Morgunblaðið - 29.05.1986, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
61
Dolly
Parton
kaupir hús
í Hollywood
Dolly Parton keypti sér hús í
Hollywood fyrir skömmu. Selj-
andinn vildi fá 1,1 milljón dollara
(jafnvirði um 40 milljóna ísl. kr.)
fyrir húsið sem stendur í hæð þaðan
sem víða sér yfír. En Dollý er
hagsýn og bauð 750 þúsund dollara
út í hönd. Og seljandinn var þá
ekki seinn á sér að taka tilboðinu.
„E1 Cordobés“ fæst við
nautið
Nautaat:
„EL Cordobésu
þótti standa sig illa
Þrátt fyrir rigningu og heldur
óskemmtilegt veður komu um
25 þúsund manns á Las Ventas-
leikvanginn í Madrid til að fylgjast
með Manuel („El Cordobés") Ben-
ítez, sem ekki hefur tekið þátt í
nautaati í sex ár. Hinn frægi nauta-
bani, sem dýrkaður er af aðdáend-
um sínum, hefur verið í ónáð hjá
harðlínumönnum vegna hins þótta-
fulla og sérkennilega stfls sem hann
hefur á nautaati sínu. Um var að
ræða nautaat til styrktar fóm-
arlömbum eldgossins f Kólombíu,
og varð þetta enginn happadagur
fyrir Benítez, sem orðinn er 54 ára
að aldri. Rétt í þá mund er viðureign
hans við nautið hófst varð Benítez
fyrir truflun er ungur maður ruddist
inn í hringinn og fullyrti hástöfum
að hann væri óskilgetinn sonur
nautabanans. Handtaka varð unga
manninn úti á vellinum. „E1 Cordob-
és“ stóð sig alls ekki vel þegar
bardaginn við nautið loksins hófst
og þótti honum takast klaufalega
að drepa það. Annar kappinn, sem
einnig hefur fyrir löngu dregið sig
í hlé, kom fram á eftir Benítez,
Antonio („Antonjete") Chenel, 54
ára að aldri. Hann gerði stormandi
lukku með stórkostlegu nautaati,
og jafnvirði rúmlega 20 milljóna ísl.
kr. söfnuðust.
COSPER
i
I0113
Varstu nú aftur með þessari ballerínu
fomhjólp
Söfnuðurinn í Kirkjulækjarkoti sér um
samkomuna í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í
kvöld kl. 20.30. Þar verður kórsöngur, tví-
söngur, vitnisburðir og hugvekja. Mætum öll
og tökum vel á móti vinum okkar.
Allireru velkomnir.
Samhjálp.
22.7.-
Leikfimi
&
istimar.
kennarar: Lella og
Margrét
dans
kennari: Asdís
Nútíma-
dans
kennari: Marta
Leiklist
kennari: Guðjón
Pedersen (Gió)
Leik-
smiðja
Srðustu helgina ijúní
kennir enska lista-
konan Elisa Berk
dans og leikspuna.
BETRI
ARANGUR MEÐ
ATLAS COPCO
Öruggur búnaður fyrir:
1. Mannvirkjagerð
2. Verktakastarfsemi
3. Þungaðiðnað
4. Léttan iðnað
Loftþjöppur með eða án loftkúts
KOSTIR:
Eftirlit auðvelt
Fyrirferöarlitlar
Margar stærðir
FYLGIHLUTIR:
Loftsíur
Loftþurrkarar
Þrýstiminnkarar
Loftslöngur
Slöngutengi
Loftkælar
Fullbúin
**■ LE 8 loftþjappa
VERKFÆRI:
Borvélar
Slípivélar
Herzluvélar
Gjallhamrar
Brothamrar
Ryðhamrar
Fræsarar
Loftbyssur
Sagir
Klippur
Sandblásturstæki
Máln.sprautur
Fylgihlutir
Afköst6-23 i/s — vinnuþrýstingur 10-3D bar
ATLAS COPCO er stærsti framleiðandi í heimi á loftþjöppum
og tækjabúnaöi fyrir þrýstiloft. Fyrirtækið þekkir hvernig
minnka má framleiðslukostnað með notkun á loft- og gas-
þjöppum, þurrkurum, síum, kælum, iðnaðarverkfærum og
tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar.
■■■■■■■ Fyrirtæki með framleiðslu er ■■■■■■■
JhlasCopcc tryggir Þér bætta arðsemi og JLtlasCopcc
góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur
LANDSSMIÐJAN HF.
■^PSÓLVHÓLSGÓTU 13 - REYKJAVÍK
f SlMI (91) 20680
VERSLUN: ÁRMÚLA 23