- amir geti í flestum tilfelium gefíð bami sínu besta veganestið út í lífíð. Rétt er það að þjóðfélag okkar hefúr tekið miklum breytingum á stuttum tíma og mjög margir geta ekki og í sumum tiifellum hafa eki áhuga á að vera heima í uppeldis- störfum. Þá er ekki annað að gera Kostnaður við hvert barn á mánuði 1985 en að taka þessum breytingum og athuga frá granni hvað sé best fyrir bamið. Þið tókuð rétt eftin Fyrir bamið. Það er eini punkturínn sem á að ganga út frá. Að sjálfsögðu á einnig að hugsa um foreldrana og reyna að skapa þeim bestu mögu- legar aðstæður til að persónuleiki þeirra njóti sín en alls ekki á kostn- að bamsins sem ekki hefur kost á að bera hönd yfír höfuð sér. Það er kominn meira en tími til að lagt sé f kostnað til að athuga hvar við eram á vegi stödd í dagvist- unarappeldi í dag. Kannski vita stjómmálaflokkamir ekki að milli 350 og 400 konur bara í Reykjavik reka dagvistun á einkaheimilum. Alla vega er ekki minnst á það í kosningaslagnum nema þá sem skrítnar niðrandi athugasemdir. Hversvegna? Ég persónulega er stolt af því að heimili mitt er opið bömum frá útivinnandi foreldrum og stolt af að allir á mfnu heimili hlynna eins vel að þeim og í okkar valdi stend- ur. Ég er búin að vinna við, að ég heid, flesta þætti sem lúta að upp- eldi bama í tuttugu og eitt ár og tel mig hafa þar mikla starfsreynslu og yfírsýn. Ég persónulega hef komist að þeirri niðurstöðu að ég hef miklu betri aðstæður til að mæta þörfum bamanna á mínu eigin heimili en á dagheimili. Aðrar hafa aðra skoðun og ég ber einnig virðingu fyrir því en óska eindregið eftir að við sameinumst í að vinna saman og fínna út hvað er best fyrir bömin, og að dagheimili og einkaheimli beri virðingu hvort fyrir öðra. Við skulum stinga við fæti hart og kreQast þess að þesi mál verði ekki lengur yfírborðsslagorð stjómmálamanna. Það er okkur til mikillar minnkunar að taka þátt í svoleiðis skrípaleik. Ég vona að í allar borgar-, bæjar- og sveitastjómir veljist það hæft fólk að tekið verði á þessum málum með skynsemi og virðingu fyrir einstkalingnum og að eftir kosning- ar verði tekið á þeim frá granni og reynt að betrambæta alla þætti þess. Höfundur er dagmóðir. Loforðin tíu Orð og efndir sjálfstæðismanna í málum fatlaðara eftír Tryggva Þór Aðalsteinsson Sjálfstæðismenn hafa sfðustu vikumar gumað mjög af því að þeir hafí staðið við loforð sín, sem þeir gáfu borgarbúum fyrir síðustu borgarstjómarkosningar. Annað kemur á daginn þegar litið er á einstaka málaflokka. Á fundi sem Sjálfsbjörg efndi til fyrir borgarstjómarkosningamar 1982 hér í Reykjavík, gerðu fram- bjóðendur grein fyrir stefnu sinna flokka í málum fatlaðra. Þar mætti Markús Öm Antonsson fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og lagði fram stefnu flokksins á Qölrituðu blaði, f 10 liðum um málefíii fatlaðra, auðvitað í bláum lit, skreytt með ránfuglinum, merki flokksins, og skýram störfum, X-D, f hægra hominu. Samráð Í fyrsta lagi kemur þar fram að Reylqavíkurborg taki upp víðtækt samstarf við féiagasamtök sem vinna að málefnum fatlaðra. Hvem- ig hefur verið staðið að þessu? Ekkert samráð. Nefnd sem starfaði á áranum 1978 til 1982 og skipuð var fulltrúum bæði frá borginni og samtökum fatlaðra var í reynd lögð niður. Eina „samráðið" er fundur sem borgarstjórinn boðaði til fyrir fáum dögum í Höfða nú rétt fyrir kosningar til þess að fjalla um þessi mál. Auðvitað kom þar fram hvað margt er óunnið og Iítið hefur þokast fyrir tilstilli meirihluta borg- arstjómar Reykjavíkur síðustu flög- ur árin. Eftirlit í öðru lagi gerði stefna Sjálfstæð- isflokksins fyrir Qóram áram ráð fyrir því að „hjá Félagsmálastofnun verði sérstakur fulltrúi, sem verði eftirlitsaðili með aðgerðum borgar- innar um málefni fatlaðra“. Enginn hefur þetta verkefni sérstaklega. Enda varla þörf í ljósi þess að gerðir borgarinnar f málefnum fatl- aðra era nánast engar. Skipulag bygging-a í þriðja lagi átti samkvæmt stefnu Sjálfstæðisflokksins að taka fullt tillit til sérþarfa fatlaðra varð- andi skipulag bygginga og fleira. Þeir þekkja það, sem til að mynda nota hjólastól, að sama og ekkert hefur verið gert í þessu sambandi. Eitt sorglegasta dæmið um tillits- leysi borgaryfírvalda í garð fatlaðra er félagsmiðstöðin í Frostaskjóli. Þar er nýtt hús, sem er ætlað til margs konar félagsstarfs borgar- búa, ungra og gamalla. En ekki fyrir fatlaða, því þar era langir stigar fullkomlega ófærir hreyfí- hömluðu fólki. Þetta er ef til vill það sem íhaldið í Reykjavík kallar „fullt tillit". Ferðaþjónustau í §órða lagi skyldi ferðaþjónusta fatlaðra efld. Enginn nýr bíll hefur bæst við síðan haustið 1982. Enn þarf fólk að panta far með löngum fyrirvara og enn era ferðimar bundnar við Reykjavik, Seltjamar- nes og Kópavog. Ef sá sem ætlar að fara með bíl ferðaþjónustunnar upp í Mosfellssveit, suður í Garðabæ eða Hafnarfjörð, verður sá hinn sami trúlega skilinn eftir á bæjar- mörkum. Ferðaþjónusta nær ekki lengra, því ekki hefur verið samið um þessa þjónustu við öll nágranna- sveitarfélögin. Menntun í fímmta lagi átti að taka kennslumál til gagngerrar endur- skoðunar. Það var þó ekki Reykja- víkurborg, sem hrinti merkri nýjung í skólamálum fatlaðra úr vör fyrir u.þ.b. tveimur árum. Það gerðu Rauði krossinn og Öryrkjabanda- lagið ásamt Iðnskólanum með starfí Skóla fatlaðra. Litlu munaði að skólinn yrði lagður niður vegna fjár- hagsörðugleika, sem samtökunum tókst að leysa. Ékki vegna fjárfram- lags frá Reykjavíkurborg. Þaðan kemur enginn Qárstuðningur við Skóla fatlaðra. Tryggvi Þór Aðalsteinsson Atvinnumál í sjötta lagi skal minnt á atvinnu- mál fatlaðra, eitt allra mikilvægasta hagsmunamálið. Á Ráðningarskrif- stofu Reykjavíkur er sérstök ör- yrkjadeild. Aðeins hefur verið bætt við 'h starfi þar þrátt fyrir brýna þörf fyrir aukið starf deildarinnar. En á loforðalista Sjálfstæðismanna átti að auka þessa þjónustu og könnun á möguleikum á atvinnu fyrir fatlaða átti að hafa forgang. Langur listi öryrkja á atvinnuleysis- skrá Ráðningarskrifstofunnar ber hins vegar vitni um að atvinnumál fatlaðra hafa verið vanrækt af íhaldsmeirihlutanum. Eigið húsnæði í sjöunda lagi lýstu Sjálfstæðis- menn því yfir í þessari stefnuskrá sinni að sérstök áhersla verði lögð á að fatlað fólk geti eignast hentugt eigið húsnæði. Hveijar era efndim- ar? Það þekkja fatlaðir best sjálfír. Þær eru engar. Það sem kallað er „sérstök áhersla" í máli íhalds- manna verður bókstaflega að engu þegar til framkvæmda á að koma. Þannig er hægt að halda áfram að fara í gegnum þetta makalausa plagg, stefnuskrá sjálfstæðismanna í málefnum fatlaðra í Reykjavík, fyrir kosningamar 1982, og bera það saman við veraleikann. Þá kemur í ljós að hugur fylgir ekki máli. Orð era látin nægja á fundi með fötluðum, fáum dögum fyrir kosningar. Þá og nú í tíð vinstri manna 1978—82 var ferðaþjónustu fatlaðra komið á. Reykjavíkurþorg veitti 3 milljónum króna til vemdaðra vinnustaða. Allan tímann var reglulegt samstarf á milli borgarinnar og samtaka fatlaðra undir forystu borgarstjóra. Þar var lagt á ráðin og tillögur mótaðar, sem síðan voru lagðar fyrir borgarstjóm. Það reyndist farsælt og bar árangur. Þannig framfylgir Alþýðubandalagið stefnu sinni. Loforðin tíu, sem Sjálf- stæðismenn kynntu fyrir 4 áram vöktu vonir meðal fatlaðra. Sér- staklega þegar þeir fengu síðan vald til að uppfylla þau. En þegar efndimar era svo fjarri loforðunum, sem raun ber vitni hljótum við að draga af þvi lærdóm, sem við skul- um hafa í huga við kjörborðið 31. maí. Höfundur akipar 5. aæti G-listans við borgarstjómarkosningamar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.